Bókatíðindi - 01.11.2023, Blaðsíða 24
IB RAF
Ból
Höf: Steinunn Sigurðardóttir
LínLín er ekki fisjað saman. Þrátt fyrir sáran missi
og þung áföll stendur hún keik. En nú er komið að
ögurstund: Náttúran fer hamförum við sælureitinn
hennar í sveitinni. Einbeitt heldur hún þangað, til
móts við minningarnar, leyndarmálin og sorgirnar
stóru. Mögnuð saga um ofurást og hjartasorg, styrk
og uppgjöf, eldheitt verk frá snilldarhöfundi.
206 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB RAF HLB
Dauðadjúp sprunga
Höf: Lilja Sigurðardóttir
Snjöll og áhrifarík spennusaga um ógn og ofbeldi,
blekkingar og trúnað, fimmta og seinasta bókin um
tvíeykið Áróru og Daníel. Áróru líður skár síðan lík
systur hennar fannst eftir langa leit en morðmálið
er enn óleyst. Peningaþvætti sem hún rannsakar
reynist annað og meira, og brátt liggja þræðirnir á
ný í Engihjallann, heim til systurinnar sem dó.
262 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
IB RAF
Dauði Francos
Höf: Guðbergur Bergsson
Árið 1975 fylgist Guðbergur með nokkurra vikna
dauðastríði Francos og skrásetur í dagbók. Brot úr
dagbókinni birtist á sínum tíma í Þjóðviljanum en
hér má í fyrsta skipti líta skrásetninguna í heild sinni.
Höfundur dregur upp einstaka mynd af endalokum
einræðisherra og þeirri ringulreið sem skapast í
spænsku samfélagi við yfirvofandi fráfall hans.
101 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
SVK
Davíð Wunderbar
Höf: Hákon J. Behrens
Þrátt fyrir sakleysislega kápu er rétt að vara fólk
við því að lesa þessa bók. Það er ekki nóg með að
Starkaður Starkaðsson fari offari í þráhyggju sinni
gagnvart mælingu tímans heldur finnur hann þörf
fyrir að bregða fyrir sig ruddalegu orðfæri þegar
hann ferðast djúpt niður í myrkur mannssálarinnar,
til staða sem engum er hollt að heimsækja.
183 bls.
Ormstunga
IB
Deus
Höf: Sigríður Hagalín Björnsdóttir
Skáldið Sigfús missir tökin á lífinu þegar hann
finnur guð. Unglingurinn Ísabella glímir við stórar
og flóknar tilfinningar. Blaðamaðurinn Andri
Már þarf að fóta sig á nýjum og ókunnuglegum
vettvangi. Örlög þeirra fléttast saman við áform
nýsköpunarfyrirtækisins DEUS Technologies
um að þróa trúarbrögð sem gervigreind.
203 bls.
Benedikt bókaútgáfa
KIL
Best fyrir
Höf: Andri Freyr Sigurpálsson, Daníel Daníelsson,
Jóna Valborg Árnadóttir, Margrét Eymundsdóttir,
Rebekka Atla Ragnarsdóttir og Valgerður
Ólafsdóttir
Framtíðin er ekki óskrifað blað í augum þeirra
höfunda sem deila hér reynslu sinni. Í níu sannsögum
er ferðast um tímann í gegnum heimaslátrun, átök
við íslenska veðrið, skíðakennslu á Ítalíu, ástir,
eftirpartí, undarlegt háttalag konu um nótt og súran
kvíða samtímans. Hér er tekist á við kunnuglegan
tilvistarótta og gefin fyrirheit um framhaldið.
194 bls.
Benedikt bókaútgáfa
IB
Biluð ást
Höf: Sigurjón Magnússon
Nanna er látin – konan sem Jóhann Máni elskaði.
Það var biluð ást. Hér segir frá harkalegum örlögum
manns sem hafði margt til brunns að bera, var
gæddur góðum gáfum, óvanalegu líkamlegu atgervi
og hugdirfsku. En ástina kunni hann ekki að varast.
Mögnuð bók eftir einn okkar fremsta höfund.
484 bls.
Ormstunga
IB RAF
Blóðmjólk
Höf: Ragnheiður Jónsdóttir
Lesandinn sogast inn í vinkvennahóp sem verður fyrir
miklu áfalli þegar ein þeirra deyr með hræðilegum
hætti. Sjónarhornið flakkar á milli kvennanna þannig
að lesandinn kynnist persónunum frá ýmsum hliðum.
Hvað gerðist eiginlega? Og ef það var framinn
glæpur, hver er hinn seki? Þessi skvísukrimmi
fékk glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn.
204 bls.
Veröld
KIL
Blóðsnjór
Höf: Helgi Jónsson
Gamall maður stingur af frá Hrafnistu. Hvert
leið hans liggur veit enginn. Leiðarvísirinn er
gömul bróðurminning sem engum er annt um
nema honum. Það er verk sem þarf að klára
áður en hann yfirgefur þetta jarðlíf, því sumar
bernskuminningar hverfa aldrei. Blóðsnjór er
saga um ást sem nær út fyrir gröf og dauða.
142 bls.
Bókaútgáfan Tindur
IB
Borg hinna dauðu
Höf: Stefán Máni
Föstudagskvöld nokkurt í september yfirgefur hin
19 ára gamla Sigríður Bella Ólafsdóttir heimili
sitt við Dragaveg. Hún segir engum hvert hún er
að fara. Þegar hún skilar sér ekki heim hringja
foreldrarnir á lögregluna. Það er eins og jörðin hafi
gleypt dóttur þeirra. Spennan er yfirþyrmandi þegar
Hörður Grímsson glímir við sitt flóknasta mál.
382 bls.
Sögur útgáfa
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa24
Skáldverk ÍSLENSK