Bókatíðindi - 01.11.2023, Page 24

Bókatíðindi - 01.11.2023, Page 24
IB RAF Ból Höf: Steinunn Sigurðardóttir LínLín er ekki fisjað saman. Þrátt fyrir sáran missi og þung áföll stendur hún keik. En nú er komið að ögurstund: Náttúran fer hamförum við sælureitinn hennar í sveitinni. Einbeitt heldur hún þangað, til móts við minningarnar, leyndarmálin og sorgirnar stóru. Mögnuð saga um ofurást og hjartasorg, styrk og uppgjöf, eldheitt verk frá snilldarhöfundi. 206 bls. Forlagið - Mál og menning IB RAF HLB Dauðadjúp sprunga Höf: Lilja Sigurðardóttir Snjöll og áhrifarík spennusaga um ógn og ofbeldi, blekkingar og trúnað, fimmta og seinasta bókin um tvíeykið Áróru og Daníel. Áróru líður skár síðan lík systur hennar fannst eftir langa leit en morðmálið er enn óleyst. Peningaþvætti sem hún rannsakar reynist annað og meira, og brátt liggja þræðirnir á ný í Engihjallann, heim til systurinnar sem dó. 262 bls. Forlagið - JPV útgáfa IB RAF Dauði Francos Höf: Guðbergur Bergsson Árið 1975 fylgist Guðbergur með nokkurra vikna dauðastríði Francos og skrásetur í dagbók. Brot úr dagbókinni birtist á sínum tíma í Þjóðviljanum en hér má í fyrsta skipti líta skrásetninguna í heild sinni. Höfundur dregur upp einstaka mynd af endalokum einræðisherra og þeirri ringulreið sem skapast í spænsku samfélagi við yfirvofandi fráfall hans. 101 bls. Forlagið - JPV útgáfa SVK Davíð Wunderbar Höf: Hákon J. Behrens Þrátt fyrir sakleysislega kápu er rétt að vara fólk við því að lesa þessa bók. Það er ekki nóg með að Starkaður Starkaðsson fari offari í þráhyggju sinni gagnvart mælingu tímans heldur finnur hann þörf fyrir að bregða fyrir sig ruddalegu orðfæri þegar hann ferðast djúpt niður í myrkur mannssálarinnar, til staða sem engum er hollt að heimsækja. 183 bls. Ormstunga IB Deus Höf: Sigríður Hagalín Björnsdóttir Skáldið Sigfús missir tökin á lífinu þegar hann finnur guð. Unglingurinn Ísabella glímir við stórar og flóknar tilfinningar. Blaðamaðurinn Andri Már þarf að fóta sig á nýjum og ókunnuglegum vettvangi. Örlög þeirra fléttast saman við áform nýsköpunarfyrirtækisins DEUS Technologies um að þróa trúarbrögð sem gervigreind. 203 bls. Benedikt bókaútgáfa KIL Best fyrir Höf: Andri Freyr Sigurpálsson, Daníel Daníelsson, Jóna Valborg Árnadóttir, Margrét Eymundsdóttir, Rebekka Atla Ragnarsdóttir og Valgerður Ólafsdóttir Framtíðin er ekki óskrifað blað í augum þeirra höfunda sem deila hér reynslu sinni. Í níu sannsögum er ferðast um tímann í gegnum heimaslátrun, átök við íslenska veðrið, skíðakennslu á Ítalíu, ástir, eftirpartí, undarlegt háttalag konu um nótt og súran kvíða samtímans. Hér er tekist á við kunnuglegan tilvistarótta og gefin fyrirheit um framhaldið. 194 bls. Benedikt bókaútgáfa IB Biluð ást Höf: Sigurjón Magnússon Nanna er látin – konan sem Jóhann Máni elskaði. Það var biluð ást. Hér segir frá harkalegum örlögum manns sem hafði margt til brunns að bera, var gæddur góðum gáfum, óvanalegu líkamlegu atgervi og hugdirfsku. En ástina kunni hann ekki að varast. Mögnuð bók eftir einn okkar fremsta höfund. 484 bls. Ormstunga IB RAF Blóðmjólk Höf: Ragnheiður Jónsdóttir Lesandinn sogast inn í vinkvennahóp sem verður fyrir miklu áfalli þegar ein þeirra deyr með hræðilegum hætti. Sjónarhornið flakkar á milli kvennanna þannig að lesandinn kynnist persónunum frá ýmsum hliðum. Hvað gerðist eiginlega? Og ef það var framinn glæpur, hver er hinn seki? Þessi skvísukrimmi fékk glæpasagnaverðlaunin Svartfuglinn. 204 bls. Veröld KIL Blóðsnjór Höf: Helgi Jónsson Gamall maður stingur af frá Hrafnistu. Hvert leið hans liggur veit enginn. Leiðarvísirinn er gömul bróðurminning sem engum er annt um nema honum. Það er verk sem þarf að klára áður en hann yfirgefur þetta jarðlíf, því sumar bernskuminningar hverfa aldrei. Blóðsnjór er saga um ást sem nær út fyrir gröf og dauða. 142 bls. Bókaútgáfan Tindur IB Borg hinna dauðu Höf: Stefán Máni Föstudagskvöld nokkurt í september yfirgefur hin 19 ára gamla Sigríður Bella Ólafsdóttir heimili sitt við Dragaveg. Hún segir engum hvert hún er að fara. Þegar hún skilar sér ekki heim hringja foreldrarnir á lögregluna. Það er eins og jörðin hafi gleypt dóttur þeirra. Spennan er yfirþyrmandi þegar Hörður Grímsson glímir við sitt flóknasta mál. 382 bls. Sögur útgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa24 Skáldverk ÍSLENSK

x

Bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.