Bókatíðindi - 01.11.2023, Page 6

Bókatíðindi - 01.11.2023, Page 6
IB Hver ruglaði pökkunum Múmínáflarnir: Mía litla Höf: Tove Jansson Þýð: Erla E. Völudóttir Mía litla útdeilir gjöfum til íbúa Múmíndals. En rata allir pakkarnir í réttar hendur? Ein af hinum sívinsælu myndabókum sem byggðar eru á sögum Tove Jansson. 16 bls. Ugla IB Pétur og Brandur Hænsnaþjófurinn Höf: Sven Nordqvist Dag einn kemur Gústi nágranni með tvíhleypu á öxl og hefur fréttir að færa. Refur herjar nú á hænsnakofa sveitarinnar og því er eins gott fyrir Pétur og köttinn Brand að vera við öllu búnir. Pétur lætur ekki segja sér það tvisvar en í stað þess að veiða refinn ákveða þeir félagar að fæla hann heldur í burtu í eitt skipti fyrir öll. 28 bls. Kvistur bókaútgáfa IB Í rúmið eftir tíu mínútur Hyrningur litli Höf: Rhiannon Fielding Þýð: Guðni Kolbeinsson Töfrandi kvöldævintýri fyrir litlar krúttlegar risaeðlur. Mjög falleg bók sem notið hefur mikilla vinsælda víða um heim. Frábær bók til að lesa fyrir lítil kríli fyrir svefninn. 26 bls. Unga ástin mín HSP Íslensku dýrin okkar Höf: Anna Margrét Marinósdóttir og Helgi Jónsson Dýrin tala. Þau brosa og hlæja, hrína, hneggja, gelta og gala og eru stundum með stæla! Í þessari bráðskemmtilegu bók kynnist þú íslensku húsdýrunum og forvitnilegum fuglum og sjávardýrum sem lifa í náttúrunni við landið okkar. Og þú færð meira að segja að heyra hvernig hljóð þau gefa frá sér. 30 bls. Sögur útgáfa IB Júlían í brúðkaupinu Höf: Jessica Love Þýð: Ragnhildur Guðmundsdóttir Brúðkaup er ástarveisla. Júlían fer í eftirminnilegt brúðkaup og eignast nýjan vin, Marísól. Saman halda þau á vit töfra og ævintýra. Falleg bók um fjölbreytileika og virðingu. 40 bls. Angústúra HSP Heimurinn Höf: Catherine Lavoie Þýð: Sverrir Norland Falleg og ljóðræn bók sem fylgir yngstu börnunum þegar þau byrja að uppgötva heiminn í kringum sig. Himin, sól, fjall, dag, nótt … Bókin örvar ímyndarafl barnsins með frumlegum teikningum úr daglegu lífi þess. Bókin er harðspjalda (hver síða úr þykkum pappa) og þolir því vel hnjask! 18 bls. AM forlag IB Hulk í smá vandræðum Kóngulóarliðið Höf: MARVEL /DISNEY Þegar nýja tækið hans Græna-Skratta breytir Hulk í smábarn verður Kóngulóarliðið að finna leið til að passa upp á litla vin sinn og stöðva Skratta. 24 bls. Edda útgáfa KIL Hver er flottastur? / Hver er sterkastur? Höf: Mario Ramos Þýð: Guðrún Vilmundardóttir Segir hér af hinum hégómlega – en óneitanlega töluvert glæsilega – úlfi sem spígsporar um skóginn og krefst þess að aðrir dáist að honum. Hann hittir meðal annars Rauðhettu og Mjallhvíti og sjö litla menn, sem öll hrósa honum í hástert – en hann hefði betur hugsað sig um tvisvar áður en hann truflaði drekabarnið sem er í feluleik við fuglinn. 31 bls. Benedikt bókaútgáfa IB Hver er leiðin? Höf: Annie Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir Draumur Freyju er að vinna til verðlauna. Þegar hún mætir á keppnisstað verða ýmsar áskorarnir á vegi hennar. Freyja þarf að finna hugrekkið, læra að treysta sjálfri sér og taka á öllu sínu til að komast í mark. Með hjálp dýravina sinna kemst hún að því að ferðalagið er mikilvægara en verðlaunin.  56 bls. Salka IB Hvernig er koss á litinn? Höf: Rocio Bonilla Þýð: Svanlaug Pálsdóttir Lillaló elskar að mála. Hún málar rauða maríubjöllu, bláan himin og gula banana en koss hefur hún aldrei málað. Hvernig er koss á litinn? Með penslum og pappír rannsakar Lillaló málið. Er kossinn rauður eins og tómatsósa, grænn líkt og krókódíll eða bleikur eins og uppáhaldskökurnar hennar? 31 bls. Kvistur bókaútgáfa B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa6 Barnabækur MYNDRÍK AR

x

Bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.