Bókatíðindi - 01.11.2023, Side 12
KIL RAF HLB
Bella gella krossari
Höf: Gunnar Helgason
Sjöunda bókin í sagnaflokknum vinsæla um Stellu
og skrautlega fjölskyldu hennar: mömmu klikk,
pabba prófessor, ömmurnar, börnin fimm og nojaða
nágrannann. Listaspíran Bella er ein helsta fyrirmynd
Stellu í smartheitum, sjálfstæði og í rosalegu
mótor-kross-ÆÐI. En nú er Bella í vandræðum
og hjálpin kemur (auðvitað) úr óvæntri átt.
208 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB
Bold-fjölskyldan í grænum gír
Höf: Julian Clary
Myndh: David Roberts
Þýð: Magnús Jökull Sigurjónsson
Verið svo væn að verða græn! Sjötta bókin í
hinni frábæru seríu um Bold-fjölskylduna. Enn
á ný reynir Bold-fjölskyldan að bjarga dýrum í
vanda – en núna líka plánetunni Jörð.
296 bls.
Ugla
IB HLB
Bekkurinn minn
Bumba er best!
Höf: Yrsa Þöll Gylfadóttir
Myndh: Iðunn Arna
Bókin fjallar um Óðin, sem er óvenju daufur
í dálkinn þessa dagana. Snjórinn lætur bíða
eftir sér og mömmur hans vilja losa sig við
köttinn þeirra. Það má ekki gerast!
Með hjálp Halldóru vinkonu sinnar finnur Óðinn
fullkomna lausn á málinu. Bekkurinn minn fjallar
um nemendur í bekk í íslenskum grunnskóla.
62 bls.
Bókabeitan
IB
Sagan af
Dimmalimm
Höf: Guðmundur Thorsteinsson
Þetta er ævintýrið um Dimmalimm eftir
Guðmund Thorsteinsson. Ný útgáfa er óður
til sögunnar, bæði textans og myndanna sem
þessi stórsnjalli listamaður skóp. Sagan er
óbreytt en bókina prýða nýjar myndir.
42 bls.
Óðinsauga útgáfa
IB
Eini sanni Ívan
Höf: Katherine Applegate
Þýð: Helgi Jónsson
Ívan er górilla og á heima í verslunarmiðstöð. Hann
er spenntur fyrir sjónvarpinu, og að tala við vini
sína, Bubba, sem er flækingshundur, og Stellu, sem
er gamall f íll. Og þá kemur Rósa, ungur f íll sem
hefur verið tekinn frá fjölskyldu sinni. Ívan setur
sér það markmið að Rósu líði vel á nýja staðnum.
Best væri að hún kæmist í alvöru dýragarð.
304 bls.
Bókaútgáfan Tindur
Barnabækur
SKÁLDVERK
SVK
13 hæða trjáhúsið
Höf: Andy Griffiths
Myndh: Terry Denton
Þýð: Gunnar Kr. Sigurjónsson
13 hæða trjáhúsið þeirra Adda og Tedda er
stórkostlegasta trjáhús heims! Það er með keiluhöll,
gegnsærri glersundlaug, laug með mannætuhákörlum,
leynilegri neðanjarðarrannsóknastofu og sykurpúðavél
sem eltir þig um allt og skýtur sjálfkrafa sykurpúðum
upp í þig, hvenær sem þú finnur til svengdar.
239 bls.
Bókaútgáfan Hólar
IB
Að breyta heiminum
Höf: Ingibjörg Valsdóttir
Myndh: Lilja Cardew
Marko og Stella, litla systir hans, eru stödd á skrítnum
stað. Marko hefur á tilfinningunni að eitthvað
slæmt hafi gerst en man ekki hvað. Hann leitar að
leiðinni heim og rekst þá á ýmsar furðuverur, eins
og Rösk, Verkil og Beru, sem búa yfir leyndum
hæfileikum. Furðuverurnar vilja gera vistina sem
besta fyrir systkinin og leiða Marko í rétt átt.
93 bls.
Bókabeitan
IB
Amma og afi á ferðalagi
Höf: Esther Murris
Myndir: Erin Mercer
Þýð: Huginn Þór Grétarsson
Amma og afi eru alltaf til í smá fjör. Þó er það nú
svo að þeim tekst oft að koma sér í klandur.
Gömlu brýnin eru áköf í að heimsækja
barnabörnin sín og halda í ferð sem reynist
mun erfiðari en ætlað var í upphafi.
44 bls.
Óðinsauga útgáfa
IB RAF HLB
Bannað að drepa
Höf: Gunnar Helgason
Myndir: Rán Flygenring
Það stefnir í ógleymanlegt páskafrí hjá Alexander
og risastóru, háværu fjölskyldunni hans. Þau ætla
að hrista saman íslenskar, pólskar og taílenskar
hefðir. En svo byrjar nýr strákur í bekknum
sem ræður ekkert við skapið í sér. Bara alls
ekki. Æsispennandi saga, bæði hörkufyndin og
grafalvarleg – akkúrat eins og krakkar vilja.
196 bls.
Forlagið - Mál og menning
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa12
Barnabækur SK ÁLDVERK
Skáldverk