Bókatíðindi - 01.11.2023, Page 28

Bókatíðindi - 01.11.2023, Page 28
IB Læknir verður til Höf: Henrik Geir Garcia Í skáldsögunni er skyggnst á bak við tjöldin innan heilbrigðiskerfis á þolmörkum sem svipar um margt til þess sem við þekkjum hér á landi. Með blöndu raunverulegra frásagna og skáldskapar spyr sagan áleitinna spurninga jafnt um stöðu og framtíð heilbrigðismála. 230 bls. Króníka IB Löngu horfin spor Njósnari nasista á Íslandi? Höf: Guðjón Jensson Í þessari skáldsögu er fjallað um örlög ungs Þjóðverja, Carls Reichsteins, sem kom hingað til lands árið 1937 til að kenna Íslendingum svifflug. Hann lést á dularfullan hátt tæpu ári eftir komu sína til landsins. Andlát hans var aldrei rannsakað til hlítar en ótal margar spurningar vakna við lesturinn. 352 bls. Skrudda IB Maðurinn frá São Paulo Frá handhafa Blóðdropans 2022. Höf: Skúli Sigurðsson Spennusaga um launmorð, njósnir og nasista á flótta. Í þessari annarri bók sinni fléttar Skúli Sigurðsson skáldskap saman við sögulega atburði og raunverulegar persónur svo úr verður magnaður hildarleikur – sem heldur lesendum í heljargreipum til síðustu síðu. 432 bls. Drápa IB Maður í eigin bíómynd Höf: Ágúst Guðmundsson Árið er 1949. Ingmar Bergman, 31 árs gamall og fimm barna faðir, fer til Suður-Frakklands að skrifa kvikmyndahandrit. Það veldur uppnámi í hjónabandinu. Í sólinni fer handritið æ meir að fjalla um þetta stormasama hjónaband. 153 bls. Ormstunga KIL Málleysingjarnir Ný og endurskoðuð útgáfa Höf: Pedro Gunnlaugur Garcia Málleysingjarnir, fyrsta skáldsaga höfundar, er óvenjulegt skáldverk í íslenskum bókmenntum og var afar vel tekið þegar hún kom fyrst út árið 2019. Hún kemur hér í nýrri og endurskoðaðri útgáfu. Pedro Gunnlaugur Garcia hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2022 fyrir skáldsögu sína Lungu. 434 bls. Bjartur SVK Kyrr kjör Höf: Þórarinn Eldjárn Fyrsta skáldsaga Þórarins Eldjárns endurútgefin með nýjum eftirmála Bergsveins Birgissonar. Söguleg og þjóðsöguleg skáldsaga frá 1983 byggð á ævi kraftaskáldsins Guðmundar Bergþórssonar (1657-1705). Þrátt fyrir fátæktarbasl og erfiða líkamlega fötlun náði Guðmundur miklum áhrifum og vinsældum sem eitt afkastamesta rímnaskáld allra tíma. 190 bls. Gullbringa ehf. IB RAF Land næturinnar Höf: Vilborg Davíðsdóttir Eftir þungt áfall á Íslandi hafa örlögin beint Þorgerði í faðm Herjólfs kaupmanns sem er á leið með varning sinn austur til Garðaríkis. Þar bíða þeirra launráð og lífsháski og brátt skilur Þorgerður að það getur krafist meira hugrekkis að lifa en deyja. Áhrifarík og æsispennandi saga að hætti Vilborgar, ævintýraför á slóðir víkinga í Austur-Evrópu. 329 bls. Forlagið - Mál og menning SVK Lexíurnar stafrófskver Höf: Magnús Sigurðsson Hér er tekið mið af bókmenntaformi stafrófskveranna gömlu, kennslubóka sem höfðu það hlutverk að vígja börn og ungmenni inn í töfraheima leslistarinnar. Með óvanalegum verkum sem leika á mörkum hins uppdiktaða og sanna, skáldskapar og fræða, hefur höfundurinn skapað sér sérstöðu í íslenskum bókmenntum. 185 bls. Dimma IB Lindarbrandur Höf: Hjálmar Þór Jensen Lindarbrandurinn hefur staðið fastur í svörtum steini svo árþúsundum skiptir. Þegar sverðið hverfur svo með dularfullum hætti bendir allt til þess að Malena hafi tekið það...en hvar er hún? Amma hennar Rúna og málaliðinn Hervar hefja leit að henni - því hver ætti annars að gera það? Bókasamlagið IB Litir í myrkrinu Höf: Ólöf Dóra Bartels Jónsdóttir Áratugum saman hefur Þórunn dvalið á Kleppi vegna sálarmeins sem gróf hægt en örugglega undan tilveru hennar og lífsvilja. Umhverfið er hávaðasamt og krefjandi, herbergisfélagar óútreiknanlegir og einangrunin mikil. 255 bls. Króníka B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa28 Skáldverk ÍSLENSK

x

Bókatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókatíðindi
https://timarit.is/publication/1847

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.