Bókatíðindi - 01.11.2023, Blaðsíða 32
KIL
Þrenna
ár og sprænur; hulda ráðgátan, litlu sögurnar í hálfa
samhenginu og ranimosk
Höf: Einar Guðmundsson
Þrenna samanstendur af bókunum Ár og sprænur;
hulda ráðgátan, Ranimosk og Litlu sögurnar í
hálfa samhenginu. Í bókunum má finna prósa í
hugleiðingaformi sem hverfist um vangaveltur
höfundar um málefni líðandi stundar, texta sem ekki
varð að sjálfstæðum bókum ásamt endurminningum
sem dansa á línu raunveru leika og skáldskapar.
408 bls.
ars longa forlag
IB RAF
Þvingun
Höf: Jónína Leósdóttir
Maður finnst myrtur í bústað við Laugarvatn og sú sem
kemur að honum er Magga, dóttir Adams sálfræðings
og Soffíu rannsóknarlögreglukonu. Mál fara að flækjast
þegar í ljós kemur að einn skjólstæðingur Adams
hefur fundið hótunarbréf sem tengist morðinu og
fyrr en varir er Adam enn á ný kominn í hlutverk
aðstoðarmanns fyrrverandi eiginkonu sinnar.
304 bls.
Forlagið - Mál og menning
IB RAF
Því dæmist rétt vera
Höf: Einar Már Guðmundsson
Í Tangavík ríða húsum hættulegar hugmyndir um
réttlæti og jöfnuð en yfirvöldum er í mun að bæla
niður alla uppreisn. Safarík saga um glæp og refsingu
í litlu sjávarþorpi á 19. öld – þorpi sem þó kann að
vera nafli heimsins. Þræðir spinnast til allra átta
og sagnfræði og skáldskapur togast á um satt og
logið, rétt og rangt í litríkum vef Einars Más.
271 bls.
Forlagið - Mál og menning
SVK
Ævintýrið
Höf: Vigdís Grímsdóttir
Í heitasta landi heims skríða eðlur á veggjum,
höfrungar leika listir sínar í sjónum og ljón standa á
vegum. Þar búa vinirnir Drengur og Fiskur sem eru
líkari en margan gæti grunað. Djúpvitur og hrífandi
saga um óvænta vináttu, misskiptingu valds og auðs
og fegurðina í óhugnaðinum; skrifuð af einstakri
frásagnargleði og næmi fyrir mannlegu eðli.
171 bls.
Benedikt bókaútgáfa
IB
Ævintýri fyrir fullvaxna
Höf: Ingimundur Gíslason
Í þessu smásagnasafni birtast tuttugu stuttar sögur af
ýmsu tagi. Sumar sverja sig í ætt við ævintýri en aðrar
má líta á sem minningabrot úr lífi höfundar. Sögurnar
eiga það allar sameiginlegt að nálgast viðfangsefnið
af nærgætni og virðingu fyrir öllu sem lifir.
81 bls.
Skrudda
SVK RAF HLB
Urðarhvarf
Höf: Hildur Knútsdóttir
Spennandi saga sem heldur lesanda í heljargreipum.
Eik tilheyrir hópi sjálfboðaliða sem leitar uppi
flækingsketti og kemur þeim í skjól. Við Urðarhvarf
situr hún fyrir læðu með kettlingahóp þegar
skyndilega birtist skrímsli úr fortíðinni sem rótar
upp óþægilegum minningum. Skepna sem Eik hafði
talið sjálfri sér trú um að væri bara hugarburður.
90 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
SVK RAF
Utan garðs
Höf: Unnur Lilja Aradóttir
Eftir 27 ár neyðast Júlía og bróðir hennar til að
halda aftur heim á æskuslóðirnar. Sem unglingum
var þeim útskúfað úr þessu litla samfélagi og Júlía
kemst fljótlega að því að það hefur ekkert breyst –
þau eru enn talin hafa framið alvarlega glæpi. En
minningabrotin raðast saman og afhjúpa hvað gerðist
og hverjir frömdu þessa hrottalegu glæpi.
271 bls.
Veröld
IB RAF HLB
Valskan
Höf: Nanna Rögnvaldardóttir
Prestsdóttirin Valka á sér ýmsa drauma en náttúran
grípur í taumana – bæði sú sem sýnir mátt sinn með
veðurofsa og harðindum en líka sú sem býr innra
með henni og kveikir ástríðu og losta. Frásögnina
byggir höfundur á lífi formóður sinnar og fléttar
saman heimildum og skáldskap svo úr verður grípandi
saga um harða lífsbaráttu, þrautseigju og ástir.
419 bls.
Forlagið - Iðunn
KIL
Vektu ekki barnið
Höf: Ágúst Borgþór Sverrisson
Ung móðir og eiginkona hverfur sporlaust vorið 1969.
Smám saman afhjúpast fyrir lesendum glæpurinn
sem hefur verið framinn en sögupersónurnar fá hver
sína innsýn í málið, hluta af sannleikanum. Vektu
ekki barnið – áleitin spennusaga með erindi.
95 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
SVK
Vordagar í Prag
Höf: Þorsteinn Jónsson
Íslenskur námsmaður upplifir hið sögulega Vor í
Prag og horfir á hlutina með gests augum. Hann
er í hringiðu ólgandi uppreisnar með skrautlegum
samnemendum sínum af ýmsum þjóðernum, kynnist
ástinni og sósíalismanum, sem hvort um sig vekur með
honum mótsagnakenndar tilfinningar. Innfæddir skora
á hann að fylgjast með og bera vitni um atburðina.
185 bls.
Benedikt bókaútgáfa
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa32
Skáldverk ÍSLENSK