Bókatíðindi - 01.11.2023, Blaðsíða 39
KIL
Sólarsystirin
Sjötta bókin í bókaflokknum um systurnar sjö
Höf: Lucinda Riley
Þýð: Valgerður Bjarnadóttir
Electra er yngst systranna sem dularfulli
auðkýfingurinn, Pa Salt, ættleiðir. Hún er ódæll
unglingur, hættir í skóla, en er uppgötvuð á
götum Parísar og verður heimsfræg ofurfyrirsæta.
Sólarsystirin er sjötta bókin í bókaflokknum sem
nefndur er eftir fyrstu bókinni, Sjö systur, og eru
einhverjar vinsælustu skáldsögur í heimi.
820 bls.
Benedikt bókaútgáfa
KIL
Sólarupprás við sjóinn
Höf: Jenny Colgan
Þýð: Helga Soffía Einarsdóttir
Þegar örlögin feykja örmagna Marisu á afskekkta
eyju úti fyrir ströndum Cornwall vonast hún til að
fá að jafna sig í friði. Fyrr en varir er hún farin að
hjálpa til í vitanum hjá Polly og Huckle og leggja
á ráðin um að blása nýju lífi í Litla bakaríið. Getur
verið að hún hafi frekar þörf fyrir nánd en næði?
Ljúflestur eftir skoska metsöluhöfundinn.
432 bls.
Angústúra
KIL RAF HLB
Spænska ástarblekkingin
Höf: Elena Armas
Þýð: Sunna Dís Másdóttir
Catalina þarf að mæta í brúðkaup systur sinnar.
Kærastanum hennar er boðið líka. Vandinn er bara
sá að það er enginn kærasti – hún skáldaði hann!
Þegar hinn óþolandi vinnufélagi hennar, Aaron,
býðst til að koma með henni ákveður hún því að
láta á það reyna. Þau hafa þrjá daga til að sannfæra
fjölskylduna um að þau séu brjáluð hvort í annað …
496 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
KIL RAF HLB
Systraklukkurnar
Höf: Lars Mytting
Þýð: Jón St. Kristjánsson
Í fornri stafkirkju í norskum afdal hanga
Systraklukkurnar sem eru sagðar hringja þegar
hætta steðjar að. Þegar nýr prestur kemur í sóknina
vaknar von í brjósti Astridar um betra líf. Hann
reynir að koma á nýjum siðum en þegar ungur þýskur
arkitekt birtist breytist líf Astridar og hún þarf að
velja á milli prestsins og framtíðar í öðru landi.
450 bls.
Forlagið - Mál og menning
KIL
Rúmmálsreikningur
Höf: Solvej Balle
Þýð: Steinunn Stefánsdóttir
Þessi verðlaunasaga er um ástina og hverfulleika
heimsins. Það er 18. nóvember. Á hverju kvöldi þegar
Tara Selter fer að sofa er 18. nóvember og á hverjum
morgni þegar hún vaknar er 18. nóvember. Hún á
ekki lengur von á að það sé kominn 19. nóvember
þegar hún vaknar og hún man ekki lengur eftir
17. nóvember eins og hann hafi verið í gær.
180 bls.
Benedikt bókaútgáfa
KIL RAF
Sjáið okkur dansa
Höf: Leïla Slimani
Þýð: Friðrik Rafnsson
Annað bindið í þríleik Leïlu Slimani sem hún
byggir á ættarsögu sinni en fyrsta bókin, Í landi
annarra, kom út á íslensku árið 2021. Hér segir
frá Aishu sem er augasteinn foreldra sinna, hins
marokkóska Amins og Mathilde sem kemur frá
Frakklandi. Lýst er átökum, umbrotum og ástríðum
með húmor, kærleika og ísköldu raunsæi.
332 bls.
Forlagið - Mál og menning
KIL
Smáatriðin
Höf: Ia Genberg
Þýð: Þórdís Gísladóttir
Skáldsaga í fjórum þáttum sem lýsir fáeinum
manneskjum og óteljandi smáatriðum.
Saga um afhjúpandi samskipti, stórar
tilfinningar og forvitnilegt fólk.
Veröld sem lesandinn mun sakna um
leið og síðasta blaðsíðan er lesin.
140 bls.
Benedikt bókaútgáfa
KIL
Smámunir sem þessir
Höf: Clarie Keegan
Þýð: Helga Soffía Einarsdóttir
Árið er 1985 í litlu þorpi á Írlandi. Jólin nálgast
og þar með mesti annatími Bills Furlong,
kolakaupmanns og fjölskyldu hans. Snemma
morguns, þegar Bill er að afhenda kol í klaustrið
við bæinn, gerir hann uppgötvun. "Bók sem allir
verða að lesa." Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljan
108 bls.
Bjartur
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 39GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa
Skáldverk ÞÝDD