Bókatíðindi - 01.11.2023, Side 40
KIL
Þannig var það
Höf: Jon Fosse
Þýð: Kristrún Guðmundsdóttir
Þannig var það er nýtt leikrit eftir hinn nafnkunna,
norska rithöfund Jon Fosse sem nú hefur hlotið
Nóbelsverðlaun í bókmenntum. Aldraður maður
íhugar líf sitt og sögu við leiðarlok. Hann veltir
fyrir sér stöðu sinni í dag og hvort lífsferillinn
hafi verið sá sem hann vildi. „Ég sóaði lífi mínu
/ í þessar myndir / í þessi málverk .“
55 bls.
Espólín forlag
KIL RAF HLB
Þriðja röddin
Höf: Cilla Börjlind og Rolf Börjlind
Þýð: Hilmar Helgu- og Hilmarsson
Í Stokkhólmi finnst starfsmaður hjá Tollinum
hengdur heima hjá sér. Lögreglan úrskurðar að
um sjálfsmorð sé að ræða en þegar Olivia Rönning
dregst inn í málið áttar hún sig á að ekki er allt sem
sýnist. Og allt í einu er hún, þvert gegn vilja sínum,
komin á kaf í morðrannsókn sem teygir anga sína til
Frakklands en líka á óvænta staði nær henni.
512 bls.
Forlagið - JPV útgáfa
KIL
Þýsk sálumessa
Höf: Philip Kerr
Þýð: Helgi Ingólfsson
Bernie Gunther berst við fláráða herforingja,
laumunasista og kommúnista í rústum Evrópu
rétt eftir seinna stríð. Einstakar sakamálasögur
Philips Kerr hafa fyrir löngu öðlast heimsfrægð
og birtast nú íslenskum lesendum í vönduðum
þýðingum Helga Ingólfssonar rithöfundar.
436 bls.
Bókaútgáfan Sæmundur
KIL
Tíundi maðurinn
Höf: Graham Greene
Þýð: Árni Óskarsson
Í heimsstyrjöldinni síðari er hópi manna haldið
föngnum í þýskum fangabúðum. Dag einn fá fangarnir
að vita að þrír þeirra verði teknir af lífi. Í hópnum
er franskur lögfræðingur sem leggur á ráðin um að
komast undan aftöku. Honum tekst það. En brátt
kemur í ljós að hann muni þurfa að súpa seyðið
af ráðabrugginu það sem eftir er ævinnar.
182 bls.
Ugla
KIL
Ungi maðurinn
Höf: Annie Ernaux
Þýð: Rut Ingólfsdóttir
Í þessari litlu bók segir Nóbelsskáldið Annie
Ernaux í fáum orðum eftirminnilega sögu af
sambandi sínu við mann sem var þrjátíu árum
yngri en hún. Meðan á sambandinu stóð fannst
henni sem hún væri aftur orðin unglingsstelpan
sem olli hneykslun endur fyrir löngu.
48 bls.
Ugla
KIL
Veðrafjall
Höf: Liza Marklund
Þýð: Friðrika Benónýsdóttir
Í miðjum Jónsmessufagnaði í bænum Stenräsk
flýtur lík upp úr Köldumýri. Í fyrstu er talið að
þetta sé lík eiginkonu lögreglustjórans Wikings
Stormberg sem hafði horfið fyrir mörgum árum.
En svo kemur í ljós að líkið er af karlmanni. Það
hafði verið fest við botn mýrinnar með stiku í
gegnum hjartað – eins og í vampírusögu.
284 bls.
Ugla
KIL RAF HLB
Verity
Höf: Colleen Hoover
Þýð: Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir
Rithöfundurinn Lowen Ashleigh er í fjárhagskröggum
þegar hún fær tilboð sem hún getur ekki hafnað.
Jeremy Crawford, eiginmaður metsöluhöfundarins
Verity Crawford, ræður Lowen til að klára síðustu
bækurnar í afar vinsælum bókaflokki sem rúmföst
eiginkona hans er ekki fær um að ljúka.
330 bls. / klst.
Björt bókaútgáfa - Bókabeitan
KIL RAF HLB
Violeta
Höf: Isabel Allende
Þýð: Sigrún Á. Eiríksdóttir
Violeta fæðist í Chile árið 1920 og allt sitt líf berst
hún fyrir sjálfstæði sínu. Örlög hennar mótast af
byltingum, kúgun, frelsisbaráttu og ekki síst baráttu
kvenna gegn ofbeldi. Margbrotin og ómótstæðileg
skáldsaga, byggð á sögu móður Isabel Allende, um
ríkidæmi og fátækt, djúpan harm og óbilandi ást.
377 bls.
Forlagið - Mál og menning
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa40
Skáldverk ÞÝDD