Bókatíðindi - 01.11.2023, Blaðsíða 52
GOR
Krossgátur
Frístundarbókin nr. 2
Krossgátur og athyglisþrautir
Ritstj: Guðjón Baldvinsson
Eitthvað fyrir alla krossgátuunnendur. Í bókinni eru
95 krossgátur og athyglisþrautir af ýmsu tagi, þar
af 58 hefðbundnar krossgátur af ýmsum stærðum.
Svo fljóta með orðaleitargátur, völundarhús, flísaðir
málshættir, sudoku-gátur, orðatvístursgátur, stjörnuleit,
felumyndir og krosstölur. Frábær dægradvöl.
64 bls.
Frístund útgáfa ehf.
IB
Fullveldisróður í 40 ár
Sjómannafélag Ólafsfjarðar 1983-2023
Höf: Atli Rúnar Halldórsson
Hér er stiklað á stóru i sögunni, allt frá því sjómenn í
Ólafsfirði sögðu skilið við Sjómannafélag Eyjafjarðar
og urðu fullvalda í eigin félagsskap. Fjallað er líka
um Stígandaslysið, um blómaskeið og hnignun
útgerðar og fiskvinnslu í Ólafsfirði og fleira.
Sjómannafélag Ólafsfjarðar sinnir hagsmunum
síns fólks og styður samfélag sitt myndarlega.
224 bls.
Svarfdælasýsl forlag
SVK
Grikkland hið forna
Þættir úr sögu fornaldar
Í Grikklandi hinu forna eru dregin saman meginatriðin
í sögu hins gríska menningarheims allt frá tímum
Mínóa á Krít og þar til Rómverjar lögðu löndin við
austanvert Miðjarðarhaf undir veldi sitt á 1. öld f.Kr.
Bókin er prýdd ríkulegu myndefni sem varpar ljósi á þá
atburði og persónur sem um er fjallað.
240 bls.
Ugla
KIL
Gripla 34 (2023)
Alþjóðlegt ritrýnt tímarit Árnastofnunar
Ritstj: Gísli Sigurðsson
Gripla er alþjóðlegt, ritrýnt tímarit á sviði norrænna
fræða fyrri alda og kemur út í desember á hverju ári.
Tímaritið er alþjóðlegur vettvangur fyrir rannsóknir á
sviði íslenskra og norrænna fræða, einkum handrita-
og textafræða, bókmennta og þjóðfræða.
280 bls.
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
SVK
Hagfræði daglegs lífs
í stuttu máli
Höf: Gylfi Zoega
Margir halda að hagfræði fjalli einungis um
verðbólgu, atvinnuleysi og vexti. En hagfræði
hjálpar okkur að skilja líf okkar og umhverfi.
Þannig lýsir hagfræðin ákvörðunum okkar, hvernig
hinn skynsami maður ætti að taka ákvarðanir,
en jafnframt hvernig ákvarðanir okkar eru ekki
alltaf skynsamlegar frá sjónarhóli hagfræði.
Háskólaútgáfan
SVK
Ég er þinn elskari
Bréf Baldvins Einarssonar til Kristrúnar Jónsdóttur
1825–1832
Höf: Erla Hulda Halldórsdóttir
Árið 1826 sigldi Baldvin Einarsson til náms í
Kaupmannahöfn. Hann var þá trúlofaður Kristrúnu
Jónsdóttur en sveik hana í tryggðum. Við tók flókið
bréfasamband ástar, blekkinga og fyrirgefningar. Í
bókinni er ástarharmsaga Kristrúnar og Baldvins rakin
og bréfin sem hann skrifaði henni 1825–1832 birt
með skýringum og færð til nútímastafsetningar.
Háskólaútgáfan
SVK
Fléttur VI
Loftslagsvá og jafnrétti
Ritstj: Elín Björk Jóhannsdóttir, Auður
Aðalsteinsdóttir og Hafdís Anna Ægisdóttir
Sjötta bókin í ritröð RIKK – Rannsóknastofnunar
í jafnréttisfræðum, er þverfaglegt greinasafn um
loftslagsvá út frá kynja- og jafnréttissjónarmiðum.
Í bókinni eru margþætt tengsl loftslagsbreytinga,
kynjajafnréttis og samfélagslegs réttlætis tekin til
greiningar og þannig stuðlað að víðtækari skilningi
á þessu stærsta viðfangsefni samtímans.
Háskólaútgáfan
IB
Fornbátar á Íslandi
Sjómennirnir og saga þeirra
Höf: Helgi Máni Sigurðsson
Í þessari bók, Fornbátar á Íslandi, eru skipa- og
bátaarfi þjóðarinnar gerð skil á mjög áhugaverðan
og læsilegan hátt. Fjallað er um 54 fleytur sem
varðveist hafa. Bátarnir eru af ýmsum stærðum
og gerðum og gegndu mismunandi hlutverkum,
meirihlutinn var þó fiskibátar. Sá elsti er frá
um 1820 og hinn yngsti frá 1963.
198 bls.
Skrudda
IB
Frasabókin
Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri
Höf: Eyþór Wöhler og Emil Örn Aðalsteinsson
Yfir þúsund frasar, snjallyrði, orðtök og slanguryrði.
„Skemmtilegur leiðarvísir sem birtir og skýrir frasa úr
öllum áttum og frá öllum tímum. Framtíðin meðtalin.“
/ Árni Matthíasson, menningarblaðamaður. „Bók sem
hver einasti Íslendingur verður að eiga. Þetta er sko
eitthvað ofan á brauð!“ / Ari Eldjárn, grínisti.
208 bls.
Sögur útgáfa
KIL
Frá sjálfstæðisbaráttu til búsáhaldabyltingar
Þættir úr Íslandssögu
Höf: Guðmundur J. Guðmundsson
Yfirlitsrit um sögu Íslands frá því að Baldvin Einarsson
og samherjar hans hófu baráttu fyrir endurreisn
Alþingis og þar til ríkisstjórn Geirs H. Haarde
féll í kjölfar bankahrunsins haustið 2008.
226 bls.
Ugla
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa52
Fræðirit, frásagnir og handbækur