Bókatíðindi - 01.11.2023, Síða 68
KIL
Ný jörð
Að vakna til vitundar um tilgang lífs þíns
Höf: Eckhart Tolle
Þýð: Sigurður Skúlason
Er maðurinn sjálfum sér verstur? Lætur allt undan
í óstöðvandi græðgi mannsins, ótta hans og fávísi,
sem brýst greinilega fram í innbyrðis átökum manna,
í hryðjuverkum og stríði, í ofbeldi og kúgun, sem
einnig setur mark sitt á persónuleg samskipti og
sambönd? Hér er að finna vegvísi ekki aðeins að
betri lifnaðarháttum heldur að betri heimi.
300 bls.
Ugla
GOR
Sjálfsræktar dagbókin 2024
Höf: Inga Guðlaug Helgadóttir, Helga Fríður
Garðarsdóttir og Margrét Kristín Pétursdóttir
Þessa sjálfsræktardagbók má líta á sem ákveðið
verkfæri í þinni sjálfsvinnu fyrir árið 2024, árið sem
þú ætlar að fara Alla leið. Þessi bók er ætluð til þess
að þú setjir í forgang þína geðheilsu sem oftar en ekki
er aftarlega í forgangsröðuninni í dagsins amstri.
146 bls.
Bókafélagið
SVK
Velkomin í sorgarklúbbinn
Höf: Janine Kwoh
Þýð: Herdís M. Hübner
Bókin veitir huggun, tengingu, von og hughreystingu
öllum þeim sem hafa misst ástvin eða eru nánir
einhverjum sem syrgir. Bókin nálgast af samúð og
hreinskilni ýmsar hliðar sorgarinnar sem margir
upplifa en lítið er rætt um hve margvíslegar
og sveiflukenndar tilfinningarnar geta verið
– depurð, reiði, sektarkennd, gleði.
112 bls.
Bókafélagið
IB
Þakklæti
Dagbók sem leiðir þig í átt að aukinni hamingju
Höf: Erla Súsanna Þórisdóttir
Þakklætisdagbókin aðstoðar þig að beina athygli
að því góða sem nú þegar er í lífi þínu með
því að skrifa niður hvað þú getur þakkað fyrir.
Þakklætisiðkun eykur hamingju og kallar meira
inn í líf okkar til að vera þakklát fyrir.
176 bls.
Töfrakistan
IB
Kjarni kristinnar trúar
Höf: C. S. Lewis
Þýð: Andrés Björnsson og Þóra Ingvarsdóttir
Bókin er aðgengileg umfjöllun um það sem kristið
fólk trúir og ein hin vinsælasta sinnar tegundar.
Hún er safn einstakra útvarpserinda sem flutt voru
í síðari heimsstyrjöldinni. Höfundur setur fram
kraftmikil rök til varnar kristinni trú á þann hátt
sem höfðar til trúaðs fólks jafnt sem vantrúaðs.
192 bls.
Salt útgáfufélag
KIL
Krafturinn í núinu
Leiðarvísir til andlegrar uppljómunar
Höf: Eckhart Tolle
Þýð: Helgi Ingólfsson
Engin bók af andlegum toga hefur vakið jafn mikla
athygli á undanförnum árum. Höfundurinn glímdi
lengi við kvíða og þunglyndi þar til dag einn að hann
varð fyrir djúpstæðri reynslu sem færði honum
frið og ævarandi sálarró. Síðan hefur hann miðlað
þessari reynslu til fólks um víða veröld.
286 bls.
Ugla
IB
Lesið í tarot
Uppgötvaðu sögurnar í tarot-spilunum
Höf: Alison Davies
Þýð: Hafsteinn Thorarensen
Gakktu inn í dularfullan og kynngimagnaðan
heim tarot og uppgötvaðu töfrandi sögur á bak við
spilin í bók sem á sér enga líka. Sögurnar í bókinni
og þemu hvers spils nýtast þér til að fræðast um
leyndardóma tarot og dýpka skilning þinn svo að þú
getir tileinkað þér spekina sem spilin búa yfir.
228 bls.
Salka
IB
Lífið er kynlíf
Handbók kynfræðings um langtímasambönd
Höf: Áslaug Kristjánsdóttir
Mikilvægi góðs kynlífs í ástarsamböndum er óumdeilt.
Erfiðleikar í kynlífinu geta orðið banabiti sambanda
sem að öðru leyti eru farsæl og hamingjurík.
Áslaug Kristjánsdóttir kynfræðingur hefur áralanga
reynslu af meðferð para sem steytt hafa á skeri
á þessu mikilvæga sviði lífsins. Hér fer hún yfir
aðferðir sem virka til að gera kynlífið frábært.
246 bls.
Bókaútgáfan Á - Dreifing: Pappýr
SVK RAF
Lífið er staður þar sem bannað er að lifa
Bók um geðröskun og von
Höf: Steindór Jóhann Erlingsson
Eftir tæplega þrjátíu ára leit að bata tókst Steindóri
Jóhanni Erlingssyni loksins að snúa vörn í sókn
í baráttu sinni við ægivald þunglyndis og kvíða.
Allan þennan tíma höfðu þessar geðraskanir
fylgt honum sem áleitinn skuggi. Það var ekki
fyrr en hann fór að skoða þau áföll sem hann
hafði orðið fyrir að honum fór að batna.
217 bls.
Veröld
Ekki vera
bóklaus
á jólanó
góð
gjöf
Bóksala stúdenta, boksala.is
B Ó K A T Í Ð I N D I 2 0 2 3 GOR Gormabók HSP Harðspjalda bók HLB Hljóðbók IB Innbundin bók KIL Kilja RAF Rafbók G Sveigjanleg kápa68
Sálfræði, sjálfshjálp og andleg leiðsögn