Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1956, Page 10

Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1956, Page 10
8 5. gr. — Sameinað Alþingi kýs á fyrsta þingi eftir hverjar almennar alþingis kosningar fimm menn í tryggingaráð og aðra fimm til vara. Ráðherra skipar for- mann og varaformann tryggingaráðs úr hópi hinna kjörnu aðalmanna. Ráðherra ákveður þóknun tryggingaráðsmanna. 6. gr. — Tryggingaráð skal hafa eftirlit með fjárhag, rekstri og starfsemi Tryggingastofnunar ríkisins og gæta þess, að hún starfi í samræmi við lög og reglu- gerðir á hverjum tíma. Rísi ágreiningur um bætur, leggur trygg ngaráð úrskurð á málið. Leita skal samþykkis tryggingaráðs á: a. hinni árlegu fjárhagsáætlun stofnunarinnar; b. ársreikningum stofnunarinnar; c. ákvörðunum um iðgjaldaupphæðir; d. öllum heildarsamningum við lækna, sjúkrahús og önnur slík dvalarheimili; e. meginreglum um notkun heimildarákvæða; f. öllum lánveitingum og verðbréfakaupum og sölum; g. öðrum þeim atriðum, sem lög þessi ákveða. Þá getur forstjóri og borið önnur mál undir tryggingaráð, ef honum finnst ástæða til. Formaður tryggingaráðs hefur f. h. ráðsins stöðugt, daglegt eftirlit með starf- semi stofnunarinnar. 7. gr. — Vinnuveitendasamband íslands, AJþýðusamliand íslands, Stéttarsam- band bænda og Landssamband íslenzkra útvegsmanna skipa hvert um sig einn mann, sem hefur rétt til að taka þátt í umræðum tryggingaráðs og gera tillögur þegar skipt er í áhættuflokka og ákveðin iðgjöld atvinnurekenda til slysatrygginga. SkalTrygg- ingastofnuninni skylt að láta þeim í té allar upplýsingar, sem nauðsynlegar eru vegna þessa starfs. 8. gr. — Aðalskrifstofur Tryggingastofnunar ríkisins eru í Reykjavík. Utan Reykjavíkur skulu sýslumenn og bæjarfógetar annast umboðsstörf fyrir Tryggingastofnunina, hver í sínu umdæmi. Þóknun til sýslumanna og bæjarfógeta fyrir þessi aukastörf skal ákveðin í reglugerð, sem samin sé í samráði við forstjóra Tryggingastofnunarinnar og stjórn félags béraðsdómara. Ráðherra ákveður þátttöku Tryggingastofnunarinnar í skrifstofukostnaði sýslu- manna og bæjarfógeta vegna umboðsstarfa þessara. 9. gr. — Reikningar Tryggingastofnunar ríkisins fyrir síðast liðið ár skulu jafnan fullgerðir eigi síðar en 1. júlí ár hvert. Skulu þeir endurskoðaðir á sama hátt og reikningar annarra ríkisstofnana. Að lokinni endurskoðun og afgreiðslu tryggingaráðs, skulu reikningarnir sendir félagsmálaráðuneytinu, sem síðan lætur birta þá í B-deild Stjórnartíð- inda. Tryggingastofnunin skal gefa út árbók með sem gleggstum upplýsingum um alla starfsemi stofnunarinnar. II. KAFLI Lífeyristryggingar. A. Almenn ákvœði. 10. gr. — Landinu er skipt í tvö verðlagssvæði. Til fyrsta verðlagssvæðis teljast kaupstaðir og kauptún með 2000 íbúum eða fleiri, til annars verðlagssvæðis allir aðrir staðir á landinu. Heimilt er að færa sveitarfélag milli verðlagssvæða, ef rök- studdar óskir þess efnis koma frá hlutaðeigandi sveitarstjórn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176

x

Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins
https://timarit.is/publication/1877

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.