Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1956, Blaðsíða 17
15
38. gr. — Ef slys veldur dauða innan eins árs frá því, er það bar að höndum, skal
greiða dánarbætur sem hér segir:
a. Ekkja eða ekkill, sem var samvistum við hið látna eða á framfæri þess, hljóta
kr. 9000.00. Ef ekkja eða ekkill eru 50 ára eða eldri, eða hafa tapað 50% eða
meiru af starfsorku sinni, greiðist auk þess lífeyrir til dauðadags, kr. 4680.00 á
ári, miðað við 100% örorku eða 67 ára aldur. Lífeyrir lækkar um 2% fyrir hvert
1%, sem vantar á fulla örorku, eða 6% fyrir hvert ár eða brot úr ári, sem
vantar á, að lilutaðeigandi sé 67 ára.
b. Barnalífeyrir kr. 2400.00 fyrir hvert barn, sbr. að öðru leyti 17. gr.
c. Barn eldra en 16 ára, sem var á framfæri liins látna vegna örorku, þegar slysið
bar að höndum, fær bætur, eigi minni en kr. 3000.00 og allt að kr. 9000.00
eftir því, að live miklu leyti það naut stuðnings hins látna við fráfall hans. Þó
greiðast ekki bætur, ef örorka er minni en 33%. Sama gildir um systkini hins
látna þegar eins stendur á.
d. Foreldri hlýtur eigi minni bætur en kr. 3000.00 og allt að kr. 9000.00, eftir
því, að hve miklu leyti það naut stuðnings liins látna við fráfall hans.
Um fósturbörn og fósturforeldra, sbr. 16. gr., 3. mgr., gildir sama og um börn og
foreldra. Tryggingaráð úrskurðar, hvoru skuli greiða, foreldri eða fósturforeldii, ef
hvorutveggja eru á lífi.
Frá dánarbótum, sem greiddar eru vandamönnum, ber að draga þær öiorku-
bætur, er greiddar hafa verið samkvæmt 37. gr. vegna sama slyss. Lífeyrisgreiðslur,
sem inntar hafa verið af hendi, koma ekki til frádráttar.
39. gr. — Sé um að ræða dauðaslys lögskráðra sjómanna, skal auk bóta þeirra,
sem greiddar eru í eitt skipti fyrir öll, samkv. a-, c- og d-lið 38. gr., greiða þessar
grunnupphæðir:
1. Til ekkju eða ekkils, samkv. fyrri málslið a-liðs ............ ki. 14000.00
2. Til uppkomins barns eða systkinis, samkv. c-lið,
enda hafi hlutaðeigandi verið á framfæri hins látna
vegna skorts á starfsgetu...................... kr. 2000.00 til — 6000.00
3. Til foreldris, samkv. d-lið.................... — 2000.00 til — 6000.00
Ef viðbótarbætur þessar nema ekki fullum 6400 krónum samtals fyrir hvert
einstakt slys, skulu þær hækkaðar í þá upphæð.
Nú lætur hinn látni ekki eftir sig aðstandendur, sem rétt eiga til viðbótarbóta
samkv. 1.—3. tl. þessarar greinar, og skal þá bæta slysið með kr. 6400.00, sem skipt-
ast milli barna hins látna, er njóta lífeyris samkv. b-lið 38. gr., ef fyrir hendi eru,
ella til dánarbús hans.
40. gr. — Ráðherra getur ákveðið, að útgerðarmönnum skuli skylt að tryggja
gegn aukaiðgjaldi áhættu þá vegna bótaskyldra slysa, sem þeir bera samkvæmt
32. gr. laga nr. 41 19. maí 1930, þannig, að Tryggingastofnunin greiði hinum slasaða,
þegar dagpeningar eru greiddir samkvæmt 36. gr., einnig fullt kaup eða aflahlut
í eina viku frá afskráningardegi að telja.
41. gr. — Atvinnurekendur, sem vinna með verkafólki sínu eða starfa að eigin
atvinnurekstri við tryggingarskyld störf án þess að liafa launþega í þjónustu sinni,
eiga rétt á að tryggja sér með iðgjaldagreiðslu sams konar slysabætur og launþegar
njóta samkv. ákvæðum þessa kafla. Tryggingastofnunin ákveður iðgjald fyrir trygg-
ingar þessar.
Trygging samkv. þessari grein skal bundin við tiltekin nöfn og miðuð við
ákveðinn tíma, er eigi skal vera skemmri en 6 mánuðir. Tryggingin er því aðeins