Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1956, Blaðsíða 14
12
Nú eru liorfur á því fyrir árslok, að vísitala muni breytast verulega frá því, sem
gert var ráð fyrir, þegar iðgjöld og framlög voru ákveðin, og getur ráðherra þá
breytt framlögum og iðgjöldum til samræmis við væntanlega vísitölubreytingu.
Komi í ljós við reikningslok, að hið áætlaða framlag hefur orðið of hátt eða
ekki nógu hátt hjá einstökum þátttökuaðiljum samkv. 24. gr., skal áætlað fram-
lag hlutaðeigandi aðila fyrir næsta ár við það miðað, að leiðrétting náist.
26. gr. — Framlag ríkissjóðs til lífeyristrygginganna samkvæmt 24. og 25. gr.
skal greitt Tryggingastofnuninni með jöfnum mánaðargreiðslum fyrir 10. hvers
mánaðar.
27. gr. — Iðgjöld, samkvæmt b-lið 24. gr., greiða allir, sem búsettir eru í land-
inu, 16—67 ára að aldri. Undanþegnir gjaldskyldu eru þeir, sem hvorki greiða
tekju- né eignarskatt og hafa notið bóta samkvæmt þessum kafla annarra en fjöl-
skyldubóta, mæðralauna eða fæðingaistyrks tvo mánuði eða lengur eða dvalizt hafa
í sjúkrahúsi eða hæli á kostnað trygginganna eða ríkisframfærslunnar jafnlangan
tíma á skattárinu.
Skal iðgjald kvenna sem næst fjórðungi lægra en karla og iðgjald hjóna sem
næst einum tíunda hærra en karla.
Félagsmálaráðuneytið ákveður iðgjöldin með reglugeið fyrir næsta ár, um leið
og það staðfestir áætlun trygginganna, sbr. 25. gr. 2. mgr., að fengnum tillögum
tryggingaráðs.
28. gr. — Framlagi sveitarfélaga skal skipta niður á umdæmi kaupstaða og
sýslufélaga á eftirfarandi hátt:
a. Tveimur fimmtu lilutum framlagsins skal skipta niður í beinu hlutfalli við
samanlögð útgjöld lífeyristryggingarinnar í hverju umdæmi fyrir sig árið áður.
b. Tveimur fimmtu hlutum í hlutfalli við skattgjaldstekjur einstaklinga og félaga
í umdæminu samkvæmt síðasta skattframtali.
c. Einum fimmta hluta í lilutfalli við tölu íbúa á aldrinum 16—67 ára í umdæm-
inu um síðustu áramót.
Innan hvers sýslufélags skiptist framlagið á milli sveitaifélaganna, ef fleiri eru
en eitt, eftir þessum reglum:
a. Einn þriðji skiptist í beinu hlutfalli við skattgjaldstekjur einstaklinga og félaga
í sveitarfélaginu árið áður.
b. Einn þriðji í hlutfalli við fasteignamat allra eigna í sveitarfélaginu.
c. Einn þriðji skiptist í hlutfalli við fjölda íbúa á aldrinum 16—67 ára í sveitar-
félaginu um síðustu áramót.
Hafi sveitarsjóður eigi tekjur, sem tryggingargjaldi svarar, af þeim fasteign-
um, sem framlag sveitarfélags til tryggingasjóðs miðast við þegar því er skipt
milli sveitarfélaga innan sýslufélags, sbr. b-lið, er sveitarstjórn heimilt að leggja
á og innheimta hjá eigendum fasteignanna uppbæð, sem svarar því gjaldi, sem
sveitarsjóður greiðir þannig vegna þeirra.
Framlög sveitarfélaganna skal greiða ársfjórðungslega. Tryggingastofnunin
áætlar framlag hvers sveitarfélags í ársbyrjun, og eru gjalddagar síðasta dag hvers
ársfjórðungs, en lokaskil skulu gerð, þegar hlutur hvers sveitarfélags hefur verið
endanlega ákveðinn samkvæmt framansögðu.
Ríkissjóður ábyrgist framlög sveitarfélaganna.
Verði vanskil af hálfu sveitarfélags á greiðslu framlags lengur en þrjá mánuði,
skal það greiða dráttarvexti, 3/4 af hundraði fyrir hvern mánuð frá gjalddaga til
greiðsludags.
29. gr. — Framlagi atvinnurekenda, sbr. 24. gr. d., skal jafna niður á þá, sem
hafa í þjónustu sinni launþega, sbr. 32. gr., með iðgjöldum miðuðum við vinnu-