Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1956, Blaðsíða 31
29
nm kærur út af tekjuskatti. Yfirskattanefnd og ríkisskattanefnd skulu endurskoða
og leiðrétta gjaldskrárnar með sama hætti og skrár um tekju- og eignarskatt.
Gjalddagar iðgjalda skulu ákveðnir í reglugerð.
9. gr. — Iðgjöld vegna sjómanna og stjórnenda ökutækja og aflvéla skulu livíla
sem lögveð á lilutaðeigandi skipum, ökutækjum og aflvélum og ganga fyrir öllum
öðrum veðum en lögveðum fyrir gjöldum til ríkissjóðs og almannatrygginganna.
Iðgjöld vegna byggingar húsa og annarra mannvirkja skulu og hafa sams konar
veðrétt í eignum þessum.
10. gr. — Iðgjöld samkvæmt lögum þessum koma til frádráttar við ákvörðun
skattskyldra tekna samkvæmt lögum um tekju- og eignarskatt.
11. gr. — Sveitarsjóður skal greiða framlag til atvinnuleysistryggingasjóðs
jafnhátt álögðum iðgjöldum, sem samtals eru færð á sérreikning verkalýðsfélag-
anna í sveitarfélaginu. Framlagið skiptist milli sérreikninga félaganna og færist á
þá með sama hætti og iðgjöldin.
Tryggingastofnun ríkisins tilkynnir innheimtumönnum, hverjum fyrir sitt um-
dæmi, hver eru framlög sveitarfélaganna í umdæminu, strax og henni hafa borizt
skrár þær um skiptingu iðgjalda, sem um er rætt í 7. gr.
12. gr. — Ríkissjóður greiðir framlag til atvinnuleysistryggingasjóðs, er vera
skal tvöfalt hærra en álögð iðgjöld atvinnurekenda. Upphæð þessari skal skipt á
sérreikninga félaganna við sjóðinn og færð á þá með sama hætti og framlög sveitar-
félaganna.
Áætlað ríkissjóðsframlag greiðist ársfjórðungslega eftir á, en fullnaðarskil skulu
gerð, þegar iðgjöld atvinnurekenda hafa endanlega verið ákveðin.
13. gr. — Iðgjöld samkvæmt 6. grein skulu innheimt af þeim innheimtumönn-
um ríkisins, sem innheimta tekju- og eignarskatt. Tryggingastofnun ríkisins inn-
heimtii þó iðgjöld, sem ríkissjóði eða ríkisstofnunum her að greiða. Skulu ákvæði
laga nr. 46 14. apríl 1954, um tekjuskatt og eignarskatt, þar á meðal um dráttar-
vexti og lögtaksrétt, gilda um innheimtu iðgjaldanna, að svo miklu leyti, sem við
getur átt.
Um innheimtulaun af iðgjöldum þessum fer eftir launalögum Innheimtumenn
ríkisins annast innheimtu á framlögum sveitarfélaga, sbr. 11. gr., án endurgjalds.
Innheimta skal framlög sveitarfélaganna ásamt manntalsgjöldum og skal inn-
heimta hjá hverju sveitarfélagi sömu fjárhæð og gjaldast á í sveitarfélaginu samtals
samkvæmt 5. gr. Skulu innheimtumenn endurgreiða sveitarfélögunum það, sem þau
kunna að hafa ofgreitt, eða innheimta það, sem kann að vera vangreitt, þegar fyrir
liggur tilkynning frá Tryggingastofnun ríkisins um framlag þeirra samkvæmt 2. mgr.
11. greinar.
14. gr. — Úthlutun bótafjár fyrir hvert félag eða félagasamband sé undir stjórn
nefndar, sem skipuð er 5 mönnum, þrem frá verkalýðsfélagi eða sambandi, einum
af Vinnuveitendasambandi íslands og einum af Vinnumálasambandi samvinnu-
félaganna. Ef ekki næst einróma samkomulag varðandi úrskurði um bótagreiðslur,
getur hver einstakur nefndarmaður áfrýjað til stjórnar atvinnuleysistryggingasjóðs,
sem fellir endanlegan úrskurð um málið. Sá, sem sækir um bætur, getur jafnan
áfrýjað úrskurði úthlutunarnefndar til sjóðsstjórnar. Nefndirnar kjósa séi sjálfar
formann og ritara. Þær starfa eftir reglugerð, er þær semja eftir fyrirmynd, er
Tryggingastofnun ríkisins lætur gera. Ráðherra staðfestir reglugerðir þessar. Reglu-
gerð má því aðeins breyta, að leitað hafi verið álits úthlutunarnefndar.
Stjórn atvinnuleysistryggingasjóðs álcveður þóknun til nefndarmanna og úr-
skurðar reikninga um kostnað við nefndarstörfin, er [hvorutveggja greiðist úi sér-
reikningi hlutaðeigandi félags við atvinnuleysistryggingasjóðinn. Sameiginlegur