Heimili og skóli - 01.08.1952, Síða 6
50
HEIMILI OG SKOLI
Ásgeir Ásgeirsson
Fyrsti þjóðkjörni forseti íslands
Þann 1. ágúst s. I. var herra Asgeir
Ásgeirsson, fyrsti þfóðkiörni forseti
Islands, settur i embœtti með miklum
virðuleika, svo sem alþjóð er kunn-
ugt. Það er alveg sérstök ástœða til að
minnast hins nýja forseta í þessu riti,
þar eð hann kom mjög við sögu ís-
lenzkra skólamála um langt skeið.
Asgeir Ásgeirsson er fœddur 13. maí
árið 1894 í Kóranesi á Mýrum. For-
eldrar hans voru Ásgeir Eyþórsson,
kaupmaður þar, og Jensina Björg
Matthiasdóttir.
Asgeir varð stúdent frá Menntaskól-
anum i Reykjavik árið 1912 og kandí-
dat i guðfrœði við Háskóla íslands
árið 1913. Hann stundaði framhalds-
nám í guðfrœði og heimspeki við há-
skólann i Kaupmannahöfn og Upp-
sölum. Haustið 1918 varð hann kenn-
ari við Kennaraskóla íslands og gegndi
því starfi til ársins 1927. Árið 1926 var
hann skipaður fræðslumálastjóri, við
fráfall Jóns Þórarinssonar, og gegndi
hann þvi starfi til ársins 1931. En þá
varð hann fjármálaráðherra og siðar
forsætisráðherra. En liaustið 1934 tók
hann aftur við embætti fræðslumála-
stjóra og gegndi því til ársins 1938, er
hann var skipaður bankastjóri við Út-
vegsbankann.
Arið 1923 hóf Ásgeir utgáfu á nýju
riti um uppeldis- og skólamál, er hann
nefndi Menntamál. Var þar hreyft við
mörgu á sviði uppeldis- og kennslu-
mála, og sagt frá ýmsum merkum nýj-
ungum á því sviði. Það var ekki gróða-
vœnlegt á þeim árum, og er raunar
ekki enn, að gefa út slíkt rit, en þetta
sýnir áhuga Asgeirs á þessum máilum.
Rit þetta gaf hann einn út i 6 ár, eða
þar til hann varð forsætisráðherra, en
síðan eitt ár i félagi við nokkra kenn-
ara.
Asgeir Asgeirsson hefur gegnt marg-
háttuðum trúnaðarstörfum fyrir þjóð
sina og leyst þau öll vel af hendi. Þess
vegna hefur honum alltaf verið trúað
fyrir stærra og stærra pundi. Hann hef-
ur alltaf verið vaxandi maður, og slik-
um mönnum er gott að fela hinar
æðstu stöður.
Nú hefur Ásgeiri Ásgeirssyni verið
falið hið æðsta sæti í þjóðfélaginu, og
einnig það mun hann skiþa með sama
glæsileik og hin önnur.
Heimili og skóli biður lionum allr-
ar blessunar i sæti hins islenzka lýð-
veldisforseta, svo og allri fjölskyldii
lians.
H. J. M.