Heimili og skóli - 01.08.1952, Blaðsíða 41
HEIMILI OG SKÓLI
85
og stríði, er hún okkur margfalt dýr-
mætari. En þarna stendur skólinn
framarlega. Þar hefur kynslóð fram af
kynslóð allt til vorra daga, bæði í
borgum og byggðum, út við yztu sker
og innst til dala, setið svo margur
Bárður skólameistari, svo margur
gleymdur en geymdur kennari og
kennslukona, sem með lífi sínu og
kennslustarfi hafa verið með í að
byggja upp skapgerð, sem ætíð gerði
skyldu sína og lagði þar líf sitt að
veði. Við minnumst sjómannanna
okkar, við minnumst þeirra, sem féllu
í stríðinu, bæði heima og að heiman,
við minnumst þeirra, sem heldur
kusu fangelsi og fangabúðir en að
svikja land sitt. Við minnumst þeirra
allra með þakklæti og virðingu.
Nordal Grieg segir:
Vi er sá fá her i landet,
hver fallen er bror og ven.
Vi har de döde med os,
den dag vi kommer igen.
Við trúum á hina norsku þjóðar-
skapgerð. Framkoma vor á stríðsárun-
urn vakti heimsathygli. Við minnumst
með gleði ræðu Roosevelts, þar sem
hann eggjar þjóðirnar til að gefast
ekki upp. ,,Lítið á Noreg!“ var hvar-
vetna sagt. Og aftur hafa augu alls
heimsins hvílt á Noregi, og á ég þar
við Vetrar-Ólympíuleikana, sem hér
hafa staðið yfir. Þar virðist mér eitt
bera hæst, sem hlýtur að vekja okkur
Norðmönnum stolt og gleði, en það
er framkoma hinna norsku áhorfenda,
þegar hinar þýzku íþróttasveitir gengu
inn á íþróttavöllinn. Eftirtekt allra
heimsblaðanna beindist nú að þvi,
hvort við tækjum á móti þessum sveit-
um eins og sveitum annarra ríkja. Við
stóðumst prófið.
En fegurstu myndina hef ég geymt
þar til síðast, en það er hin eindregna
og einbeitta andstaða norsku kennara-
stéttarinnar gegn því að gera skólana
að nazistastofnunum. Nú þessa dag-
ana eru liðin 10 ára síðan það gerðist.
Þeir kusu heldur brottrekstur, upp-
sögn, Kirkenes heldur en að fá nasist-
unum æsku Noregs í hendur til að
hljóta nazistauppeldi. Þeir liafa um
aldur og ævi skrifað nafn sitt í sögu
Noregs, til ævarandi heiðurs fyrir stétt
sína.
FÁTT ER EINS LÍKLEGT
til að spilla fyrir skólagöngu barns-
ins og námi og það, að þvinga það til
náms, áður en það sjálft fær löngun til
þéss, en þó umfram allt áður en það
hefur þroska til þess.
K~'. - ' '"-■■■ —
HEIMILI OG SKÓLI
TIMARIT UM UPPELDISMAL
Útgefandi: Kennarafélag EyjafjarBar.
Ritið kemur út f 6 heftum á ári, minnst
24 síður hvert hefti, og kostar árgangur-
inn kr. 20.00, er grciðist fyrir I. júní.
Útgáfustjórn:
Snorri Siefússon. námsstjóri.
Hannes J. Magnússon, skólastjóri.
Páll Cunnarsson, kennari.
Afgreiðslu- og innheimtumaður:
Árni Björnsson, kennari, Þórunnar-
stræti 103, Akureyri.
Ritstjóri:
Hannes J. Magnússon, Páls Briems-
götu 20, Akureyri. Sími 1174.
Prentverk Odds Björnssonar h.f.
■v- ■ ........... .................