Heimili og skóli - 01.08.1952, Blaðsíða 38
82
HEIMILI OG SKÖLI
hans, eftir því sem mannfjöldi þjóðarinnar
og skólamenntun hennar eykst, vill aðal-
fundur S. N. B. leggja hina ríkustu áherzlu
á það, að hafizt verði handa hið allra fyrsta
í fyrirhugaðri endurbyggingu kennara-
skólans, sem veiti skólastarfseminni sem
allra fullkomnust starfsskilyrði, og að
jafnframt verði reistur æfingaskóli, sem til
þessa hefur vantað. Skorar fundurinn á
Alþingi, ríkisstjóm og þjóðina alla að veita
þessu bráðnauðsynlega máli liðsinni, svo
sem með þarf.“
Kosning stjómar S. N. B.: Formaður
Jón Þ. Björnsson, ritari, Garðar Jónsson,
gjaldkeri Hersilía Sveinsdóttir. — Vara-
stjórn: Gísli Gottskálksson, Magnús
Bjarnason, Pála Pálsdóttir.
Endurskoðendur: Marteinn Steinsson og
Guðjón Ingimundarson.
Fundurinn kaus Jón Þ. Bjömsson,
skólastjóra á Sauðárkróki, heiðursfélaga
sambandsins, en hann lætur af störfum á
þessu ári, vegna aldurs.
Kennaramótinu bárust ámaðaróskir frá
fræðslumálastjóra, Helga Elíassyni, og
biskupi íslands, herra Sigurgeir Sigurðs-
syni.
Flokkurinn, sem sigraði í sundkeþpninni
um Snorra-bikar Barnaskóla Akureyrar
á síðastliðnu hausti.