Heimili og skóli - 01.08.1952, Blaðsíða 8
52
HEIMILI OG SKOLI
fara utan og afla sér menntunar í Dan-
mörk.
}ón fór í kennaraskólann í Jóm-
strup árið 1905, og var þar við nánr í
3 ár og lauk þar prófi vorið 1908 og
hlaut 1. einkunn.
Á námsárum sínum í Danmörk
ferðaðist Jón um Norðurlöndin,
heimsótti skóla og aflaði sér þekkingar
á löndum og lýðum. Einnig var hann
á námskeiði við kennaraskólann í
Kaupmannahöfn.
Nú hafði Jón náð merkum áfanga.
Hann liafði aflað sér meiri og betri
menntunar en almennt gerðist meðal
kennara og gat nú valið um kennara-
og skólastjórastöður, hvort heldur sem
var í Danmörk eða á Islandi. Sjálf-
sagt hefur verið lokkandi að velja
,,hið brosandi land“, senr breiddi
faðminn móti ungum og efnilegum
manni. En eins og oft áður, sannaðist
hið fornkveðna, að „römm er sú taug,
er rekka dregur föðurtúna til“.
Hugur Jóns leitaði til landsins
kalda, heim í átthagana, þar sem æsk-
an átti minningar unr indælt vor. Þar
vildi hann starfa og una ævi sinnar
daga.
Og verkefnin vantaði ekki. Nýlokið
var við að reisa nýtt skólahús á Sauðár-
króki, og var Jóni boðin skólastjóra-
staðan við barnaskólann, og tók hann
því boði. Tók hann við skólastjórn
haustið 1908. Þá unr veturinn stofnaði
hann Unglingaskóla Sauðárkróks. Var
séra Árni Björnsson með honum í því
starfi, en Jón var skólastjóri beggja
skólanna. Jón tók upp ýmsar nýjung-
ar, svo sem söngkennslu, leikfimi,
mælingar á börnum o. fl.
Mun enginn barnaskóli á íslandi
hafa haft mælingar jafnlangan tíma,
og verða þær taldar merkileg heimild
um þroskun barna á þessu tíinabili.
Starf Jóns hefur jafnan mótazt a£
sterkri trú, dugnaði og árvekni.
Á námsárum sínum í Danmörk
varð Jón fyrir sterkum, trúarlegum
áhrifum, sem hafa varað æ síðan. Hef-
ur þessa mjög gætt í skólastarfi hans,
og er hann mikill áhugamaður um
kirkju og kristindóm, sem hann telur
að eigi að vera styrkustu stoðirnar í
lífsskoðun hvers hugsandi manns.
Enga menn þekki ég, sem hafa rækt
störf sín af meiri árvekni og skyldu-
rækni en Jón. Alltaf þessi vakandi
áhugi, hafa allt í reglu og láta ekkert
vanta.
Við, sem höfum verið nemendur
og starfsmenn Jóns, þekkjum þetta
bezt.
Það er gott að starfa með slíkum
manni, enda hafa samkennarar hans
inetið hann því rneira, sem þeir hafa
unnið lengur með honum.
Þó að kennslustörf hafi jafnan ver-
ið aðalstarf Jóns, gat ekki hjá því far-
ið, að honum væri falin ýmis trúnaðar-
störf fyrir bæjarfélagið. Er það næsta
eðlilegt, að menn vilji nota hæfileika
ungra efnismanna, enda var Jón kos-
inn í hreppsnefnd Sauðárkróks árið
1912, og sat þar í 24 ár, þar af odd-
viti í 21 ár.
Enda þótt fátækt væri mikil meðal
almennings á þessum árum og fjár-
hagsleg geta bæjarins lítil, var þó ýms-
um framfaramálum komið fram, svo
sem vatnsveita, bæjarbryggja og plan,
Sauðá virkjuð, jörðin Sauðá og Borg-
armýrar keypt og stórfelld ræktun haf-
in. Eru ntí um 100 hektarar í Sauðár-