Heimili og skóli - 01.08.1952, Blaðsíða 51
HEIMILI OG SKOLI
95
Truflun á þessum efnaskiptum getur
því eðlilega valdið truflun á þroska
fóstursins.
Þó að riboflavin sé nauðsynlegt fyr-
ir eðlilegan þroska fóstursins, þá er
ekki þar með sagt að allar ófrískar kon-
ur þurfi þess vegna að þamba mysu
eða sýru. Ef konan drekkur hálfan til
heilan lítra af mjólk á dag, fær hún
riboflavinþörf sinni fullnægt og auk
þess mörgum öðrum þörfum, því að
hún þarf ýmis eggjahvítuefni og stein-
efni auk vítamínanna. Fiskur og kjöt
er góð næring fyrir þungaðar konur og
góð regla er fyrir þær að borða lifur,
hjörtu eða nýru, að minnsta kosti einu
sinni á viku. Auk þess á hún að taka
lýsi í skammdeginu á hverjum degi og
einnig á sumrin, ef hún fer ekki út.
Vel nærð kona á hraustari og fall-
egri börn, betur gerð að flestu leyti en
þau verða, ef næring konunnar er lítil
eða ófullkomin. Það verður því aldrei
of rækilega brýnt fyrir verðandi mæðr-
um, hve mikilsvert er, að þær nærist
vel meðan þær ganga með börnin. Það
sannast hér sem endranær, að lengi
býr að fyrstu gerð.
í þessu sambandi má minnast á það,
að ekki er langt síðan farið var að gera
skurðaðgerðir á börnum sem fæðast
með hjartagalla. Vanskapanir á hjarta
eru engan veginn sjaldgæfar og jafnað-
arlega mjög alvarlegs eðlis, svo að
barnið getur lítt notið sín vegna
þeirra, þolir litla áreynslu og deyr
löngu fyrir aldur fram, oftast án þess
að geta stundað nokkra vinnu.
Nú eru gerðar skurðaðgerðir á
mörgum þessara barna með mjög góð-
um árangri, svo að þau þola miklu
betur alla áreynslu og geta lifað eðli-
legu lífi. Þessar aðgerðir má telja með
mestu framförum, sem orðið hafa í
læknisfræðinni í seinni tíð. Heilsu-
deild Sameinuðu þjóðanna hefur sent
lækna, sem sérstaka þjálfun hafa í þess-
um aðgerðum, til ýmissa landa til þess
að lækna slík börn og kenna jafnframt
læknunum í viðkomandi landi að gera
þessar aðgerðir. Þannig hafa þúsundir
barna verið skorin upp og fengið nýja
heilsu og betri eftir aðgerðina. Þessa
má h'ka minnast, þegar talað er um að
Sameinuðu þjóðirnar geri ekkert
gagn. Sannleikurinn er sá, að á vegum
þeirra er unnið mikið og nytsamt starf
á sviði heilbrigðismálanna, t. d. í sam-
bandi við berklaveiki og ýmsa hita-
heltissjúkdóma.
Aðgerðir við hjartagöllum eru eng-
an veginn hættulausar og aldrei verð-
ur það hjarta, sem þannig er lagfært,
eins gott og nýtt. Til þess að forðast
þessar og aðrar vanskapnir, þarf kon-
an að fara gætilega með sig. Ekki að-
eins síðustu mánuði meðgöngutímans,
heldur fyrst og fremst á fyrstu vikum
og mánuðum meðgöngutímans. Þá á
hún að halda sig frá margmenni og
eftir mætti frá öllum, sem geta smitað
Iiana af umgangskvillum. Hún þarf að
nærast vel og forðast tóbak og áfengi,
einkum þó tóbak, sem gera verður ráð
fyrir að hafi ill áhrif á fóstrið, eins og
hvert það eitur, sem veldur samdrætti
í æðum og því hætt við, að það geti
haft slæm áhrif á næringu fóstursins.
Það verður aldrei of rækilega brýnt
fyrir konum, að ef þær vilja eiga
hraust og efnileg börn, þurfa,þær að
hyggja vel að sér á meðgöngutíman-
um. Undir meðferð konunnar á sjálfri
sér er það komið, hvernig barnið