Heimili og skóli - 01.08.1952, Qupperneq 51

Heimili og skóli - 01.08.1952, Qupperneq 51
HEIMILI OG SKOLI 95 Truflun á þessum efnaskiptum getur því eðlilega valdið truflun á þroska fóstursins. Þó að riboflavin sé nauðsynlegt fyr- ir eðlilegan þroska fóstursins, þá er ekki þar með sagt að allar ófrískar kon- ur þurfi þess vegna að þamba mysu eða sýru. Ef konan drekkur hálfan til heilan lítra af mjólk á dag, fær hún riboflavinþörf sinni fullnægt og auk þess mörgum öðrum þörfum, því að hún þarf ýmis eggjahvítuefni og stein- efni auk vítamínanna. Fiskur og kjöt er góð næring fyrir þungaðar konur og góð regla er fyrir þær að borða lifur, hjörtu eða nýru, að minnsta kosti einu sinni á viku. Auk þess á hún að taka lýsi í skammdeginu á hverjum degi og einnig á sumrin, ef hún fer ekki út. Vel nærð kona á hraustari og fall- egri börn, betur gerð að flestu leyti en þau verða, ef næring konunnar er lítil eða ófullkomin. Það verður því aldrei of rækilega brýnt fyrir verðandi mæðr- um, hve mikilsvert er, að þær nærist vel meðan þær ganga með börnin. Það sannast hér sem endranær, að lengi býr að fyrstu gerð. í þessu sambandi má minnast á það, að ekki er langt síðan farið var að gera skurðaðgerðir á börnum sem fæðast með hjartagalla. Vanskapanir á hjarta eru engan veginn sjaldgæfar og jafnað- arlega mjög alvarlegs eðlis, svo að barnið getur lítt notið sín vegna þeirra, þolir litla áreynslu og deyr löngu fyrir aldur fram, oftast án þess að geta stundað nokkra vinnu. Nú eru gerðar skurðaðgerðir á mörgum þessara barna með mjög góð- um árangri, svo að þau þola miklu betur alla áreynslu og geta lifað eðli- legu lífi. Þessar aðgerðir má telja með mestu framförum, sem orðið hafa í læknisfræðinni í seinni tíð. Heilsu- deild Sameinuðu þjóðanna hefur sent lækna, sem sérstaka þjálfun hafa í þess- um aðgerðum, til ýmissa landa til þess að lækna slík börn og kenna jafnframt læknunum í viðkomandi landi að gera þessar aðgerðir. Þannig hafa þúsundir barna verið skorin upp og fengið nýja heilsu og betri eftir aðgerðina. Þessa má h'ka minnast, þegar talað er um að Sameinuðu þjóðirnar geri ekkert gagn. Sannleikurinn er sá, að á vegum þeirra er unnið mikið og nytsamt starf á sviði heilbrigðismálanna, t. d. í sam- bandi við berklaveiki og ýmsa hita- heltissjúkdóma. Aðgerðir við hjartagöllum eru eng- an veginn hættulausar og aldrei verð- ur það hjarta, sem þannig er lagfært, eins gott og nýtt. Til þess að forðast þessar og aðrar vanskapnir, þarf kon- an að fara gætilega með sig. Ekki að- eins síðustu mánuði meðgöngutímans, heldur fyrst og fremst á fyrstu vikum og mánuðum meðgöngutímans. Þá á hún að halda sig frá margmenni og eftir mætti frá öllum, sem geta smitað Iiana af umgangskvillum. Hún þarf að nærast vel og forðast tóbak og áfengi, einkum þó tóbak, sem gera verður ráð fyrir að hafi ill áhrif á fóstrið, eins og hvert það eitur, sem veldur samdrætti í æðum og því hætt við, að það geti haft slæm áhrif á næringu fóstursins. Það verður aldrei of rækilega brýnt fyrir konum, að ef þær vilja eiga hraust og efnileg börn, þurfa,þær að hyggja vel að sér á meðgöngutíman- um. Undir meðferð konunnar á sjálfri sér er það komið, hvernig barnið

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.