Heimili og skóli - 01.08.1952, Qupperneq 14

Heimili og skóli - 01.08.1952, Qupperneq 14
58 HEIMILI OG SKOLI ins og sveitabarnsins. Látum okkur gera ráð fyrir, að faðirinn sé iðnaðar- maður, fæddur og uppalinn í Reykja- vík. Maðurinn er í burtu frá heimil- inu 9—10 klukkustundir á dag í minnsta lagi, ef hann er svo heppinn að hafa vinnu. Vinni hann í einhverri verksmiðju, myndi það vera illa séð og jafnvel bannað, ef hann færi að stað- aldri að taka börn sín með sér til þess að kenna þeim verksmiðjuvinnuna. Vinnuveitandi myndi oftast benda verkamanninum á, að hann væri ráð- inn fyrir ákveðið tímakaup og ætti að vinna, en ekki að leika kennara. Auk þess eru mörg verksmiðjustörf svo ein- hæf, að sá, sem aðeins lærir eitt þeirra, er litlu nær um hvað atvinnulíf er eftir sem áður. III. Er bóklegt nám einhlitt? Hvað getur nú barnið gert til þess að afla sér fræðslu um atvinnulífið, áð- ur en það velur sér ævistarf? íbúðin, sem það býr í og næsta umhverfi, er venjulega þannig, að á því er litið sem ekkert að græða, hvað þetta snertir. Þegar það er sjö ára, fer það í skóla og lærir að lesa, skrifa og reikna, og smám saman bætast fleiri námsgreinar við. Sumt af þessu námi er eðlilegt, sjálf- sagt og mjög gagnlegt fyrir öll börn, sem ekki eru á lægri stigum fávitahátt- ar, en um þau gegnir alveg sérstöku máli. Hins vegar er mikið af bóklegu námi þýðingarlítið fyrir mikinn hluta barnanna. Ekki er fullsannað enn, hvort ókleift sé að haga bóklegu námi þannig, að það geti orðið nemendun- um að varanlegu gagni, þegar út í lífið er komið, Hitt kom í ljós við rannsókn- ir, sem bæði Svíar og Ameríkanar gerðu á nýliðum í hernum, að drengir, sem farnir voru úr skóla fyrir tveim til þrem árum, voru velflestir búnir að gleyma svo að segja öllu, sem þeir höfðu lært, eða áttu að læra í náttúru- fræði, sögu og landafræði og öðrum bóklegum námsgreinum, og í Svíþjóð voru nærri því 20 prósent allt að því ólæsir. Þeir gátu að vísu stafað eða stautað sig gegnum létt lestrarefni, en áttu mjiig erfitt með að gera grein fyrir efni þess. Heildarframmistaðan var þannig, að þeir voru stimplaðir sem ólæsir, en orðið ólæs þó sett innan gæsalappa í skýrsluna. Þessar niðurstöður þýða vitanlega ekki, að skólar eigi ekki fullan tilveru- rétt, en þær veita bendingu um, að rétt væri að athuga nákvæmlega, hvað þýð- ir að kenna öllum fjöldanum í skólum og hvað ekki. Við íslendingar eyðum stórfé á okkar mælikvarða til fræðslu- mála, 'en við höfum látið undir höfuð leggjast að rannsaka, hvað er virkilega gagnlegt af því, sem við kennum. Að vísu göngum við undir próf, en prófin sýna aðeins, hvað við getum sagt eða skrifað um ákveðið efni á ákveðnum degi, en þau segja ekkert um, hvað við getum sagt eða skrifað um hið sama efni eftir nokkur ár og þaðan af síður, hvaða gagn við höfum af þessu, þegar út í lífið kemur. Fyrir nokkrum árum var gerð mjög merkilega tilraun í Danmörk. Átta þjóðkunnir menn, þar af nokkrir menn með embættispróf og jafnvel doktorsgráður frá Hafnarháskóla,voru látnir ganga undir miðskólapróf. Ár- angurinn var skjótt sagt sá, að þeir féllu allir, en sá skársti, sem er pró- fessor í lögum, hefði getað skriðið inn

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.