Heimili og skóli - 01.08.1952, Qupperneq 17

Heimili og skóli - 01.08.1952, Qupperneq 17
HEIMILI OG SRÓLI 61 kennarar, foreldrar og atvinnurekend- ur sendi unglinga til sálfræðinga til þess að fá úr því skorið, hvaða starf sé líklegast handa hinum eða þessum. V. Starf sálfrœðingsins. Þegar unglingurinn kemur til sál- fræðingsins, er fyrsta sporið að ræða vinsamlega við hann um daginn og veginn, en haga þó samræðum þannig, að hægt sé af tali hans að fá nokkra hugmynd um hæfileika hans og hugð- arefni. Unglingurinn útfyllir svo eyðublað, þar sem hann veitir ýmsar upplýsingar um sjálfan sig. Næsta skrefið er að tala við foreldra eða aðra nána vandamenn, kennara og skóla- stjóra. Hafi unglingtirinn einhverja ákveðna ósk um starfsval, ber einkurn að athuga, hvort nám hans gefi til kynna, að hann hafi þá hæfileika, sem þarf til þess að geta unnið það starf, sem hann óskar sér. Jafnframt þessu er unglingurinn greindarprófaður og síð- an rætt við hann á víð og dreif um starfsvalið. Ef til vill hefur þessi at- hugun þegar leitt í ljós, að öll líkindi séu til þess, að unglingurinn hafi valið rétt, og er þá starfi sálfræðingsins lok- ið. Oft getur þó leikið vafi á, að svo sé, og liggur þá leiðin í sérstaka stofn- un, þar sem unglingurinn er hæfnis- prófaður sem kallað er. Þessar stofn- anir kallast á öllum Norðurlöndum Psykoteknisk institut og eru þúsundir unglinga prófaðir þar árlega. Hæfni prófin eru fjölda mörg, enginn er prófaður með þeim öllum og veltur það á því, hvað menn ætla að verða, hvaða próf er lagt fyrir þá. Vitanlega þurfa sálfræðingarnir að vita upp á hár, hvaða eiginleika er krafist af mönnum við þetta eða hitt starfið, til þess að geta veitt leiðbein- ingar að gagni. Þurfa þeir því að hafa stöðugt samband við fólk, sem vinnur í atvinnulífinu, til þess að geta fylgst með öllum nýjungum, sem þar eru að gærast. Oft kemur það í ljós við hæfnipróf, að unglinga skortir ýmislegt til þess að geta numið það, sem þeir hafa hug á Sem dæmi má nefna, að litblindur maður getur ekki orðið stýrimaður né skipstjóri, orðblindur maður getur ekki orðið prentari, þann sem svimar mjög, skyldi sízt hvetja til þess að læra húsasmíði, taugaveiklað fólk ætti ekki að fást við kennslu o. s. frv. Þótt þetta séu í sjálfu sér sjálfsagðir hlutir, getur gengið mjög illa að koma unglingun- um og þó einkum foreldrunum í skiln- ing um, að staðreyndir séu þessar, en ekki aðrar. Eitt af því, sem vinnusál- fræðingar eiga alltaf við að stríða, er álit foreldra,sem ákveða ævistarf barna sinna, jafnvel áður en þau fæðast. Slík- ir loreldrar eru oft duglegt og heiðar- legt fólk, sem með dugnaði og atorku hafa brotið sér braut úr fátækt til bjargálna. Þeim leikur hugur á, að börnin komist enn þá lengra og ákveða til dæmis, að þau eigi að verða stúdent- ar og leggja stund á háskólanám, stundum er jafnvel ákveðið, að dreng- hnokki eigi að verða prestur eða lækn- ir áður en hann er skírður. Svona ákvarðanir geta orðið börnunum að ótrúlega miklu tjóni. Ef til vill sam- þykkja þau algerlega ákvarðanir for- eldranna, en þegar á hólminn er kom- ið. skortir hæfileika og áhuga og jafn- vel hvort tveggja. Verða það vitanlega öllum aðilum mikil vonbrigði, ef

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.