Heimili og skóli - 01.08.1952, Blaðsíða 20
64
HEIMILI OG SKÓLI
faðir hans, Lárus Rist og börn hans,
gefið Akureyrarbæ býlið Botn. Hver
tilgangur gjafar þessarar sé, sést bezt á
gjafabréfinu, sein er svohljóðandi:
Háttvirta bæjarstjórn Akureyrar-
kaupstaðar!
Leyfið mér að leggja frækorn í þann
akur, sem þér hafið til umhirðu. Bið
ég yður að taka til eignar og umráða
jörðina Botn í Hrafnagilshreppi og
nýta í þeim tilgangi að hjálpa foreldr-
um í bænum að koma börnum sínum
í tengsl við Iífið og gróandann í nátt-
úrunni.
förðina hef ég tekið að erfðum eft-
ir Jóhann son minn, sem fórst af slys-
förum í Englandi á síðastliðnum vetri.
Hafði hann af ræktarsemi við feður
sína og byggðarlag varið nokkru af því
fé, sem honum hafði áskotnazt í sigl-
ingum, til jarðarkaupanna. Átti hann
og við feðgar háar hugmyndir um
verklegar umbætur á jörðinni og vild-
um auk þess koma til liðs við menn-
ingarmálin í héraðinu, sem gjarnan
vilja verða útundan í matarstritinu.
Það eru þessar hugsjónir, sem ég tel
mér skylt að sjá borgið og eru mér
meira virði en peningar, og nú, þegar
hann er fallinn frá og starfsdagur
minn að kveldi kominn, sé ég enga
leið jafnörugga og jafnkæra og þá, að
Akureyrarbúar vildu notfæra sér jörð-
ina til að kenna þar unglingum vinnu-
brögð við jarðrækt, heyvinnu, garð-
rækt og trjárækt, allt eftir aðstæðum
þeim og skilyrðum, sem jörðin getur í
té látið.
Þetta hugsa ég mér að yrði fram-
kvæmt eitthvað á þá leið, að komið
yrði á fót sérstakri stofnun, vinnu-
skóla, og yrði yfirstjórn hans og
ábyrgð að hvíla á herðum bæjarstjórn-
arinnar. Framkvæmdir annist þriggja
eða öllu heldur fimm manna nefnd,
sem skipuð væri kennurum og jarð-
ræktarmönnum úr kennarastétt, sem
kunnir eru að áhuga fyrir ræktun lýðs
og lands. Bæjarstjórnin skipi einn eða
fleiri menn í nefndina, og eigi væri
óeðlilegt, að skólastjóri barnaskólans
væri sjálfkjörinn, en aðrir nefndar-
menn yrðu valdir af félagi barnakenn-
ara, félagi skógræktarmanna og síðast,
en ekki sízt, væri rétt, að félagasam-
bönd kvenna ættu fulltrúa í nefnd-
inni, því að þau hafa um langt árabil
gengið ötullega fram í því, að koma
börnum til sumardvalar í sveit og
þekkja vel, hvar skórinn kreppir að.
Stofnun þessi yrði styrkt af fé bæjar-
ins, en þróun hennar og þrif hlytu að
mestu leyti að vera háð fómfýsi og
frjálsu framtaki borgaranna.
Á jörðinni hvíla engin veð, og laus
er hún í næstu fardögum.
Skilyrði frá minni hendi eru engin
önnur en þau, að jörðina, einstaka
hluta hennar eða mannvirki, má ekki
selja, heldur sé unnið að vexti stofn-
unarinnar og viðgangi, svo að hún
þjóni sem bezt þeim tilgangi, sem ég
nefndi í upphafi bréfsins.
Mínar sérstöku óskir til yðar eru:
1. Að samningar takist við bóndann,
Halldór Kristjánsson, sem setið
hefur jörðina s. 1. fjögur ár, um að
hann nytji jörðina áfram næsta ár,
meðan þeir aðilar, sem við taka, eru
að kynnast staðháttum og átta sig
á verkefninu, sem liggur fyrir. Hef-
ur Halldór með fjölskyldu sinni,