Heimili og skóli - 01.08.1952, Page 37

Heimili og skóli - 01.08.1952, Page 37
HEIMILI OG SKÓLI 81 Meiri hluti mótsgesta að Laugum. að áfraxnhald verði á þeirri útgáfu og treystir því, að myndir af skáldum og öðr- um merkismönnum þjóðarinnar, svo og ýmsum sögustöðum, komi út áður en skól- ar byrja í haust.“ II. Landsprófin: „Fimmta þing Sambands norðlenzkra barnakennara, haldið að Laugum í Reykjadal, lítur svo á, að vinna beri að því smátt og smátt í framtíðinni, að draga úr hinum almennu prófum barnaskólanna, t. d. ársprófum, og jafnframt leggja ríka áherzlu á það, bæði í orði og verki í öllu skólastarfinu, að prófin eru aðeins tæki, eða aðferð, en aldrei takmark. Varðandi hin almennu landsprófsverk- efni barnaskólanna í móðurmáli og reikn- ingi vill þingið taka þetta fram: 1. Ósamræmi er á milli námsskrárinnar og reikningsverkefnisins varðandi 7 ára og jafnvel 8 ára bömin. Námsskráin gerir ráð fyrir, að 7 ára bömum sé aðeins kennd meðferð talnanna frá 1—20, en reiknings- verkefnið hefur nálega engin slík talna- sambönd, og er þó 7 ára bömum gert að taka reikningspróf. 2. Þá telur þingið, að hin mikla einhæfni í reikningsverkefnum frá ári til árs geti freistað til vélrænna vinnubragða í kennslunni, en slíkt ber þó vitanlega að varast 3. Þingið telur það til miklla bóta, að við málfræðiprófið hefur verið bætt nokkrum spurningum bókmenntalegs eðlis, og telur, að slíkt beri að auka, þannig, að milfræði og bókmenntaverkefni verði til helminga, ef ekki þykir þá henta að hafa prófin tvö, enda sé þá jafnframt aukin kennsla í bók- menntasögu þjóðarinnar, eins og hæfa þykir bömmn. 4. Þá telm þingið, að við einkunnagjöf í lestri beri að leggja enn meiri áherzlu á réttan og fagran lestur en nú er gert, svo sem við verður komið. 5. Ekki fellir þingið sig við það, að önn- ur prófverkefni séu notuð við landspróf í Reykjavík en annars staðar á landinu, og lítur svo á, að sömu verkefni beri að nota um allt land í þeim greinum, sem lands- prófskyldar eru.“ III. Bindindismál: „Aðalfundur Sambands norðlenzkra barnakennara samþykkir að skora á út- varpsráð að ætla bindindissamtökunum í landinu ákveðinn tíma vikulega í ríkisút- varpinu framvegis." IV. Kennaraskóli íslands: „Með því að Kennaraskóli íslands býr enn við sama húsnæði og honum voru bú- in af vanefnum fyrir 44 ámm, en gera verður hins vegar sívaxandi kröfur til

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.