Heimili og skóli - 01.08.1952, Qupperneq 49

Heimili og skóli - 01.08.1952, Qupperneq 49
HEIMILI OG SKÓLI 93 Yerður unnt að forðast vanskapanir? Vart mun nokkur ógæfa verða for- eldrum þyngri raun en sú að eignast vanskapað barn. Það er ömurlegt að sjá fávita eyðileggja heimilislífið, átak- anlegt að sjá barn fæðast blint eða heyrnarlaust, svo að það verður þá jafniramt mállaust og næsta raunalegt að sjá barn fæðast með hjartað svo vanskapað, að þegar það fer að ganga, blánar það af áreynslunni við að hlaupa yfir stofugólfið. Þetta eru þær vanskapanir, sem algengastar eru, en auðvitað eru missmíðin miklu fleiri, þótt ekki séu þau öll jafn alvarleg. í nýrum eru þau t. d. tiltölulega algeng, svo að læknirinn þarf ávallt að reikna með þeim möguleika, að annað nýrað Unglingareglan hefur ekki haft neinn sérstakan hátíðisdag. Afmælis- dagur hennar, 9. maí, er ekki heppi- legur til hátíðahalda, því að þá standa próf yfir í flestum skólum. En síðast- liðinn vetur var haldinn hátíðlegur í barnastúkunum fyrsti sunnudagur í febrúar, — sem þá bar upp á 3. febrú- ar. Minntust barnastúkurnar þessa dags á ýmsan hátt, og er ætlunin að svo verði framvegis. Fyrir áhrif þessara viðsjálu tíma er allmikið af íslenzkri æsku ofurselt tó- baks- og áfengisnautn á mismunandi stigi. Þetta er sorgleg staðreynd. Gegn þessu böli vinnur Unglingareglan markvisst. Hún vinnur starf sitt á kristilegum grundvelli. Takmark hennar er: Heilbrigð, bindindissöm ícska. vanti eða sé ónýtt, því að um það bil einn af hverjum 200 hefur verulega vansköpun á öðru eða báðum nýrum. Til skamms tíma hafa menn ekki vitað nein ráð til þess að koma í veg fyrir vanskapanir né heldur til þess að bæta úr þeim. En á síðustu árum hef- ur dálítil skíma borizt í þennan dimma kafla læknisfræðinnar. Fyrir 10 árum tók ástralski læknir- inn Gregg eftir því, að konur, sem fæddu blind börn, höfðu fengið rauða liunda snemma á meðgöngutímanum. Síðan hefur komið í ljós, að hjartað getur vanskapazt og eyrað eyðilagzt með sama móti, svo að barnið verður heyrnarlaust og mállaust. Eins og kunnugt er, þá eru rauðir hundar tal- inn svo meinlaus sjúkdómur, að ekki sé ástæða til að taka hann neitt alvar- lega. En ef þessi meinlausa sótt getur valdið svo alvarlegum vansköpunum, hvers mætti þá ekki vænta um þá, sem meiri eru og ganga nær sjúklingnum? Rauðir hundar stafa af virus, sem get- ur smogið æðar fylgjunnar og þannig borizt til fóstursins. Margar aðrar sótt- ir stafa af virus, sem vitanlegt er að geta borizt sömu leið, svo sem hettu- sótt, mislingar og hlaupabóla. Verið gæti að virus, sem veldur alvarlegri sjúkdómi, geri út af við fóstrið, svo að konunni leysist höfn, og að hún losni þannig við að eignast vanskapað barn, en að meinlítið virus, eins og það, sem veldur rauðum hundum, valdi vægri sýkingu í fóstrinu, sem það getur lifað af, en skilji eftir sig missmíði.

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.