Heimili og skóli - 01.08.1952, Side 50

Heimili og skóli - 01.08.1952, Side 50
94 HEIMILI OG SKÓLI Síðan Gregg birti rannsóknir sínar, árið 1941, hafa menn séð svo mörg dæmi þess, hvernig rauðir hundar geta valdið vansköpun, ef konan fær þá á fyrstu mánuðum meðgöngutímans, að rétt er talið að losa konuna við fóstrið, ef hún veikist af rauðum hundum á fyrstu mánuðum meðgöngutímans. Hins vegar hafa menn ekki tekið eftir því, að aðrar sóttir, svo sem misl- ingar eða hettusótt, eigi neinn veru- legan þátt í því að vera valdur að van- sköpunum, þótt enn sé fullsnemmt að kveða upp algeran sýknudóm yfir þess- um sóttum. Þá er vitað að næring konunnar kemur mikið við sögu í þessu tilliti. Rússneski læknirinn Ivanowsky veitti því athygli 1923, að er hungursneyð gekk yfir landið, jókst fjöldi þeirra bama, sem fæddust fyrir tímann eða andvana og að óskapnaðir og hvers konar vanskapnaðir urðu algengari. I Indlandi og Japan hefur B-vítamín- skorti oft verið kennt um, hve mikið fæðist þar af börnum andvana, fyrir tímann og með ýmsa vanskapnaði. Með tilraunum hafa menn sýnt fram á, að vöntun á einum þætti í fæðu móðurinnar getur haft áhrif á afkvæmið. Þannig sýndu Romanoff og Bauernfeind fram á það 1942, að fót- leggir afkvæmanna verða stuttir ef móðurina skortir riboflavin (þáttur af B-vítamíni, sem er í mysu og gefur henni gula litinn). Fyrir rúmum ára- tug koniust Warkany og Nelson að þeirri niðurstöðu, að rottur, sem aldar eru á riboflavinsnauðu fóðri eignast afkvæmi með meira eða minna ófull- komna beinagtind. Hjá þriðjungi af- kvæmanna fundu þeir greinileg lýti á beinagrindinni, svo sem óeðlilega stutt bein í neðri kjálkanum, stutt bein í fótleggjum eða framfótum, svarandi til framhandleggs mannsins. Á mönn- um eru það mjög mikil lýti, ef neðri kjálkinn er vanþroskaður, svo að hök- una vantar að kalla má. Konur, sem hafa óbeit á mjólk, þegar þær ganga með barn, ættn að reyna að drekka sýru eða mysu til þess að forðast slíka vansköpun á bami sínu. Fyrir kemur, að börn fæðast með öll bein miilbrotin og deyja í fæðingunni eða fæðast andvana. En þessi vansköp- un getur verið á lægra stigi, þannig að barnið fæðist lifandi og vex upp, en bein þess eru einlægt að brotna. Það má ekki stíga ógætilega út úr rúmi sínu, hvað þá detta, ef ekki á að brotna í því eitthvað bein. Þótt þessi börn geti náð fullorðinsaldi, er hætt við, að þau verði örkumla af beinbrotum. Ný- lega hefur indverskur læknir, sem unnið hefur við rannsóknarstofnun í Liverpool, sýnt fram á, að unnt er að framkalla slíkar vanskapanir í kjúkl- ingum með því að dæla insulini inn í eggið meðan það er að ungast út. Ef tiltölulega stórum insulinskammti (0.05—6 einingum) er dælt inn í rauð- una á 3.-6. degi, kemur vanþroski í beinin og þeim hættir til að brotna, mismunandi mikið eftir því hve miklu hefur verið dælt. Sérstaklega vildi brotna sköfnungsbeinið neðan til, oft- ast í egginu, en einnig eftir að unginn var skriðinn út úr egginu, svo að sýni- legt var, að þessi tilhneiging hélzt lengi á eftir. Insulin flýtir fyrir brennslu kol- vetna, en B-vítamín eru nauðsynleg til að kolvetnin geti klofnað og brunnið.

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.