Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1976, Blaðsíða 19

Læknaneminn - 01.03.1976, Blaðsíða 19
fruinum síSan víxlað milli gjafanna. Fræðilega séð ei'u viss vandkvæði á þessari aðferð. Aðfengnu eitil- frumurnar hafa líka sterka ofnæmisvirkni gegn eðli- legum vefjamótefnavökum æxlisgjafans og geta því ráðizt á hvaða vef sem er. Ennfremur eru þessar eitilfrumur sjálfar sterkir mótefnavakar, er leiða til kröftugrar ónæmissvörunar viðtakandans, er leiðir til eyðileggingar þeirra. Yið fyrstu notkun gætu þær lifað stuttan tíma og sumar ráðist á æxlisvöxtinn. Frekari flutningar eitilfrumna frá sama gjafa myndu hins vegar sennilega leiða til eyðileggingar þeirra í hlóðrásinni, vegna ofnæmis gegn þeim. Fyrri snert- mg ónæmisþegans við hvaða vefi eitilfrumuþegans sem er, æxlisvefur meðtalinn, myndi leiða lil ofnæm- issvörunar og stórminnka lífsmöguleika aðfengnu eitilfrumnanna. Hins vegar er ekki vitað, hvort að- fluttar eitilfrumur flytji með sér ónæmisboð til ó- næmiskerfis frumuþegans. Þannig boð gæli virkjað eitilfrumur þegans, jafnvel þótt hinar aðfengnu frumur eyðilegðust. Flutningur allogenískra eitil- fiumna beinl úr heilbrigðum gjöfum, eða eftir rækt- un, hefur byggzt á þeirri ályktun, að e. t. v. flyttu þær eitthvert „eðlilegt“ æxlisónæmi til þegans. Há- tnark þessarar aðferðar er flutningur beinmergs í sjúklinga með brátt hvítblæði, ekki eingöngu í stað mergsins, sem eytt hefur verið, t. d. með geislun, heldur líka til að hagnast á hinni sterku „höfnunar- svörun“ er kemur fram hjá ígrædda mergnum gegn sjúkum frumum þegans. Flutningsþáttur (Transfer jactor) og RNA (Mynd ?)■ Beint framhald af flutningi allogenískra eitil- frumna með hugsanlegum „fyrirmælum“, er tilbún- ]ngur og notkun frumulausra upplausna, er innihaldi slík fyrirmæli til ónæmiskerfis þegans. Flutnings- þáttur og RNA, er leyst hafa verið úr eitilfrumum, bafa verið notuð í þessum tilgangi. Hægt er að flytja sérhæft ónæmi til eitilfrumna in vitro, eða mnstaklinga in vivo á þennan hátt. Endanleg tengsl RNA-uppla usna og flutningsþáttar eru ekki þekkt. Þótt þau séu efnafræðilega ólík, er ónæmisvirkni þeirra nægilega lík, til að leiða líkur að því, að RNA-lausn in feli í sér flutningsþáttinn, e. t. v. bund- inn einhverju öðru efni. Eftir að Lawrence lýsti fyrst að mögulegt væri að flytja tuberculin-ofnæmi milli einstaklinga með efni, er hann nefndi „flutningsþátt“, var í mörg ár lítið Mynd 7. ASjengið ónœmi með flutningsþœtti eða RNA: Ejnið unnið úr eitilfrumum „tœknaðs“ sjúklings A, gejið sjúklingi B, eða eitilfrumur hans „frœddar“ in vitro og síðan skilað aftur. vitað frekar um hlutverk hans í ónæmiskerfinu. Ný- lega hefur hann verið notaður til meðferðar á lang- varandi candidia slímhúðarsýkingum, víðtækum hnattsveppasýkingum (disseminated coccidioimyc- osis), berklum, ýmsum ónæmisskortssjúkdómum, schistosomiasis, holdsveiki og krabbameini. Flutn- ingsþáttur er polypeptíð með lágan mólikúlþunga (10.000). sem tengt er RNA. Notkun hans gerir kleift að flytja „ónæmisboð“ frá eitilfrumum, án flutnings þeirra sjálfra. Hann veldur ekki eigin ó- næmissvörun og ber ekki HL-A mótefnavaka, er myndu Ieiða til eyðileggingar hans í hýslinum. Enn- fremur er afar mikilvægt, að flutningsþáttur flytur einungis frumulægt ónæmi, en ekki upplýsingar til mótefnamyndunar. Þýðingarmikil spurning samfara ónæmismeðferð er, hver skuli vera eitilfrumugjafi við framleiðslu á flutningsþætti. Hagstæðasti gjafinn er sjúklingur, sem hefur læknazt af eigin æxli og hefur eitilfrumur, sem húa enn yfir hinum nauðsynlegu upjilýsingum. Erfilt er þó að vita, hvort slíkur sjúklingur hafi 13 læknaneminn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.