Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1976, Síða 45

Læknaneminn - 01.03.1976, Síða 45
Lungnaþjálfun María Ragnarsdóttir, sjúkraþjálfi I eftirfarandi grein verður leitast við að kynna lungnaþjálfun, uppruna, aðferðir innan lungnaþjálf- unar og notkun þeirra í grófum dráttum. Þó verður ekki farið út í lýsingu á meðferð ákveðinna sjúk- dómshópa og þeim sérvandamálum, sem fylgir hverjum þeirra. Tekið verður fram, hvaða atriði kandidat ber að hafa í huga, er hann/hún skrifar beiðni um öndunaræfingar. Aherzla er lögð á mikil- vægi öndunaræfinga fyrir aðgerð. Þegar á síðustu öld gerðu menn sér Ijóst, hve djúp öndun með manuel stuðningi á thorax var mikilvæg við meðhöndlun lungnasjúkdóma. Þetta kemur fram í þýzkum kennslubókum frá þeim tíma, en skipuleg lungnaþjálfun hófst þó ekki fyrr en 1930-40. Braut- ryðjandi á þessu sviði var Miss Linton á Brompton sjúkrahúsinu í London. Aðferðir hennar mynduðu grundvöll fyrir þróun lungnaþjálfunar í öðrum löndum. Hér á landi var byrjað með lungnaþj álfun í kringum árið 1960 og hefur verið í hægfara þróun síðan. Má til dæmis nefna, að reglulegar launaðar gæzluvaktir sjúkraþjálfara á Landspítalanum hófust í mai 1971. Lungnaþjálfun er samheiti fyrir öndunaræfingar, hóstatækni, bank, vibrationir, fráveitustellingar, sog, bag -squeezing og I.P.P.B. með vibrationum. Verður nú þessara aðferða getið hér á eftir. Ondunarœfingar Ondunaræfingar eru mikilvægur liður i lungna- þjálfun. Það eru æfingar, sem miða að því að hreyfa brjóstkassann og þar með lungun, þannig, að ventila- tionin verði sem mest. Við djúpa öndun minnkar hlutfall dead space og súrefnisupptaka eykst. Þar að auki auka þrýstingssveiflur í brjóstkassanum blóð- streymið í lungnablóðrásina og hafa þannig áhrif á súrefnisupptöku og koldioxiðútskilnað. Með því að kenna sjúklingi með öndunarörðug- leika rétta öndun, er hægt að bæta almennt ástand hans töluvert. I byrjun andar sjúklingurinn rétt af ásettu ráði, en með mikilli æfingu á hann að geta andað rétt ósjálfrátt. Það er þó háð því skilyrði, að hann sé ekki haldinn alvarlegum lungnasjúkdómi, eins og emphysem, sem hindrar eðlilega öndun. Ondunaræfingar eru eftirfarandi æfingar: 1. Diafragmatiskar öndunaræfingar. 2. Lateral-basal expansionsæfingar. 3. Efri-lateral expansiaonsæfingar. 4. Apical expansionsæfingar. Hér verður ekki skýrt frá hvernig æfingarnar eru framkvæmdar eða hvaða neurofysiologiskar stað- reyndir liggja á bak við þær aðferðir, sem sjúkra- þjálfarinn notar til þess að örva djúpa öndun. Ilóstatæhni Þetta orð er notað hér fyrir „huffing“ á ensku og „stpdning" á dönsku. Hóstatækni er djúp innöndun og síðan kröftug löng útöndun með opin raddbönd. Með því „rúllar“ sjúklingurinn sliminu upp án mikillar áherzlu og án þess að um eiginlegan hósta sé að ræða. Með því að nota hóstatækni, getur sjúklingurinn sjálfur losað slímið og náð því upp án mikils hósta, sitji það ekki mjög fast. Með þessu móti getur hann líka fundið hvort laust slím er í lungunum eða ekki. Þetta er ákaflega mikilvægt fyrir alla sjúklinga, sem liggja á sjúkrahúsi með acut slímaukningu í lungum, en er líka mjög mikilvægt fyrir sjúklinga með króníska slímmyndun t. d. bronchitis-asthma-emphysem. I ndicationir: Slím í berkjum (eða grunur um slím). Fyrirbygging. læicnaneminn 35

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.