Læknaneminn


Læknaneminn - 01.03.1976, Blaðsíða 49

Læknaneminn - 01.03.1976, Blaðsíða 49
J bæklingi, sem undirrituð fékk í heimsókn sinni til Brompton stendur m. a. um I.P.P.B. ,,A Brompton sjúkrahúsinu er Bird Mark 7 önd- unarvél notuð og þykir ómetanleg við meðhöndlun sjúklinga, sem eru mjög veikir og alveg ófærir um samvinnu (t. d. status asthmaticus, athugasemd höf- undar). Framleiðendur gefa út mjög yfirgripsmiklar leið- beiningar um notlíun öndunarvélarinnar. Sjúkra- þjálfun er ekki nefnd, en á Brompton sjúkrahúsinu hefur okkur reynzt meðferðin miklu árangursríkari, ef sjúklingum, sem geta unnið með, er kennt að nota öndunaræfingar meðan þeir eru í öndunarvél- inni. An öndunaræfinga hættir sjúklingunum til að láta öndunarvélina yfirfylla (over-inflate) efri hluta brjóstkassans. Við meðferð ruglaðra sjúklinga, sem ®ru ófærir um samvinnu, þarf tvo sjúkraþjálfara, annar heldur maskanum þétt fyrir vitum sjúklingsins og handstýrir (handtrigger) vélinni ef nauðsyn kref- ur, hinn hristir brjóstkassann við útöndun (vihra- Bonir, athugasemd höf.).“ Atriði, sem kandidat þarf að hafa í huga er hann skrifar beiðni um lungnaþjálfun. Eins og augljóst er af því, sem að ofan greinir, er mikilvægt að greina frá hvaða öðrum sjúkdóm eða sjúkdómum sjúklingurinn er haldinn en þeim, sem tneðhöndla á með lungnaþjálfun. Þetta er nauðsyn- legl til þess að sjúkraþjálfarinn viti hvort einhverjar aðferðir lungnaþjálfunar eru contraindiceraðar og hvernig almennt ástand sjúklings er, hve mikið álag hann þolir. Sjúkraþjálfarinn hefur auðvitað aðgang að öllum upplýsingum um sjúklinginn í dagál (jour- nal), en þar sem beiðnin er oft akut er oft ekki Þmi til að leita þeirra. Einnig er mikilvægt að fram komi, ef sjúklingur hefur verið á steroidameðferð í langan tíma, þar sem því fylgir osteoporosis og er þá hætta á að sjúkraþjálfarinn rifbrjóti sjúklinginn ef hún/hann veit ekki um þetta. Ef sjúklingurinn hefur infiltrat í lungum eða atelectasis skiptir mikfu niáli hvar, ef meðhöndlun á að vera árangursrík. Þetta er svo augljóst að ekki ætti að þurfa að taka það fram, en engu að síður fáum við beiðnir sem á stendur „atelectasis punktur“. Mjög gott er ef rönt- genlýsing fylgir beiðni (sem líka kemur fyrir), þar sem sjúkraþjálfarar hafa ekki alltaf greiðan aðgang að röntgenmyndum og tími er oft naumur. Mi/iilfd'f/i prœoperativrfi ötidunar- «>fiitf/« Árangur lungnaþjálfunar er mjög háður sam- vinnu sjúklingsins og eru því leiðbeiningar sjúkra- þjálfarans mjög mikilvægar. Kenna þarf sjúklingnum og vekja áhuga hans á að æfa sig sjálfur eins oft og hægt er. Þess vegna er mjög áríðandi að fá sjúk- linga til meðferðar þó ekki væri nema einu sinni til tvisvar fyrir aðgerð, þegar hægt er að koma því við. Það getur verið erfitt að fá góða samvinnu við sjúkling, sem er nývaknaður eftir uppskurð og hefur ckki hugmynd um hvað þetta brölt með hann á að þýða. Og jafnvel þó sjúkraþjálfari og hjúkrunar- fræðingur séu öll af vilja gerð til að útskýra mikil- vægi málsins, er varla von að hann sé mjög móttæki- Iegur fyrir þeim röksemdum undir þessum kringum- stæðum. Þess vegna skila þær mínútur sem fara í præoperativa meðferð margföldum hagnaði í formi færri postoperativra lungnakomplicationa. HEIMILDIR: Chest, Heart and Vascular Disorders for Physiotherapists 1975. Johan E. Cash, Physiotherapy for Medical and Surgical Thoracic, Conditions, Brompton Hospital. Lungefysioterapi, Munksg&rd 1974, Ulla Ingwersen, Danske Fysioterapeuter nr. 18 1975. Myndlistarþáttur Þættinum liejur aðeins borist ein mynd. Drátt- hagur maður að vestan sendi okkur hana, en hún heitir „Köttur í góðu skapi“. læknaneminn 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.