Læknaneminn - 01.04.1985, Side 61
Á Grænuborg. Takið eftir skuplu Meistarans, hún var sögð saumuð úr
gömlum nærbuxum.
sér standa því fólk hóf þegar að
tína uþp úr vösum sínum slita og
snjáða miða og troða þeim í
stimpiiklukku sem staðsett var aft-
ast í vagninum. Þegar bigletti con-
troli komu að okkur settum við upp
sparibrosið bak við sólgleraugun
°9 „þörlluðum puko italiano" og
sluppum með skrekkinn. Við
keyptum miða eftir þetta og bárum
á okkur til notkunar við hátíðleg
tækifæri.
Ströndin var strönd og með
Þeim ósköpum gerð að það kost-
aði cingve milla lire inn en á henni
voru aðeins ítalir. Þetta kom sér
vel því staffið heiðraði útlending-
ana með því að hleypa okkur frítt
inn. Gífurlegt úrval ítalskra ung-
meyja var á ströndinni og kom
karlpeningnum saman um að
vaxtarlag þeirra og annað líkam-
Jegt atgervi væri með ágætum.
Italskir karlmenn fara með meyjar
sínar sem húsgögn. Einn sem
svipaði helst til Jóns Páls í vexti
kom á ströndina í fylgd smámeyj-
ar er fékk vinsamlegast að halda á
sólstólnum hans (hún hafði
engan) og beauty-boxi. Síðan
skrapp hún öðru hverju eftir öli og
öðrum nauðsynjum. Okkur Eyþóri
varhugsað til Ellu Bárðar.
Egyptar áttu sinn fulltrúa og var
hann sem aðrir Egyptar barn i
hugsun. Sléttum fimm mínútum
eftir komu hans til Palermo var
hann búinn að snúa öllu við. Hann
fékk nýja ruslatunnu (sú gamla
var Ijót), millistykki fyrir útvarpið
sitt svo hann gæti hlustað á
egypsku fréttirnar áður en hann
færi að sofa því hann treysti ekki
mafíunni. Hann var efstur í sínum
bekk, fallegastur o.s.frv. Allt var
betra í Egypt en á Sikiley, þeir
höfðu jafnvel sérstaka menn í að
pússa styttur svo þær yrðu ekki
grænar eins og Ijótu ítölsku stytt-
urnar. Pólverjarnir lentu með hon-
985 - 38. árg.
um á deild og höfðu á orði að lík-
lega gætu allir læknar deildarinn-
ar farið í frí þennan mánuð, því
Mohamed var vanur að segja „at
home we do it better". Pólarnir
voru hressir en jafnframt andskoti
stríðnir, þeir höfðu kannað hug
Muhameðs til kynlífs og hafði
hann reynst allnokkur en miðaðist
að sögn við hjónaband. Þegar pól-
arnir spurðu um afstöðu til „pre-
marrige sex“ svaraði hann opin-
myntur „how is that possible?":
Eitt sinn tókst Pólverjunum að fá
hann inn í kvikmyndahús og þeg-
ar sýningin hófst reyndist myndin
úr hófi erótísk, þá spratt minn
maður upp og taldi sér ekki líft
þarna inni vegna mafíunnar sem
sæti um líf sitt.
Mánudagurinn rann upp, sól
skein í heiði og kom það öllum á
óvart. Hópurinn tók strætó að Pol-
iclinico Palermo en það sjúkrahús
er rekið af bænum, stærð þess
vissi enginn aðspurður. Er við
nálguðumst sjúkrahúsið leyndi ná-
lægð þess sér ekki því allstaðar
voru menn á hvítum sloþþum á
þönum úti í góða veðrinu og það
langt niður í bæ. sjúkrahúsið var
samsett úr mörgum clinicum
dreifðum í litlum húsum með fjór-
um til fimm deildum. Við lentum á
clinic með Pólsku pari auk Golgi
hinni tyrknesku.
Læknar staðarins tóku á móti
okkur en töluðu enga ensku. Einn
þeirra var látinn hafa orö fyrir
þeim. Hann gat sagt „We open
people down there“ og átti víst við
skurðstofur. Hann stormaði niður
í kjallara með okkur en þar voru
herbergi loftkæld. Við komum
fyrst inn í herbergi sem í var sími á
stól og fullt af verkfærum sem líkt-
ust helst þeim tólum sem maður
sér notuð á skurðstofum. Þetta
líktist helst flóamarkaði „og allt á
útsölu". Þarna réði ríkjum „hjúkk-
an í kring" sem í þessu tilfelli var
karlmaður í fallegum grænum
LÆKNANEMINN i/i'
59