Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 40

Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 40
40 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023 Guðmundur Líndal Pálsson vann fyrsta vinninginn í happdrætti á sumarhátíð Íslandrover í Árbliki í Dalabyggð um síðustu helgi, sem var Land Rover frá 1962. Sjálfur átti Guðmundur Land Rover, mjög sambærilegan þeim sem hann vann á dögunum, en seldi fyrir nokkrum árum. Hann hefur séð eftir þeirri sölu alla tíð og er því himinlifandi að vera kominn með annan í hendurnar. „Ég sel þennan bíl ekki frá mér, eins og ég gerði með hinn,“ segir Guðmundur. Hann er búsettur nokkra kílómetra frá mótsstaðnum og átti því auðvelt með að koma fengnum heim. Keypti 36 miða „Ég keypti svolítið marga miða – ég skal viðurkenna það,“ segir Guðmundur, en hann og fjölskyldan festu kaup á 36 miðum. Hann gerði sér engar vonir um að hreppa vinninginn, enda versluðu flestir mótsgestir nokkra miða, og sumir mjög marga, þar sem verðið var einungis þúsund krónur. Fólki var frjálst að kaupa eins marga miða og það vildi. Eina skilyrðið var að viðkomandi væri á staðnum og tæki strax við bílnum eftir útdrátt. „Það er alveg dýrðlegt að keyra þetta – maður fer svo langt aftur í tímann. Maður sest inn og það kemur einhver sérstök lykt sem er alltaf í Land Rover,“ segir Guðmundur. Hljóðið frá vélinni minnir á gamlar Massey Ferguson dráttarvélar og ekki kemur til greina að flýta sér, enda komast bílarnir ekki mikið hraðar en 70–80 kílómetra á klukkustund.„Ég hef gaman af því að keyra um á svona gömlum bílum. Það er flott að vera á þessu hérna innan sveitar og skrölta á þessu í vinnu eða búðina. Það er alltaf tekið eftir manni,“ segir Guðmundur. Hann er vélvirki og starfar sem verkstjóri hjá Vegagerðinni í Búðardal. Núna telur Land Rover-safn Guðmundar þrjá bíla, en fyrir á hann Land Rover Discovery frá 1998 og Range Rover frá 1972. „Nú get ég valið bíl eftir því í hvernig skapi maður er,“ segir Guðmundur. Í nokkuð góðu standi Þótt bifreiðin sé rúmlega sextug, þá er hún í nokkuð góðu standi, þar sem Land Rover- feðgarnir frá Akureyri, Óttar Ingason og Hrannar Ingi Óttarsson, voru búnir að lappa talsvert upp á hann. Helst má nefna að þeir skiptu um hvalbak og fóru yfir bremsur og rafkerfi. Guðmundur vonast því til að geta komið bílnum í gegnum skoðun fyrir lok sumars. Það helsta sem þarf að gera er að sjóða í eða skipta um aftasta hlutann af grindinni, sem er illa farin af ryði. „Ég myndi allavega ekki hengja kerru aftan í þetta. Hún myndi vera fljót að yfirgefa þig,“ segir Guðmundur og hlær. Guðmundur hefur ekki getað keyrt bílinn mikið, þar sem hann glímir við meiðsl á fæti og á erfitt með að beita þungri kúplingunni. Hann tók þó smá rúnt við mótsvæðið og segir Guðmundur bílinn vera afar góðan og að hann hafi ekki fundið alvarlegt slit í fljótu bragði. Guðmundur og sonur hans festu spotta við bílinn til að koma honum heim, þó hann gæti keyrt á eigin vélarafli. Ekki var um langan veg að fara, en Guðmundur og fjölskylda búa í Efri-Hundadal, sem er skammt frá Árbliki. Klár fyrir næsta mót Guðmundur segist ætla að mála bílinn, en hann glímir við þá togstreitu að þurfa að velja réttan lit. Upphaflega var bíllinn blár og það sé ákveðin sjarmi í að gera bílinn eins upprunalegan og hægt er. Hins vegar finnst honum dökkgrænn mun flottari. Fjölskyldan mun þurfa að komast að niðurstöðu fyrr en síðar, enda hefur Guðmundur sett stefnuna á að gera bílinn mjög góðan í vetur og keyra á honum á sumarhátíð Íslandrover á næsta ári. Guðmundur hefur alla tíð verið mikill áhugamaður um Land Rover, en hann er alinn upp á sveitaheimili og kynntist hann bílategundinni í gegnum foreldra sína. Hann hefur verið félagi í Íslandrover frá því nokkrum árum eftir að klúbburinn var stofnaður fyrir 20 árum. Enn fremur hefur Guðmundur reynt að mæta á allar sumarhátíðir Íslandrover, þar sem félagsskapurinn sé sérlega skemmtilegur. Guðmundur segir að þetta sé mikið fjölskyldusport. Foreldrar hans búa á bæjartorfunni og er hann oft að hjálpa föður sínum með viðgerðir á gömlum Range Rover- bílum. „Svo er ég búinn að smita öll börnin, þau eru orðin vitlaus í þetta – vilja öll fá að keyra gamla bílinn. Konan var líka furðu ánægð að ég skuli hafa unnið þetta, þó þetta kostaði meiri vinnu.“ Auðvelt að fá varahluti „Ég mæli með því að allir sem eiga svona bíla upp til sveita reyni að koma þeim á götuna,“ segir Guðmundur. Það sé óþarfi að henda þessum bílum þó þeir séu orðnir lélegir, enda auðvelt að fá varahluti á góðu verði og þetta þurfi ekki að vera dýrt áhugamál. /ÁL LÍF&STARF Vann gamlan Land Rover – Ætlar að mæta á honum á næstu sumarhátíð Íslandrover Land Roverinn er í mjög góðu standi miðað við að vera rúmlega sextugur. Hvalbakurinn er til að mynda laus við ryð. Mynd / ÁL Guðmundur Líndal Pálsson og Ingibjörg Anna Björnsdóttir, frá Efri-Hundadal, eru nýir eigendur gamals Land Rover. Mynd / Ingibjörg Gunnlaugsdóttir HURÐIR Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is • Stuttur afhendingartími • Hágæða íslensk framleiðsla • Val um fjölda lita í RAL-litakerfinu • Vindstyrktar hurðir Bílskúrs- og iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir Iðnaðarhurðir með gönguhurð Bílskúrshurðir Hurðir í trékarma Tvískiptar hurðir Smíðað eftir máli Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf Félagasamtökin Beint frá býli (BFB) standa fyrir fögnuði þann 20. ágúst næstkomandi í tilefni 15 ára afmælis félagsins. Afmælishátíð verður haldin á sex stöðum á landinu með ólíku sniði eftir aðstæðum. Verkefnisstjóri þeirra er Oddný Anna Björnsdóttir framkvæmdastjóri. „Tilgangur afmælishátíðanna er að vekja athygli á hugmyndafræði beint frá býli og þeim heimavinnsluaðilum sem eru í slíkri starfsemi hér á landi og eru í félaginu.“ Gestgjafarnir eru Jóhanna Bergmann Þorvaldsdóttir á Háafelli í Hvítársíðu fyrir Vesturland, Halldóra Ragnarsdóttir og Jóhann Pétur Ágústsson á Brjánslæk á Barðaströnd fyrir Vestfirði, Sigrún Helga Indriðadóttir á Stórhóli í Skagafirði á Norðurlandi vestra, Arna Mjöll Guðmundsdóttir og Fjóla Kim Björnsdóttir í Holtaseli í Eyjafjarðarsveit fyrir Norðurland eystra, Þorbjörg Ásbjörnsdóttir á Lynghóli í Skriðdal fyrir Austurland og Sölvi Arnarsson og Ísak Eyfjörð í Efstadal II í Bláskógabyggð fyrir Suðurland. Gestir kynnast lögbýli þar sem starfsemi beint frá býli fer fram og geta notið þess sem þar er boðið upp á, ásamt ýmsu fleiru í tilefni dagsins. Félagsmenn landshlutans munu mæta til að kynna og selja sínar vörur. Viðburðurinn fer fram milli kl. 13–17 og er haldinn í samstarfi við landshlutasamtök hvers landshluta og markaðsstofu Vestfjarða. Nánari upplýsingar má nálgast á vef Beint frá býli og á samfélagsmiðlum /ghp Beint frá býli boðar fögnuð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.