Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 62

Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023 VÉLABÁSINN Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is Bændablaðið fékk á dögunum til prufu splunkunýjan Volkswagen Amarok. Þetta er önnur kynslóð pallbíla með þessu nafni frá þýska bílaframleiðandanum, en sú fyrri gat sér góðan orðstír. Amarok myndi teljast til millistórra pallbíla og keppir þá helst við Toyota Hilux, Isuzu D-Max og Ford Ranger. Þróun Amarok var unnin í nánu samstarfi við bandaríska bílaframleiðandann Ford. Þessi pallbíll situr á sama undirvagni og notar sömu vél og drifrás og Ford Ranger. Á móti fær Ford að nýta undirvagninn sem Volkswagen þróaði fyrir rafmagnsbílinn ID.3. Engir boddíhlutir eru sameiginlegir með Ranger og er innréttingin alfarið runnin úr ranni Volkswagen. Ef einhver hefur náð tökum á smíði pallbíla, þá er það Ford, á meðan sá framleiðandi sem er einna bestur í að setja saman notendavænar innréttingar er Volkswagen. Niðurstaða þessa samstarfs getur því ekki verið annað en góð. Myndarlegur í persónu Volkswagen Amarok er einn þeirra bíla sem lítur mun betur út í persónu en á myndum. Útlitið er kraftalegt, með stóru grilli og háu húddi. Það þarf enginn að vera í vafa um að þetta sé Volkswagen, því Amarok minnir um margt á aðra jeppa frá sama framleiðanda, eins og Tiguan. Svo er VW merkið í miðju grillsins á stærð við kökudisk. Bíllinn sem Bændablaðið fékk til prufu var af Pan Americana útgáfunni, sem er næstdýrasta týpan og með öllum þeim búnaði sem hugurinn girnist. Enn fremur var Hekla búin að setja 32 tommu dekk undir bílinn, sem var hægt að gera án breytinga. Stór dekkin gera útlitið enn kraftalegra en ella. Þótt Amarok sé með fágaða hönnun, þá er þetta vinnubíll. Að aftan er stór pallur, nógu breiður til að rúma EURO-bretti á þverveginn. Innrétting fyrir augað Þegar sest er um borð tekur á móti manni týpísk Volkswagen innrétting. Allar línur og hlutföll eru úthugsuð og er hún mikið fyrir augað. Enn fremur virðist allt vera vel skrúfað saman og smíðað til að endast. Í miðju innréttingarinnar er stór margmiðlunarskjár sem snýr ekki á breiddina, heldur hæðina. Volkswagen fékk stýrikerfið að láni frá Ford, en hefur breytt öllu viðmótinu þannig að það lítur út eins og allt annað frá Volkswagen. Að mörgu leyti er þetta gott margmiðlunarkerfi – til að mynda tekur enga stund að tengja síma þráðlaust með Android-Auto eða AppleCarplay – en það hefur líka nokkra galla. Þar má helst nefna að engir hnappar eru til að stjórna miðstöð. Því þarf ökumaðurinn að beina óþarflega mikilli athygli til að hitta akkúrat rétt á snertiskjáinn og fara í gegnum öll þau skref sem nauðsynleg eru til þess eins að stilla blásturinn. Á móti þessu vegur stór kostur, sem er frábært 360° gráðu myndavélakerfi. Þótt Amarok sé stærðarinnar bifreið, þá er leikur einn að leggja henni, þar sem margmiðlunarskjárinn sýnir skýrar og bjartar myndir úr öllum áttum. Það er mikil synd að mynda- vélakerfið nýtist ekki þegar ekið er utanvegar, en það er fljótt að slökkva á sér um leið og ekið er áfram. Duglegur á jeppaslóðum Amarok er prýðilegur torfærujeppi. Það er býsna hátt undir bílinn og eru 32 tommu dekkin, sem Hekla setti undir, með öflugu gripi. Í þjóðvegaakstri er Amarok almennt í afturhjóladrifi, en með snúningstakka í miðjustokknum er hægt að velja fjórhjóladrif, læsa millikassa og setja í lága drifið. Jafnframt kemur bíllinn með driflæsingu að aftan. Þegar ekið er niður brekkur er hægt að láta bílinn halda hraðanum rafrænt við 3–4 kílómetra hraða, en hann fer hraðar niður brekku í fyrsta gír í lága. Afslappandi þjóðvegabíll Ein sterkasta hlið Amarok er hversu góður bíllinn er á þjóðvegum. Ökumannshúsið er vel hljóðeinangrað og er algjörlega á pari við fólksbíla frá Volkswagen. Fullkomin akstursaðstoð, eins og skynvæddur hraðastillir og akreinavari, er staðalbúnaður. Þjóðvegaakstur er því afslappandi. Sætin eru með rafmagns- stillingum og ættu lágir sem háir að geta komið sér vel fyrir. Rétt er þó að nefna að sjálf sessan er full stutt og stíf, sem gerir ökumanninn þreyttan í lærunum eftir langan akstur. V6 vélin er öflug og er bíllinn enga stund að ná hámarkshraða. Þegar gefið er inn heyrist þýður ómur sem einkennir sex strokka vélar. Tíu þrepa sjálfskiptingin er hnökralaus og maður veit ekkert af henni. Í lausagangi berst nokkur titringur frá vélinni inn í ökumannshúsið, sem minnir mann á að Amarok er í grunninn vinnubíll. Tölur Helstu mál Amarok eru: hæð, 1.884 mm; breidd, 1.917 mm; lengd, 5.390 mm. Burðargeta á palli er 1.000 kg og er dráttargetan 3.500 kg. Verðið á Amarok Life, með minni vél og sjálfskiptingu, er 10.790.000 kr. Volkswagen Amarok Pan Americana er á 14.390.000 kr. án stærri dekkja. (Verð með vsk.) Að lokum Volkswagen Amarok er góður pallbíll og veitir öfluga samkeppni á sínum markaði. Allir pallbílar eru vinnutæki, en Volkswagen hefur náð að fela það að mestu með þykku lagi af fágun og þægindum. Sterkustu hliðar Amarok eru þær að þetta er pallbíll með aksturseiginleika á þjóðvegum og í þéttbýli á pari við Volkswagen Golf. Amarok hefur ágæta eiginleika til utanvegaaksturs, en á markaðnum eru margir jeppar sem eru umtalsvert öflugri torfærutæki. – Prufuakstur á Volkswagen Amarok Amarok er vinnutæki með stórum palli. Á milli hjólaskálanna er nægt rými fyrir EURO-bretti á þverveginn. Hekla setti 32 tommu dekk undir bílinn, sem gerir hann kraftalegan á að líta og gefur góða torfærueiginleika. Önnur kynslóð Volkswagen Amarok mun veita öðrum pallbílum öfluga samkeppni. Kraftmikil þriggja lítra dísilvél, öflugt fjórhjólakerfi og þægileg innrétting eru meðal helstu eiginleika. Myndir / ÁL Innréttingin er mjög sambærileg þeim sem eru í öðrum Volkswagen bifreiðum. Margar stillingar eru í sætum og stýri, en sessan er í styttra lagi. Þrír fullorðnir geta setið án mikilla vandræða í aftursætunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.