Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
Á Refsmýri í Fellum eru, auk hunda, sauðfé, geitur, hestar og hænur. Einnig er stunduð skógrækt á jörðinni. Agnes
Klara Ben Jónsdóttir heldur hér á Samoyed-hvolpum úr hundaræktun sinni og fá þeir reglulega bað og blástur.
Fimm ára heimasætan Glódís Tekla fylgir sínum dýrum gegnum þykkt og
þunnt. Hér er hún, heldur betur verkleg, í sauðburði.
öll skemmtilega ólík, hvert á sinn
hátt, og þau geri lífið í sveitinni
krefjandi og skemmtilegt.
„Við erum að vinna í að gera
almennilega baðaðstöðu og svæði
fyrir hundana núna eftir heyskap.
Ætli fæðingarorlofið hjá Björgólfi
fari ekki bara í það ásamt öðrum
sveitaverkum,“ segir hún brosmild.
„Einnig höfum við verið með
tvo heimalninga; Höskuld í fyrra
og í ár er það hann Þröskuldur. Þeir
hafa báðir talið sig vera hunda og
taka, ásamt hundunum, fagnandi
á móti okkur þegar við komum
í hlað. Félagarnir hafa fengið
mikla athygli á samfélagsmiðlum
hjá mér og þar sem ég er með
marga erlenda ræktendur á mínum
miðlum þá hafa allir mjög gaman
af því hvað lífið hjá okkur er
frábrugðið þeirra lífi.“ Finna má
þá miðla undir nafninu nordurdals
á Instagram og Facebook.
Bað og blástur í sveitinni
Þá er einmitt komið að því að
spyrjast fyrir um hundaræktunina.
Þau hafa flutt inn flesta hunda
sína, m.a. frá Hollandi, Rússlandi,
Svíþjóð, Serbíu og Frakklandi.
„Við erum með þrjár tegundir;
Samoyed, Pomeranian og franskan
bolabít. Við höfum ræktað
Samoyed í ellefu ár og verður
elsta gotið okkar því ellefu ára
í haust. Samoyed er yndisleg
fjölskyldutegund sem er ekki
bara falleg heldur með yfirvegað
og gott skap,“ segir Agnes og bætir
við að þau hafi mest sýnt Samoyed
en hinar tegundirnar minna. Þau
eru að sögn einu skráðu ræktendur
að Samoyed-hundum á landinu.
„Við erum með margfalda
sýningameistara og löngu búin
að missa yfirsýn yfir það,“ segir
hún enn fremur. „Fyrst og fremst
eru þau samt skítugir hundar sem
eru hvítir og sveitahundar. Svo að
bað og blástur er mjög reglulega í
gangi hjá okkur!
Við förum á, má segja, allar
sýningar sem eru fyrir sunnan
og gengur oftast ljómandi vel en
aðallega erum við að fara fyrir
félagsskapinn og hafa gaman með
hundunum okkar. Við eigum síðan
von á einum gullmola á næstu
mánuðum, frá Kanada, en hann
hefur verið í Hollandi í að verða
ár, á sýningum,“ segir hún.
Á þessum hásumartíma, þegar
annríki er í bústörfum og flestir
leika við hvern sinn fingur í
sumarblíðunni, segir Agnes
sveitina yndislega. „Friðsældin
og náttúran heilla mann algjörlega.
Ég veit ekkert betra en að horfa
yfir sveitina mína og drekka inn
fegurðina. Okkur langar allavega
ekkert að fara, enda er þetta
það besta sem við gerðum fyrir
dóttur okkar sem hænir öll dýr
umsvifalaust að sér. Það er svo
fallegt að sjá samband hennar við
öll dýrin. Ég gæti því ekki hugsað
mér að búa öðruvísi í dag,“ segir
Agnes að lokum.
Viðburðir í tilefni 15 ára afmælis félagsins 20. ágúst kl. 13-17
Beint frá býli dagurinn um land allt
Verið velkomin að njóta þess sem býlið sem hátíðin er haldin á hefur uppá að bjóða
og kynnist framleiðendum svæðisins sem verða á staðnum með vörur sínar.
Fjölbreytt dagskrá. Nánari upplýsingar á www.beintfrabyli.is.
Vesturland: Háafell geitfjársetur, Hvítársíðu
Vestfirðir: Brjánslækur, Barðaströnd
Norðurland vestra: Stórhóll, Skagafirði
Norðurland eystra: Holtsel, Eyjafjarðarsveit
Austurland: Lynghóll, Skriðdal
Suðurland: Efstidalur II, Bláskógabyggð
Samstarfsaðilar: