Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 8

Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023 FRÉTTIR Völuteig 4 - 270 Mosfellsbær www.vinnuvelarehf.is - S: 496 4400 Vinnslubreidd: 2,0m Dýpt á kubbi: 1,2m Verð kr. án vsk. Kr. 2.399.400 m/vsk 1.935.000 Þýsk gæði og áreiðanleiki STRAUTMANN STÆÐUSKERAR Fæðuöryggi: Aðgengi að hollu mataræði fer versnandi Á ári hverju gefur Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) út skýrslu um stöðu fæðuöryggis og næringar á heimsvísu sem hefur það markmið að binda enda á hungursneyð og vannæringu í heiminum. Skýrslan greinir einnig frá þeim áskorunum sem standa í vegi fyrir því að markmiðin náist. Í skýrslunni má lesa um markmið sjálfbærrar þróunar heimsins sem gera ráð fyrir að binda enda á hungursneyð og vannæringu á heimsvísu árið 2030. Í skýrslunni er greint frá því að um 735 milljónir manna á heimsvísu hafi upplifað hungursneyð árið 2022, sem er aukning um 122 milljónir manna frá árinu 2019. Helstu orsakir eru taldar vera Covid-heimsfaraldurinn, veðurfarsbreytingar og hamfarir ásamt stríðinu í Úkraínu. Þó ber að geta þess að hungursneyð í heiminum hefur ekki aukist milli 2021 og 2022. Ef fram heldur sem horfir munu markmið Sameinuðu þjóðanna um að enda hungursneyð í heiminum fyrir árið 2030 ekki nást og gerir skýrslan nú ráð fyrir að um 600 milljónir manna verði alvarlega vannærðir árið 2030. Fæðuöryggi ótryggt Í skýrslunni er sjónum beint að aukinni þéttbýlismyndun sem hefur áhrif á hvernig og hvað fólk borðar. Áætlanir gera ráð fyrir að 7 af hverjum 10 muni búa í stórborgum árið 2050. Þessar breytingar kalla á bæði áskoranir og tækifæri til að tryggja að allir hafi, fjárhagslega og landfræðilega, aðgang að hollu mataræði. Áskoranirnar felast einnig í auknu aðgengi að ódýrum og tilbúnum skyndibita sem er oftar en ekki hitaeiningaríkur, hár í fitu, sykri og/eða salti sem getur leitt til vannæringar. Auk þess er talið að aðgengi að grænmeti og ávöxtum til að mæta daglegum viðmiðum af hollu mataræði sé ekki nægjanlegt. Með aukinni þéttbýlismyndun verður einnig breyting á nýtingu lands sem hefur þar með áhrif á landbúnað. Fæðuöryggi er skilgreint sem svo að fólk, á öllum tímum, hafi raunverulegan og efnahagslegan aðgang að nægum, heilnæmum og næringarríkum mat sem fullnægir þörfum þess til að lifa virku og heilsusamlegu lífi. Í skýrslunni er greint frá því að tæplega 30% mannkyns, sem jafngildir 2,4 milljörðum manna, hafi ekki tryggt öryggi að fæðu. Þar af eru um 900 milljón manna sem standa frammi fyrir alvarlegu fæðuóöryggi. Einnig er vakin athygli á því að efnahagslegur aðgangur fólks að hollu mataræði fer versnandi en árið 2021 hafði 42% mannkyns ekki efni á hollu mataræði. Þetta er aukning um 134 milljónir manna frá árinu 2019. /þag Í skýrslunni er greint frá því að tæplega 30% mannkyns, 2,4 milljarðar manna, hafi ekki tryggt öryggi að fæðu. Mynd / Alex Hudson Vilja leyfa notkun á glýfosati Framkvæmdastjórn Evrópu- sambandsins mun vera að vinna að endurupptöku á notkunarheimildum á efninu glýfosat í aðildarríkjum sínum. Umhverfisverndarsamtök for- dæma ákvörðunina. Glýfosat er virka efnið í algengum illgresiseyðum á borð við Roundup. Álitamál hefur verið um hvort notkun þess geti verið hættuleg heilsu manna og mögulega valdið krabbameini. Á undanförnum árum hefur því verið hávær umræða um takmörkun og banna við notkun þess. Nýlega birti Matvælaöryggis- stofnun Evrópu (EFSA) samantekt á niðurstöðum sínum um notkun þess í landbúnaði. Segir í þeim að áhrif notkunar glýfosats á heilsu manna, dýra og umhverfis valdi ekki áhyggjum. Umhverfisverndarsamtök mótmæltu áliti EFTA og saka stofnunina um að ganga erinda stórfyrirtækja í matvælaiðnaði. Samkvæmt fregn miðilsins Politico mun framkvæmdastjórnin á næstu vikum kynna álit sitt og hefja viðræður um leyfisveitingu efnisins. Talsmenn hagsmunasamtakanna Pesticide Action Network Europe hafa fordæmt framferði framkvæmdastjórnarinnar og kalla eftir að EFSA birti allar niðurstöður sínar og öll gögn sem liggja þeim til grundvallar áður en farið er að ræða leyfisveitingar. Þau segja niðurstöður framkvæmdastjórnarinnar „vandræða- legar“ og grafi undan rótgrónum skilningi á áhættu tengdum notkun á glýfosati. Talsmaður fram- kvæmdastjórnarinnar segir hana starfa gagnsætt og hafi fylgt hefðbundinni málsmeðferð. Búist er við að endanleg ákvörðun verði tekin í október. /ghp Glýfosat er virka efnið í algengum illgresiseyðum á borð við Roundup. Mynd / James Baltz Kúasæðingar hækka í verði Stjórn Búnaðarsamtaka Vestur- lands ákvað á fundi í lok júní að hækka gjaldskrá sína vegna kúasæðinga frá 1. júlí um 5%, þó ekki kvígusæðingar. „Ástæðan er fyrst og fremst hækkun á kostnaðarliðum eins og launahækkun og hækkun á sæði. Með þessu erum við að reyna að halda rekstrinum á sæðingum í jafnvægi,“ segir Guðmundur Davíðsson, formaður stjórnar samtakanna, spurður út í skýringu á hækkuninni. Tveir fastir starfsmenn vinna við sæðingar, auk afleysingafólks á Vesturlandi, og þrír verktakar sjá um sæðingar á Vestfjörðum. Eftir hækkunina 1. júlí kostar kúasæðing 4.470 kr. og kvígusæðing 2.322 kr. Heimsóknargjald er 3.270 kr. /mhh Þorsteinn Ólafsson, dýralæknir að sæða kú. Mynd / MHH Bjarni Guðmundsson, fyrrverandi prófessor á Hvanneyri, fagnar 80 ára afmæli í sumar. Af því tilefni munu Land- búnaðarsafn Íslands og Land- búnaðarháskólinn heiðra hann með málþingi á Hvanneyri þann 31. ágúst. Bjarni varði stórum hluta síns starfsferils við varðveislu landbúnaðarsögu Íslands. Hann á stóran þátt í því að Landbúnaðarsafn Íslands er til í þeirri mynd sem það er í dag. Bjarni hefur enn fremur gefið út fjölda bóka, þar sem þróun íslenskra búhátta eru gerð skil. Bjarni segir að Ragnhildur Helga Jónsdóttir og Anna Heiða Baldursdóttir, starfsmenn safnsins, eigi allan heiðurinn að skipulagningu viðburðarins. „Mín viðbrögð eru fyrst og fremst þakklæti.“ Tengsl safns og skóla „Þær stöllur fengu þessa hugmynd og voru svo vinsamlegar að spyrja mig hvort ég kærði mig um þetta. Mér fannst málefnið sem þær ætluðu að fjalla um vera áhugavert, þannig að ég sagði já,“ segir Bjarni. Á þinginu verður fjallað um hvernig hægt er að miðla landbúnaðartengdum fróðleik í gegnum safn og skóla og hvernig þessar tvær stofnanir tengjast. Bjarni segist túlka viðfangsefnið þannig að skólastofnanir horfi ekki bara fram, heldur minnast þær líka þess sem hefur gengið á undan. Bjarni segir söfn geta gefið þarflegt innlegg til framtíðarinnar, sama hvers eðlis söfnin eru. Sagan mikilvæg „Á þessum breytingatímum sem við lifum núna, þá verður maður var við að tengslin við það sem er liðið eru losaralegri en þau hafa verið oft áður. Ekki það að við eigum alltaf að vera að horfa í baksýnisspegilinn, en það getur verið gagnlegt að horfa á þróunina svo maður átti sig betur hvað bíður í framtíðinni,“ segir Bjarni. Hann telur að fáar atvinnugreinar hafi breyst jafn mikið og land' búnaðurinn. Bændur voru mjög snemma að byrja að nýta sér það sem í dag er kallað tölvutækni. „Þetta hefur létt feikilega mikið og við njótum þess núna, hvort sem það er sjálfstýring í traktor, mjöltun, fóðrun eða gagnaöflun. Ef þú heyrir tikkið í mjaltaþjóni og sérð kusuna labba þarna inn, lausa við mislyndan fjósamann, og allar upplýsingar eru færðar nákvæmlega inn, þá er ekki annað hægt en að dást að þessari tækni, sem á rætur í handvirkri skráningu í byrjun síðustu aldar. Þessi þróun er í raun alveg stórkostleg,“ segir Bjarni Guðmundsson. Viðburðurinn er ókeypis og öllum opinn. /ÁL Munu heiðra Bjarna Bjarni Guðmundsson verður áttræður í sumar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.