Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 43

Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023 Sími: 517-8240 - Súðarvogur 20 - www.eyjalind.is Vertu vinur okkar á Facebook Sæti og varahlutir í - Lyftara - Vinnuvélar - Vörubíla - Báta LANDBÚNAÐUR Í SKÁLDSKAP Orðsins list kemur að þessu sinni frá Sigurlín Hermannsdóttur, ljóðskáldi, sagnasmið og þekktum hagyrðingi. Sigurlín fæddist árið 1952, er BA í íslensku frá HÍ, stjórnarmaður í Kvæðamannfélaginu Iðunni og var til skamms tíma ritstjóri þingræðna Alþingis en er nú sest í helgan stein. Hún hefur sent frá sér allnokkrar bækur, þ.á m. ljóð og styttri og lengri sögur, ein og með öðrum, og hefur skáldskapur hennar birst víða. Hún yrkir jafnan undir hefðbundnum bragarháttum, einkum rímna- háttum og ljóðahætti. /sá Nýjabrum Hann hafði alltaf verið sjálfum sér nægur og sá um þennan litla búskap einn. Systir hans var öðru hvoru að tuða um ráðskonu sem myndi elda almennilegan mat en hann sá ekkert að sínu fæði. Pulsur og bjúgu voru herramannsmatur, næringarríkur og ekkert vesen við matargerð. Verst að honum tókst aldrei að gera almennilega hvíta sósu með bjúgunum svo að oftast lét hann kartöflumús úr pakka duga. En þegar hann brotnaði og var settur í gifs tók systir hans ráðin af honum. Hún auglýsti eftir ráðskonu og réð þá sem henni leist best á. Hann lét það yfir sig ganga eins og flest annað. Ráðskonan var með fullt af hugmyndum sem hann var ekki of hrifinn af í byrjun. Hún tók alveg fyrir pulsur og bjúgu en mátti eiga það að hún kunni að steikja hrygg og læri. Mataræði hans tók algjörum stakkaskiptum. Hann var farinn að borða hvítlaukskryddaðan mat, pasta og kjúkling þótt það hefði hingað til ekki verið siður í hans sveit að éta hænsnfugla. Meira að segja var hann búinn að læra að meta rækjur, þessi litlu kvikindi sem litu út eins og marflær og hann hafði ávallt fúlsað við. Og hún kunni svo sannarlega að gera sósur, og ekki bara hvíta. Hann hefði seint trúað því en hann var svei mér þá farinn að éta allt sem að kjafti kom. Systir hans glotti í kampinn og sá fram á að loksins fengi hún mágkonu. Einhverju sinni ákvað hann að smyrja sér rækjusamloku. Ísskápurinn var fullur af mat og hann fann fljótlega salatið en ekki smjörið. Eftir nokkra leit sá hann væna dós við hliðina á vaskinum. Hann var ekki með gleraugun en sá þó að það stóð „butter“ á lokinu. Þetta var þá eitthvað útlenskt sem hann hafði ekki séð áður en hann var svo sem orðinn ýmsu vanur. Hann smurði samlokuna og beit í. Bragðið var óvenjulegt en alls ekki vont, einhvers konar ávaxtabragð af þessu smjöri. Þegar ráðskonan kom úr þvottahúsinu minntist hann á ávaxtasmjörið. Í fyrstu skildi hún ekkert hvað hann var að tala um svo að hann sótti dósina. Þá fékk hún þvílíkt hláturskast að hún veltist hreinlega um og ætlaði aldrei að koma því út úr sér að þetta væri „Body butter“ sem hún hefði keypt í ónefndri náttúruvörubúð og ætlaði að smyrja sjálfa sig með eftir sturtu. Eftir þetta var hann ekki jafn viss og áður um að maturinn hennar smakkaðist neitt sérlega vel og þegar hann losnaði við gifsið sagði hann henni upp vistinni. Pulsur og bjúgu voru jú herramannsmatur. Gestagangur, örsögur, útg. 2022. Ráðskona óskast í sveit Sigurlín Hermannsdóttir. „Það er ótrúlegt að finna hvað þessi ACTIVE JOINTS hefur gert mikið fyrir mig. Nánast öll óþægindi eru farin í hnénu og ég er með vellíðunar tilfinningu innra með mér sem ég hef ekki fundið fyrir lengi. Ég er sannfærður um að ACTIVE JOINTS er að gera mikið gagn fyrir mig. Ég mæli svo sannarlega með ACTIVE JOINTS frá Eylíf.“ Árni Pétur Aðalsteinsson Hrein íslensk hráefni Framleitt á Grenivík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.