Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
LÍF&STARF
Per Martin Gregersen, sveitastjóri Eysturkommúnu, er að vonum stoltur af
vinsældum G! Festival sem fer fram í júlímánuði ár hvert. Mynd / ghp
Færeyjar:
Gata sem iðar af lífi
Litrík menningarstarfsemi í
smærri sveitarfélögum er verðmætt
aðdráttarafl. Það spilar mikilvægt
efnahagslegt og félagslegt hlutverk
og blæs hressandi lífi í lítil samfélög.
Tónlistarhátíðin G! Festival
í Götu í Færeyjum hefur farið
vaxandi á undanförnum árum og
er nú meðal stærstu hátíða þar í
landi. Per Martin Gregersen er
sveitarstjóri Eysturkommúnu,
hvar Gata er staðsett. Hann
segir menningarhátíðina vera
grundvallarviðburð fyrir þetta litla
bæjarfélag. „G! Festival er okkar
þjóðhátíð, í gamla daga vorum við
með minni hátíðir en hún dró ekki að
gesti utan bæjarins. Þessi hátíð hefur
hins vegar dregið til sín fólk alls staðar
af frá Færeyjum og einnig erlenda
gesti, sem geta þá komið hingað
og notið náttúrufegurðarinnar og
menningarinnar. Svæðið er fullkomið
fyrir hátíð af þessari stærðargráðu.
Hátíðin vekur jafnan jákvæða athygli
á sveitarfélaginu og er því mikilvægur
kynningarvettvangur fyrir svæðið.“
Framsækið samfélag
Per Martin var aðeins þrítugur
þegar hann var kjörinn sveitarstjóri
þessa fjórða stærsta sveitarfélags
Færeyja sem telur um 2.300 íbúa.
Hann er uppalinn í bænum og vill
ekki neins staðar annars staðar búa.
Meginatvinnuvegur bæjarfélaganna
er sjávarútvegur, en eitt stærsta
sjávarútvegsfyrirtæki landsins er
með framleiðslu í sveitarfélaginu.
Þá segir Per Martin að staðsetning
þess sé hentug fyrir fólk sem starfar
annars staðar, þannig sé stutt að
sækja vinnu til höfuðborgarinnar.
„Ég er fæddur og uppalinn hér og
hef alltaf verið hér og bærinn stendur
nærri hjarta mínu.
Það er reyndar tilfellið með fólk
frá Götu, svo virðist sem það vilji
alltaf flytja til baka. Hér er huggulegt
andrúmsloft, þetta er mjög framsækið
samfélag, nýsköpun og ný fyrirtæki
eru velkomin hingað,“ segir hann,
enda hefur íbúum sveitarfélagsins
fjölgað statt og stöðugt síðustu ár.
Upphaf G! Festivals má rekja til
upphaf aldarinnar, en færeyskir
tónlistarmenn komu henni á fót
eftir að hafa hafa tekið þátt í Iceland
Airwaves hér á landi.
„Þeir byggðu lítið svið hér á
ströndinni og buðu færeyskum
tónlistarmönnum að spila. Nokkrum
árum síðar voru alþjóðlegir listamenn
farnir að mæta og hátíðin sprakk
út,“ segir Per Martin. Gegnum árin
hefur hátíðin svo vaxið, hún er
einkar vinsæl meðal heimamanna og
erlendum gestum fjölgar ár frá ári.
Uppistaða listamanna hátíðarinnar eru
innlendir og er hún því mikilvægur
stökkpallur fyrir færeyskt tónlistarlíf.
Meðal innlendra flytjenda var Eivör,
rapphljómsveitin RSP, Byrta var með
endurkomu og Sakaris, sem hér er
búsettur, fór á kostum. Þá mátti stíga
færeyskan dans, hlýða á kvennakór
og innlenda þjóðlagatónlist og
tilraunagjörninga listamanna. Íslenskir
flytjendur tróðu líka upp, þar á meðal
Bríet, Axel Flóvent og Árstíðir.
Samofin hátíðinni er svo
rammfinnsk gufuhefð með
viðarhituðum heitapottum á
ströndinni. Per Martin segir að
finnskur maður hefði verið á
staðnum með fargufu á einni af
fyrstu hátíðunum og einhverra hluta
vegna varð sú dægradvöl fastur liður.
Sjá mátti tugi hátíðagesta njóta sín
á ströndinni, jafnvel undir dynjandi
tónlist á sviðinu steinsnar þar frá. /ghp
Viðarhitaðir heitapottar og finnsk gufa hefur verið samofin hátíðinni frá upphafi. Sólin lék við hátíðargesti á
föstudeginum og var þá að vonum þéttsetið í pottunum. Mynd / Anne Laure Amayon
G! Festival fer fram í Syðrugøtu en íbúar þess eru um 500 talsins. Mynd / ghp
Mörg þúsund manns sóttu hátíðina í ár. Mynd / Marius Mada Dale
Matarlykt lá í loftinu þegar sjávarútvegsfyrirtæki staðarins bauð upp á
heimatilbúna máltíð úr færeyskum hráefnum. Mynd / Alessio Mesiano