Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 18
18 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
Heildarkjötframleiðsla á fyrstu fjórum mánuðum
ársins var 6.700 tonn, rétt rúmlega 100 tonnum eða
1,6% meiri en árið 2022.
Er það lítillegur viðsnúningur frá árinu á undan en
þá hafði framleiðsla dregist saman um 300 tonn sem
var 4,4%.
Mestu munar um viðsnúning í framleiðslu svína- og
alifuglakjöts. Framleitt magn svínakjöts á fyrstu fjórum
mánuðum 2022 var 270 tonnum minna en árið 2021 en
í ár er magnið 150 tonnum meira en í fyrra. Hins vegar
dróst töluvert úr framleiðslu ungnautakjöts á milli ára.
Þrátt fyrir að aukning hafi verið á framleiðslu frá því
í fyrra heldur hún ekki í við fjölgun fólks sem þarf að
næra á landinu. Miðað við fólksfjölda, ferðamannafjölda
og meðalgistinætur ferðamanna má áætla að á fyrstu
fjórum mánuðum ársins hafi að meðaltali verið um
417.000 manns í mat á landinu á hverjum degi. Eru það
yfir 25.000 en á sama tíma og í fyrra og næstum 50.000
fleiri en fyrir tveimur árum. Sé framleiðslumagni deilt á
þennan fjölda sést að samdráttur á mann nemur tæplega
5% á milli ára og 14% sé horft tvö ár aftur í tímann.
Á fyrstu fjórum mánuðum ársins voru flutt inn
354 tonn af nautakjöti, 868 tonn af svínakjöti og 674
tonn af alifuglakjöti. Sé það borið saman við innlenda
framleiðslu er markaðshlutdeild þessara afurða 18,5%
fyrir naut, 21% fyrir svín og 18% fyrir alifuglakjöt. Hafa
verður þó í huga að megnið af innflutningi er beinlaust
en innlend framleiðsla er mæld með þyngd beina. Því
má álykta að í raun sé markaðshlutdeild erlends kjöts
hærri en hér sést. /SFB
HAGTÖLUR LANDBÚNAÐARINS
ÚRVAL ÚTSÝN 585 4000 WWW.UU.ISASIUFERDIR@UU.IS
Innifalið: Flug, gisting með morgunverði, allur akstur,
fjöldi skoðunarferða og íslensk fararstjórn.
VÍN OG VILLIDÝR
verð frá 749.000 KR.*
Suður Afríka
*Verð per mann í tvíbýli
31. OKT - 16. NÓV 17 DAGAR
Vilmundur Hansen
Fararstjóri
Vínekrur og grasagarðar á Blómaleiðinni. Villidýr og
ótrlúleg náttúra á gresjum og strandsvæðum.
Kjötframleiðsla jókst lítillega á
fyrsta þriðjungi ársins