Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 65
65 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
Á bænum Vestri-Leirárgörðum,
Hvalfjarðarsveit er bæði stunduð
sauðfjárrækt og hrossarækt auk
þess sem ábúendur taka að sér
uppeldi graðhesta og unghrossa.
Býli:Vestri-Leirárgarðar.
Staðsett í sveit: Hvalfjarðarsveit.
Ábúendur: Karen Líndal Marteins-
dóttir,Valmundur Árnason, Marteinn
Bóas Maríasson, Emilía Ingibjörg
Valmundsdóttir, Kristján Andri
Valmundsson, Marteinn Njálsson
og Dóra Líndal Hjartardóttir.
Fjölskyldustærð (og gæludýra):
Karen Líndal og Valmundur eiga
þrjú börn, þau Martein Bóas,
Kristján Andra og Emilíu Ingibjörgu
auk tveggja hunda, Ídu, sem er
enskur bulldog og Bubba, sem er
Pug. Foreldrar Karenar, Marteinn
og Dóra, búa einnig á jörðinni og
eiga í sameiningu með þeim jörðina.
Stærð jarðar:Um 150 hektarar.
Gerð bús: Á bænum er stunduð
hrossarækt og sauðfjárrækt. Við
tökum líka að okkur graðhesta og
unghross í uppeldi.
Fjöldi búfjár: Það eru um 50 hross í
okkar eigu á jörðinni og að auki eru
um 30 graðhestar hérna í uppeldi.
Kindurnar eru um 60.
Hvernig gengur hefðbundinn
vinnudagur fyrir sig á bænum:
Við förum bæði snemma af stað
á morgnana, Valli er í hlutastarfi
á Akranesi til hádegis og sinnir
bústörfum eftir hádegi og Karen til
Reykjavíkur þar sem hún stundar
nám í tannlæknisfræði.
Marteinn, pabbi Karenar, sér um
að gefa skepnum á morgnana, gefur
útigangi og hann sér aðallega um
rollurnar.
Seinnipart dags sér Karen
aðallega um tamningu og þjálfun
á hrossum með aðstoð Marteins og
Valla. Svo er Valli mjög duglegur að
dytta að vélum og tækjum.
Dóra vinnur mikið úr íslensku
ullinni, hún er að spinna ull og
prjóna úr henni og svo vinnur hún í
hlutastarfi í Ullarselinu á Hvanneyri.
Skemmtilegustu/leiðinlegustu
bústörfin: Það eru aðeins skiptar
skoðanir á þessu, Valla og Karen
finnst báðum leiðinlegast þegar dýr
veikjast og við missum þau, en Valla
skemmtilegast að vera í heyskap og
dytta að byggingum og umhverfinu
á sveitabænum.
Karen finnst skemmilegast að
vera í kringum hestana og pæla í
hrossarækt.
Hvernig sjáið þið búskapinn
fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár:
Sveitabærinn verður orðinn enn þá
snyrtilegri og örugglega komið upp
meira af trjám. Tækjakostur heldur
áfram að batna og fullt af úrvals
gæðingum til á bænum.
Ætli það verði ekki líka komið
eitthvað af holdanautum til
kjötframleiðlu og kannski tvö svín.
Hvað er alltaf til í ísskápnum:
Collab og egg.
Hver er vinsælasti maturinn á
heimilinu: Lambakjöt og spaghetti
carbonara.
Hvað er eftirminnilegast tengt
bústörfunum: Ætli það sé ekki
helst þegar hestar úr okkar
ræktun ná langt í kynbóta-
sýningum eða keppnum
Hestar úr okkar ræktun hafa
staðið mjög ofarlega á lands-
mótum, Íslandsmótum og heims-
meistaramótum og það er alltaf
mjög gaman.
En svo eru bara forréttindi að fá
að búa í sveit og njóta allra þeirra
skemmtilegu stunda sem sveitalífið
hefur upp á að bjóða.
Prjónaðar tuskur í garðaprjóni
með blúndukanti úr DROPS
Cotton Light.
DROPS mynstur: cl-075
Stærð: ca 23 cm á breidd og ca 21
cm á lengd.
Garn: DROPS COTTON LIGHT fæst
hjá Handverkskúnst, www.garn.is.
1 tuska er ca 47 g.
Litir á mynd: hvítur nr 02, natur nr
01, ljós beige nr 21, perlugrár nr 31,
mintu nr 27.
Prjónar: nr 3 – eða sú stærð sem þarf
til að 23 lykkjur með garðaprjóni
verði 10 cm á breidd.
Uppskriftin: Tuskan er prjónuð
fram og til baka.
Fitjið upp 52 lykkjur á prjóna 3
með Cotton Light. Setjið 1 prjóna -
merki í hvora hlið innan við 4 lykkjur
frá kanti.
UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið slétt.
UMFERÐ 3 (= rétta):
Prjónið sléttar lykkjur þar til eftir eru
4 lykkjur á prjóni, prjónið 2 lykkjur
slétt saman, sláið uppá prjóninn, í
hverja og eina af 2 síðustu lykkjunum
eru prjónaðar 2 sléttar lykkjur
(prjónið 2 lykkjur í sömu lykkju
með því að prjóna í fremri og aftari
lykkjubogann) = 2 lykkjur fleiri.
UMFERÐ 4 (= ranga):
Takið fyrstu lykkjuna óprjónaða eins
og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1
lykkju slétt, steypið óprjónuðu
lykkjunni yfir, prjónið 1 lykkju slétt,
steypið öftustu lykkjunni yfir á hægri
prjón yfir fyrstu lykkjuna (= 2 lykkjur
færri), prjónið síðan sléttar lykkjur
þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið
2 lykkjur slétt saman, sláið uppá
prjóninn, í hverja og eina af 2 síðustu
lykkjunum eru prjónaðar 2 lykkjur
slétt = 2 lykkjur fleiri.
UMFERÐ 5 (= rétta):
Takið fyrstu lykkjuna óprjónaða eins
og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1
lykkju slétt, steypið óprjónuðu
lykkjunni yfir, prjónið 1 lykkju slétt,
steypið öftustu lykkjunni á hægri
prjón yfir fremstu lykkjuna (= 2
lykkjur færri), prjónið síðan sléttar
lykkjur út umferðina.
UMFERÐ 6 (= ranga):
Prjónið slétt. Endurtakið umferð
3 til 6.
Haldið svona áfram þar til stykkið
mælist 21 cm – endið eftir umferð
6, fellið af.
Prjónið aðra tusku alveg eins úr
hverjum og einum lit sem eftir er.
Prjónakveðja
Stelpurnar í Handverkskúnst
www.garn.is
Vestri-Leirárgarðar
BÆRINN OKKAR
HANNYRÐAHORNIÐ
Blúndutuskur