Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 24

Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 24
24 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023 Einn vinsælasti viðburður ársins á Vestfjörðum er hið goðsagna- kennda og víðfræga Ögurball. Var það fyrst haldið árið 1926, er Ungmennafélagshúsið var byggt í Ögri, en þar geta allt að 80 manns dansað með góðu móti enn þann dag í dag. Duttu böllin niður um hríð en verið haldin árlega frá árinu 1999 þar sem stuðbandið „Halli og Þórunn“ hafa spilað fyrir dansi. Sú nýlunda er þetta árið að við stuðinu tekur hljómsveitin Fagranes og pásutrúður er hinn vel kunni Erpur Eyvindarson. Átján ára aldurstakmark er á svæðið og rukkað inn á staðnum – en með aðgöngumiða fæst tjaldstæði, aðgangur að ballinu og heimagerður rabarbaragrautur með rjóma. Hefur grauturinn verið viðloðandi ballið frá því að elstu menn muna, en áður fyrr, þegar fólk fór um á hestum, gangandi eða siglandi var boðið upp á staðgóðan graut með rjóma áður en heim væri haldið. Skötuveisla er í hádeginu á föstudeginum og hægt að panta í skötuna í s. 868 5906 eða á Facebook síðu Ögur Travel. Laugardagurinn hefst með sögugöngu um svæðið sem lýkur með messu í Ögurkirkju klukkan ellefu, en um hana sér Hjálmar Jónsson, fyrrverandi dóm- kirkjuprestur. Ögurballið sjálft er þá um kvöldið og mikil stemning og eftirvænting eins og gefur að skilja fyrir þeirri gleði. Um tíuleytið á sunnudagsmorgun er kaffihúsið opnað þar sem hægt er að hressa sig á kaffisopa eða öðru áður en heim er haldið. /SP Í ár eru alls 149 ár frá því að fyrsta þjóðhátíðin var haldin á Íslandi. Var það í tilefni þúsund ára afmælis Íslandsbyggðar og heimsóknar Kristjáns konungs níunda sem þá færði Íslendingum „stjórnarskrá um hin sérstaklegu málefni Íslands“ eins og kemur fram í þriðja bindi „Tíðinda um stjórnarmálefni Íslands, gefnu út af hinu Íslenzka Bókmentafélagi“ árið1875. Eru þjóðhátíðir jafnan þekktar sem hátíðir mikils gleðskapar, og þykir við hæfi að væta aðeins kverkarnar. Voru því höfuðborgarbúar ekki allir jafnhamingjusamir árið 1902, er þjóðhátíð var haldin undir merkjum Góðtemplaranna sem sáu um hátíðarhöldin það árið. Kemur fram í seyðfirska ritinu Frækorn „(Heimilisblað með myndum)“ að þar hefði verið „allt drykkjuslark bannlýst“. Tappinn í flöskuna og öryggið á oddinn? Eitthvað hefur þetta verið misjafnt með árunum. Bindindismót Galtalækjar var haldið a.m.k. árlega í 30 ár, frá árinu 1960, og þá ætlað sem mótvægi við þá sukksömu útivistarmenningu sem hafði þegar skapast um verslunarmannahelgi Íslendinga. Lýsir þó ónefndur blaðamaður upplifun sinni af hátíðinni: „Mín eftirminnilegasta útihátíð var „bindindismótið“ í Galtalæk. Sú hátíð var algjörlega einstök, fólk beitti öllum brögðum til þess að smygla áfengi inn á þessa „bindindishátíð“ og mikið fjör í kringum smyglið. Hvergi var meira fyllerí en í Galtalæk.“ Húnaver þótti einnig nokkuð eftirminnilegt, þá sérstaklega fimm þúsund smokka hátíðin í Húnaveri árið 1989 sem Jakob Magnússon Stuðmaður og félagar stóðu fyrir. Varð hátíðin þekkt undir þessu nafni vegna smokkaþurrðar – en þeir bæði seldust upp á svæðinu auk þess sem apótek nærliggjandi bæja voru þurrausin. Haft var eftir Jakobi Magnússyni að þegar hefðu farið í sölu fimm þúsund smokkar og væru frekari birgðir á leiðinni. Með friði og spekt Kemur fram í dag- blaðinu Vísi, þriðju- daginn 5. ágúst, að gífurlegur fjöldi hefði sótt útihátíðir, en sam- komuhald allt farið með afbrigðum vel fram. Til að mynda kom fram í fréttinni að einungis eitt og hálft prósent gesta í Húsafelli hefði verið tekið fyrir ölvun enda að sögn Kristleifs Þorsteinssonar, bónda á Húsafelli, hefði lögreglan innt gott starf af hendi og „sýnt fádæma dugnað og lipurð og rekið af sér allt slyðruorð“. Þótti útihátíðin einna ógleymanlegust þar sem vinsælasta unglingahljómsveit þess tíma, Trúbrot, heillaði áhorfendur upp úr skónum. Raunar fór það svo að áhorfendur urðu heldur aðgangsharðir og á einhverjum tímapunkti forðaði söngvari hljómsveitarinnar, Rúnar Júlíusson, sér upp á þak skýlisins og hélt þar áfram söng sínum. Sammæltust forsvarsmenn útihátíða yfir landið þó um að þetta væri besta verslunarmannahelgin í langan tíma þar sem tónlist og innri ró héldust í hendur – og var henni líkt við Woodstock, tónlistar- og friðarhátíðina víðfrægu, sem haldin var í New York sama ár, þó reyndar um tveimur vikum seinna. Í ár verður að venju mikið um að vera á landsvísu og allar líkur á góðu veðri hvar sem fólk kýs að halda verslunar- m a n n a h e l g i n a hátíðlega, með góðri tónlist o g g l e ð i í hjarta. /SP HRINGINN Í KRINGUM LANDIÐ Austurland & Austfirðir 26.–30. júlí Franskir dagar – Bæjarhátíð á Fáskrúðsfirði 29. júlí Tónlistarhátíðin Bræðslan 4.–6. ág. Neistaflug – 30 ára í ár. Fjölskylduhátíð Neskaupstaðar, markaður, strandblaksmót, flugeldar o.fl. 12. ág. Árleg flugeldasýning Björgunarfélags Hornafjarðar haldin á Jökulsárlóni 17.–20. ág. Útsæðið – Bæjarhátíð Eskifjarðar Norðurland & Norðausturland 20.-21. júlí Alþjóðleg tónlistarhátíð Sunnuhvoli Bárðardal 28.–30. júlí Mærudagar Húsavíkur, tívolí, froðurennibraut og tónleikar– Diljá og Páll Óskar meðal þeirra sem koma fram. 29. júlí Fjölskylduhátíðin Trilludagar á Siglufirði 3.–6. ág. Berjadagar, árleg tónlistarhátíð í Ólafsfirði 4.–6. ág. Síldarævintýri á Siglufirði – fjölskylduhátíð 4.–6. ág. Ein með öllu á Akureyri 11.–13. ág. Fiskidagurinn mikli á Dalvík – 20 ára í ár! 25.–27. ág. Akureyrarvaka – Menningarhátíð Akureyrar Reykjanes, Suðurland, Suðaustur- & Suðvesturland 3.–6. ág. Unglingalandsmót UMFÍ – vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð þar sem börn og ungmenni á aldrinum 11–18 ára reyna með sér í fjölmörgum íþróttagreinum 3.–7. ág. Kotmót Hvítasunnukirkjunnar, kristilegt fjölskyldumót að Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð 3.–7. ág. Flúðir um Versló – Bæjarhátíð á Flúðum 4.–7. ág. Tónlistarhátíðin Innipúkinn í Reykjavík 4.–6. ág. Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum 8.–13. ág. Hamingjan við hafið – Fjölskylduhátíð í Þorlákshöfn 8.–13. ág. Hátíðin Hinsegin dagar eru í Reykjavík 10.–13. ág. Sumar á Selfossi – Bæjarhátíð á Selfossi 12. ág. Gleðigangan, hápunktur Hinsegin daga fer fram 12.–14. ág. Töðugjöld – Bæjarhátíð á Hellu á Rangárvöllum 16.–20. ág. Bæjarhátíðin Fjölskyldudagar í Vogum 18.–20. ág. Blómstrandi dagar – Bæjarhátíð í Hveragerði 19. ág. Menningarnótt Reykjavíkur 24.–27. ág. Í túninu heima – Bæjarhátíð Mosfellsbæjar 25.–27. ág. Kjötsúpuhátíðin á Hvolsvelli Vesturland, Norðvesturland & Vestfirðir 26.–30. júlí Eldur í Húnaþingi – Bæjarhátíð á Hvammstanga 28.–29. júlí Smástund í Grundarfirði – bæjarhátíð 28.–30. júlí Reykholtshátíðin – Tónlistarhátíð sem leggur áherslu á klassíska tónlist frá 18. og 19. öld. 4.–6. ág. Norðanpönk í Laugarbakka Vestur-Húnavatnssýslu 4.–6. ág. Sæludagar KFUK&KFUM – vímulaus hátíð við Eyrarvatn 10.–12. ág. Act Alone – árleg leiklistarhátíð á Suðureyri 12. ág Hvanneyrarhátíð 18.–20. ág. Reykhóladagar, heimagerð súpa, kassabílarallý o.fl. Viðburðadagatal – Frá og með 20. júlí –24. ágúst Auðvitað hefur eitthvað ekki komist á lista, en hér að ofan er ýmislegt upptalið sem má skemmta sér við. Vestfirðir: Ögurball í Ísafjarðardjúpi Verslunarmannahelgin: Stiklað á stóru Rúnar Júlíusson heitinn, söngvari Trúbrots, forðar sér hér upp á þak vegna ágangs aðdáenda. Mynd / timarit.is Þjóðhátíðarfréttir frá árinu 1902 er Góðtemplarar héldu um taumana. Mynd / timarit.is Suzuki á Íslandi Skeifunni 17 Sími 568 5100 www. suzuki.isNánari upplýsingar á suzuki.is ÖFLUGIR UTANBORÐSMÓTORAR FRÁ SUZUKI Það liggur þrotlaus ransóknar- og prófunarvinna á bakvið utanborðsmótora Suzuki sem skilar sér í krafti, sparneytni, áreiðanleika og endingu. Komdu við og kynntu þer úrvalið og möguleikana. Við tökum vel á móti þér
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.