Bændablaðið - 20.07.2023, Blaðsíða 62
62 Bændablaðið | Fimmtudagur 20. júlí 2023
VÉLABÁSINN
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Bændablaðið fékk á dögunum til
prufu splunkunýjan Volkswagen
Amarok. Þetta er önnur kynslóð
pallbíla með þessu nafni frá þýska
bílaframleiðandanum, en sú fyrri
gat sér góðan orðstír. Amarok
myndi teljast til millistórra
pallbíla og keppir þá helst við
Toyota Hilux, Isuzu D-Max og
Ford Ranger.
Þróun Amarok var unnin í
nánu samstarfi við bandaríska
bílaframleiðandann Ford. Þessi
pallbíll situr á sama undirvagni og
notar sömu vél og drifrás og Ford
Ranger. Á móti fær Ford að nýta
undirvagninn sem Volkswagen
þróaði fyrir rafmagnsbílinn ID.3.
Engir boddíhlutir eru sameiginlegir
með Ranger og er innréttingin alfarið
runnin úr ranni Volkswagen.
Ef einhver hefur náð tökum á
smíði pallbíla, þá er það Ford, á
meðan sá framleiðandi sem er einna
bestur í að setja saman notendavænar
innréttingar er Volkswagen.
Niðurstaða þessa samstarfs getur
því ekki verið annað en góð.
Myndarlegur í persónu
Volkswagen Amarok er einn
þeirra bíla sem lítur mun betur út
í persónu en á myndum. Útlitið er
kraftalegt, með stóru grilli og háu
húddi. Það þarf enginn að vera í
vafa um að þetta sé Volkswagen,
því Amarok minnir um margt á aðra
jeppa frá sama framleiðanda, eins og
Tiguan. Svo er VW merkið í miðju
grillsins á stærð við kökudisk.
Bíllinn sem Bændablaðið fékk
til prufu var af Pan Americana
útgáfunni, sem er næstdýrasta
týpan og með öllum þeim búnaði
sem hugurinn girnist. Enn fremur
var Hekla búin að setja 32 tommu
dekk undir bílinn, sem var hægt að
gera án breytinga. Stór dekkin gera
útlitið enn kraftalegra en ella.
Þótt Amarok sé með fágaða
hönnun, þá er þetta vinnubíll. Að
aftan er stór pallur, nógu breiður til
að rúma EURO-bretti á þverveginn.
Innrétting fyrir augað
Þegar sest er um borð tekur á
móti manni týpísk Volkswagen
innrétting. Allar línur og hlutföll
eru úthugsuð og er hún mikið fyrir
augað. Enn fremur virðist allt vera
vel skrúfað saman og smíðað til
að endast.
Í miðju innréttingarinnar er
stór margmiðlunarskjár sem snýr
ekki á breiddina, heldur hæðina.
Volkswagen fékk stýrikerfið að
láni frá Ford, en hefur breytt öllu
viðmótinu þannig að það lítur út
eins og allt annað frá Volkswagen.
Að mörgu leyti er þetta gott
margmiðlunarkerfi – til að mynda
tekur enga stund að tengja síma
þráðlaust með Android-Auto eða
AppleCarplay – en það hefur líka
nokkra galla. Þar má helst nefna
að engir hnappar eru til að stjórna
miðstöð. Því þarf ökumaðurinn að
beina óþarflega mikilli athygli til
að hitta akkúrat rétt á snertiskjáinn
og fara í gegnum öll þau skref sem
nauðsynleg eru til þess eins að
stilla blásturinn.
Á móti þessu vegur stór
kostur, sem er frábært 360° gráðu
myndavélakerfi. Þótt Amarok sé
stærðarinnar bifreið, þá er leikur
einn að leggja henni, þar sem
margmiðlunarskjárinn sýnir skýrar
og bjartar myndir úr öllum áttum.
Það er mikil synd að mynda-
vélakerfið nýtist ekki þegar ekið
er utanvegar, en það er fljótt að
slökkva á sér um leið og ekið er
áfram.
Duglegur á jeppaslóðum
Amarok er prýðilegur torfærujeppi.
Það er býsna hátt undir bílinn
og eru 32 tommu dekkin, sem
Hekla setti undir, með öflugu
gripi. Í þjóðvegaakstri er Amarok
almennt í afturhjóladrifi, en með
snúningstakka í miðjustokknum er
hægt að velja fjórhjóladrif, læsa
millikassa og setja í lága drifið.
Jafnframt kemur bíllinn með
driflæsingu að aftan.
Þegar ekið er niður brekkur er
hægt að láta bílinn halda hraðanum
rafrænt við 3–4 kílómetra hraða,
en hann fer hraðar niður brekku í
fyrsta gír í lága.
Afslappandi þjóðvegabíll
Ein sterkasta hlið Amarok
er hversu góður bíllinn er á
þjóðvegum. Ökumannshúsið er vel
hljóðeinangrað og er algjörlega á
pari við fólksbíla frá Volkswagen.
Fullkomin akstursaðstoð, eins
og skynvæddur hraðastillir og
akreinavari, er staðalbúnaður.
Þjóðvegaakstur er því afslappandi.
Sætin eru með rafmagns-
stillingum og ættu lágir sem háir
að geta komið sér vel fyrir. Rétt er
þó að nefna að sjálf sessan er full
stutt og stíf, sem gerir ökumanninn
þreyttan í lærunum eftir langan
akstur.
V6 vélin er öflug og er bíllinn
enga stund að ná hámarkshraða.
Þegar gefið er inn heyrist þýður
ómur sem einkennir sex strokka
vélar. Tíu þrepa sjálfskiptingin
er hnökralaus og maður veit
ekkert af henni. Í lausagangi berst
nokkur titringur frá vélinni inn í
ökumannshúsið, sem minnir mann
á að Amarok er í grunninn vinnubíll.
Tölur
Helstu mál Amarok eru: hæð,
1.884 mm; breidd, 1.917 mm;
lengd, 5.390 mm. Burðargeta á
palli er 1.000 kg og er dráttargetan
3.500 kg. Verðið á Amarok Life,
með minni vél og sjálfskiptingu, er
10.790.000 kr. Volkswagen Amarok
Pan Americana er á 14.390.000 kr.
án stærri dekkja. (Verð með vsk.)
Að lokum
Volkswagen Amarok er góður
pallbíll og veitir öfluga samkeppni
á sínum markaði. Allir pallbílar eru
vinnutæki, en Volkswagen hefur náð
að fela það að mestu með þykku lagi
af fágun og þægindum. Sterkustu
hliðar Amarok eru þær að þetta er
pallbíll með aksturseiginleika á
þjóðvegum og í þéttbýli á pari við
Volkswagen Golf. Amarok hefur
ágæta eiginleika til utanvegaaksturs,
en á markaðnum eru margir
jeppar sem eru umtalsvert öflugri
torfærutæki.
– Prufuakstur á Volkswagen Amarok
Amarok er vinnutæki með stórum palli. Á milli hjólaskálanna
er nægt rými fyrir EURO-bretti á þverveginn.
Hekla setti 32 tommu dekk undir bílinn, sem gerir hann kraftalegan á að líta
og gefur góða torfærueiginleika.
Önnur kynslóð Volkswagen Amarok mun veita öðrum pallbílum öfluga samkeppni. Kraftmikil þriggja lítra dísilvél, öflugt fjórhjólakerfi og þægileg innrétting
eru meðal helstu eiginleika. Myndir / ÁL
Innréttingin er mjög sambærileg þeim sem eru í öðrum Volkswagen bifreiðum.
Margar stillingar eru í sætum og stýri, en sessan er í styttra lagi.
Þrír fullorðnir geta setið án mikilla vandræða í
aftursætunum.