Úrval - 01.11.1961, Side 27
DÁLEIÐSLA
35
læknafélagsins í Bandaríkjunum.
Var þar hvatt til réttrar visinda-
legrar notkunar, en varað við
því að beita dáleiðslu sem
skemmtiatriði á mannamótum
sakir illra afleiðinga, sem það
getur haft í för með sér.
Þegar dáleiðsla er misnotuð
i sambandi við andlega eða lik-
amlega sjúkdóma, eins og fyrir
kom um konuna í New Jersey,
er líf og andleg heilsa í veði.
Glöggt dæmi um það er af kon-
unni, sem kenndi nokkurra
þrauta i brjósti. í stað þess að
fara til læknis leitaði hún dá-
valds. Hann linaði kvölina, en
konan fékk of seint að vita það,
að hún var með krabbamein.
Sérfræðingar telja líklegt, að
90—95 af hundraði manna sé
hægt að dáleiða og einn af
hverjum fjórum sé unnt að láta
falla í djúpan dásvefn. Sé dá-
leiðsla siendurtekin á mönnum,
sem eru sérstaklega næmir fyrir
þessum áhrifum, vofir sú hætta
yfir, að þeir fari að falla i dáið
af sjálfsdáðum, þegar ætlazt er
til, að ]æir séu með fullri rænu
við dagleg störf. Svo bar nýlega
til í New York, að koma ein,
sem oft hafði verið dáleidd,
kom á göngu sinni út á við
auga á auglýsingaspjald með
mynd af dávaldi. Hún féll þegar
í dá þarna á gangstéttinni.
Einhver mesti háski, sem fólg-
inn er i dáleiðslu, er hið við-
sjála vald, sem unnt er að ná
yfir tilhneigingum manna. Það
er unnt að koma kirfilega fyrir
i hug dáleidds manns hugmynd
um athöfn i framtiðinni, svo
sem hafi hún orðið þar til með
eðlilegum hætti. Eftir á veit sá,
sem dáleiddur var, ekkert um
hugmyndina. Hann bara verður
var við ómótstæðilega þörf til
að vinna sérstakt verk á sérstök-
um tíma. Ef honum hefur verið
skipað, meðan á dásvefninum
stóð, að vinna ákveðið verk 50
mínútum eftir að hann vaknar,
lætur hann óhjákvæmilega verða
af því.
Sumir sérfræðingar halda því
fram, að engan mann sé unnt að
knýja til verka, sem stríða gegn
siðgæðisvitund hans. Þó virðast
vera dæmi um það, að menn,
sem eru sérstaklega næmir fyrir
dáleiðslu og oft hafa verið dá-
leiddir af sama dávaldinum, svo
að sterk, persónuleg bönd mynd-
ast milli þeirra, fáist á þennan
hátt til að vinna verk, sem þeir
undir venjulegum kringumstæð-
um tækju aldrei í mál.
Tilraun var gerð með þetta
í Frakklandi, Dáleidd var stúlka,
ákaflega næin fyrir dáhrifum, og
var látin fremja tilraunastofu-
„morð“. Dávaldurinn eggjaði
hana á að byrla ungum manni
í starfsliði hans eitur, jafnskjótt