Úrval - 01.11.1961, Qupperneq 72
80
ÚR VAL
sökum kostnaðar við útgáfu esp-
eranto og sökum þess að hann
greiddi stórfé til aS losa föSur
sinn undan afleiSingum af rit-
skoSun keisarastjórnarinnar
rússnesku. Næstu 16 ár, til 1905,
gerðu tekjur Zamenhofs af lækn-
isstörfum ekki meir en hrökkva
fyrir lífsnauðsynjum fjölskyld-
unnar.
Zamenhof bjó alla ævi í fá-
tækrahverfi, og sjúklingar hans
voru illa efnum búnir. Um á-
kveðinn taxta fyrir læknisstörf
var ekki að ræða, og tekjur
hans af dagsverkinu, 30—40
sjúklingum, voru ekki meiri en
aðrir læknar höfðu af 5—6
sjúklingum, betur efnuðum. Því
varð Zamenhof aldrei auðugur
maður aS fé; én þau hjón áttu
þrjú börn og komust vel af með
því aS gæta fyllstu sparsemi.
Á kvöldin að loknu dagsverki
læknisins fór tíminn venjulega
i skriftir, en Zamenhof þýddi
mikið á esperanto, auk þess sem
hann frumsamdi bæði i bundnu
máli og óbundnu.
ÁriS 1905 tóku þau hjónin
sér í fyrsta skipti sumarleyfi
og eyddu nokkrum vikum í
ferðalag til fyrsta alþjóðaþings
esperantista, er haldið var í
Boulogne sur Mer í Frakklandi.
Allar umræður fóru að sjálf-
sögðu fram á esperanto, og bar
ekki á þvi, að menn ættu erfijt
með að skilja hverir aðra, þótt
þeir væru hver úr sinu landi
og hefðu ekki heyrt esperanto
talaS áður. Þessi hefur líka orS-
ið raunin á, hvenær sem esper-
antomælandi menn hafa hitzt.
— Síðan 1905 hafa árlega verið
haldin allsherjarþing esperant-
ista nema stríðsárin, og var hið
44. í Varsjá i Póllandi sumarið
1959. Zamenhof var þátttakandi
í öllum þingunum til 1913. ÁriS
1914 átti að halda 10. þingið í
París; Zamenhof var lagður af
stað þangað og kominn til Köln-
ar í Þýzkalandi, þegar heims-
styrjöldin fyrri skall á. Hann
sneri hið skjótasta við og komst
heim um Svíþjóð og Finnland,
því að landamæri Þýzkalands
og Rússlands lokuðust þegar í
stað.
Þessi hildarleikur fékk mjög á
friðarsinnann Zamenhof. Hann
hafði lengi verið veill fyrir
hjarta, og árið 1917 andaðist
hann, hinn 14. apríl. SíSustu
árin komst hann lítið út vegna
vanheilsu, en hann var samt sí-
vinnandi, þýddi m. a. fjögur
bindi af ævintýrum Andersens
og lauk við að þýða gamla testa-
mentið allt úr frummálinu, he-
bresku. Síðustu æviárin, meðan
styrjöldin geisaði, fékkst hann
við að setja saman heimspeki-