Úrval - 01.08.1962, Síða 117
HVAÐA GAGN ER Afí LOFTTÆMISFRÆÐI?
125
arbetri málmblöndur en nú er,
því að ætla verður að á eftir fylgi
stórhækkun viðhaldskostnaðar.
Málmfræðingar vinna stöðugt að
tilraunum með ýmsar nýjar málm-
blandanir í lofttæmdu rúmi. Allt
bendir til þess að árangurinn af
starfi þeirra verði sá, að ný fjöl-
skylda bætist í hóp málmblend-
inganna, og hæfileikar hennar
verða frábærir. Ekki er ólíklegt
að rákettufar morgundagsins verði
smíðað úr einhverjum þessara nýju
málmblendinga.
Næsta skipti, þegar þú stígur
upp í nýja bílinn þinn, skaltu virða
fyrir þér stýrisflautuna og mæla-
borðið. Þessi fagurgljáandi máim-
húð hefur að öllum líkindum verið
sett á í lofttæmdu rúmi. Málmhúð-
un í lofttæmi hefur rutt sér æ meir
til rúms í nútíma iðnaði, hvort
heldur er um að ræða hverskyns
hagnýta hluti eða skrautmuni og
skartgripi, bæði vegna þess hve
áferðin verður betri og endingin
meiri. Gömlu aðferðirnar, með
pensli eða sprautukönnu, eru alveg
úr sögunni við ýmsa framleiðslu.
— Þessari nýju aðferð til húðunar
er einnig að þakka, að nú er hægt
að húða sjóngler og linsur með
efnablöndum, sem hindra speglanir.
Til málmhúðunar má nota silfur,
gull, kopar, nikkel — og reyndar
svo til hvaða málm eða málm-
blöndu sem er. Sá málmur, sem er
þó langsamlega mest notaður, er
alúmíníum, það er bæði ódýrt og
auðfengið og sérlega auðvelt í með-
förum til slíkra hluta.
Eitt kíló af alúmíníum nægir til
húðunar rúmlega 2500 fer-
metra. Þessa örþunnu húð —
venjulega er hún minna en tíu
milljónustu af centímetra á þykkt
— má verja sliti með þvi að
sprauta hina málmhúðuðu hluti
með sérstöku glæru lakki.
Visindamenn, sem starfa við
Brookhaven rannsóknarstofnunina
í New York ,hafa tekið sér fyrir
hendur að framkvæma hið „ófram-
kvæmanlega“ með hjálp fullkomn-
ustu loftdæla, sem enn eru til. Það
er þarna, sem fyrsta geimgeisla-
vél (cosmotron) veraldar er starf-
rækt. Þessi vél býr til og sendir
gervi-geimgeisla, þessa dularfullu
geisla einhvers staðar utan úr
geimnum, enginn veit hvaðan, sem
eru svo öflugir, að þeir smjúga
gegnum næstum hvaða efni sem er.
Það er á einskis manns færi að
segja fyrir um það feikna stökk,
sem búast má við að tækniþróun-
in taki vegna þessara rannsókna á
áður lítt könnuðu sviði. Margir
eðlisfræðingar telja, að takist að
framleiða og virkja „geimgeisla",
muni það reynast langtum þýðing-
armeiri atburður en klofning at-
ómsins á sínum tima.
„Hjarta“ geimgeislavélarinnar í
Brookhaven er gríðarmikill stálseg-
ull, næstum sporbaugslagaður. —