Úrval - 01.04.1965, Síða 6
4
Eftir fyrstu bráðabirgða rann-
sókn fóru læknarnir yfir sjúkra-
sögu hans, í þeirri von að finna
þar eitthvað, sem gæti komið þeim
á rekspölinn til að finna orsök
sjúkdómsins. Þar virtist ekki vera
um neinn arfgengan sjúkleik að
ræða, enga fjölskyldusjúkdóma, né
óvenjuleg veikindi hans. En faðir
drengsins sagði þeim, að fyrir átta
dögum hefði Richard dottið á reið-
hjóli og meitt sig á vinstri mjöðm.
Daginn eftir hafði hann aftur dott-
ið á reiðhjólinu —■ og í það sinn
á hægri olnbogann. í bæði skiptin
hafði verið tekin Röntgenmynd og
engin löskun á beinum fundizt. Það
var ekkert óvenjulegt að sjá við
meiðslin, en þau hefðu getað vald-
ið smitun. Læknunum kom saman
um að láta taka aftur Röntgenmynd
af meiðslunum til öryggis, ög þeir
létu talca af lionum heilarit (elec-
tro encephalogram), til þess að
vita hvort um nokkra heilaskemmd
væri að ræða, sem hefði orsakazt
af byltunum — eða kannske valdið
þeim.
Faðir hans sagði, að tveim dög-
um eftir seinni byltuna hefði hand-
leggur Richards verið orðinn bólg-
inn og ákaflega aumur. Og nóttina
eftir var hann með óráði og hit-
inn orðinn rúmlega 41 stig.
Richard var þá i skyndi fluttur
á sjúkrahúsið í heimaborg hans,
þar sem honum voru þegar í stað
gefnir stórir skammtar af gerla-
eyðandi lyfjum (antibiotics). En
kraftaverkalyfin gerðu engin krafta-
verk. Og þegar læknunum á staðn-
um tókst ekki að finna neina or-
sök og drengurinn orðinn nærri
ÚRVAL
meðvitundarlaus, sendu þeir hann
í flýti til 'Boston.
Hin fjölvirku fúkkalyf (broad-
spectrum anti biotics), sem notuð
höfðu verið í heimasjúkrahúsinu
— beztu vopnin gegn ókunnum ó-
vini — héldu lifinu í Richard, en
þau gerðu sjúkdómseinkennin ó-
ljósari. og sjúkdómsgreiningu jafn-
framt erfiðari. Á meðan verið var
að rannsaka blóð hans, þvag og
vessa úr bólgna handleggnum á
rannsóknarstofum sjúkrahússins,
báru læknar saman bækur sínar,
skiptust á kenningum og tilgátum,
í þeirri von að detta ofan á ein-
hverja hugmynd, sem varpaði ljósi
á þetta sjúkdómstilfelli. Það gat
verið heilaliimnubólga (meningit-
is). Taka mænuvökva til rannsókn-
ar. Það gat verið beinbrot, sem
ekki hafði fnndizt, eða bólga eða
skemmd á mikilvægu innvortis lif-
færi. Það gæti verið heitaígerð.
Leita vandlega aftur á Röntgen-
mgndum að beinskemmdum. Þetta
gæti verið osteomyelitis (beinígerð,
sem eyðir beinunum og getur vald-
ið ævilangri bæklun).
Læknarnir héldu áfram leitinni
að visbendingum um orsök sjúk-
dómsins. Hver á fætur öðrum þukl-
uðu þeir kvið sjúklingsins til þess
að ganga úr skugga um, hvort nokk-
urt líffæri væri stækkað, og hlust-
uðu hjarta hans. Þeir létu gera
berklahúðpróf og rannsaka blóð-
vökva til þess að sjá, hvort í blóði
hans væri of lítið magn af gamma
globulini (visst eggjahvítuefni, sem
er þýðingarmikið við sköpun ó-
næmis), en það mundi gera hann
sérstaklega næman fyrir smitun.