Úrval - 01.04.1965, Side 28
26
ÚRVAL
Framleitt mótefni gegn inflnensu
til inntöku í töflum, sem nefnast
Symmetrel (fyrirtælcið segir, að
það sé „fyrsta móteitrið gegn veir-
um, sem framleitt hafi verið til
inntöku). Þctta efni hefur vakið
mikinn áhuga hjá lyfjaiðnaðinum
og gæti orðið upphaf að alveg nýju
iðnaðarsviði hjá Du Pont.
Fengið einkaleyfi á nýrri ljós-
myndunartækni, sem tekur „pósi-
tiva“ (rétta) mynd, án þess að taka
nokkra „negatíva“ (öfuga) mynd
fyrst.
Búið til óvenju fjölhæft plast-
efni, Surlyn, sem vísindamennirn-
ir geta gert ýmist liart eða mjúkt,
gegnsætt eða ógegnsætt, þykkt eða
þunnt, einfaldlega með því að hnika
til innihaldi þess af fareindum
(ionum) — sem framleiða má úr
jafn ólíka hluti og umbúðaefni,
pípur og skartgripi.
Du Pont liefur ekki aðeins komið
öllu þessu í kring — og fjölmörgu
öðru — heldur bætir einnig ár-
lega mörgum milljónum við ein al-
mestu fjölskylduauðæfi, sem 1 i 1
eru í Bandaríkjunum og nema nú
um þrem milljörðum dollara. Af
þeim 1500 núlifandi manna, sem
bera nafnið Du Pont, eru 27 i for-
stjórastöðum í fyrirtækinu, og
meira en 150 eiga verulegan hlut
i því.
Fyrirtækið setur sér ávallt það
mark, að greiða 10% í ágóðahlut
og kemst venjulega mjög nærri því
marki. Á siðastliðnu ári hafði Du
Pont 325 milljón dollara hagnað af
2,6 milljarða brúttósölu sinni, og
varð þar með eitt hinna 12 ágóða-
hæztu af 500 stærstu fyrirtækjum
þjóðarinnar, enda nægði það til
að gera jjví nær alla hina 240000
hluthafa Du Ponts ánægða.
Fyrirtæki Du Ponts framleiðir
og selur svo margs konar vörur og
á svo mörgum stöðum, að áhrif
þess eru jafnvel meiri en sem tekj-
um þess nemur. í 129 verksmiðj-
um og framleiðslustofnunum í 28
fylkjum Bandarikjanna og i 16 er-
lendum ríkjum framleiðir það ekki
færri en 20000 vörutegundir.
Eiginmaður klæðist að morgni
orlonfötum og Spandexsokkum.
Iíona hans treður sér i lycra-
mjaðmabelti, antronundirkjól, Can-
trecesokka — eða Warner „body
stocking“ (með hörundslit), úr
Du Ponts teygjunæloni, sem kom-
ust mjög í tízku. Fatnaður hjónanna
er hreinsaður efnafræðilega (dry-
clean) með Perclene, gerður vatns-
heldur með Lelan, bleikaður með
Oxone. Matinn fá þau i umbúðum
límdum með Elvacet, vafinn i
Mylar, geyma hann í kæliskáp,
kældan með Freon, og sjóða liann
á rist, húðaðri ineð Teflon. Ef til
vill fægja þau bilinn sinn með Luc-
ite, láta gljáhúða húsgögnin með
Duco, mála og þétta húsið með
Tedlar o. s. frv.
Du Pont er stöðugt að framleiða
nýjar vörutegundir, knúið áfram af
Iiörðustu samkeppni, sem þekkzt
hefur í allri sögu iðnaðarins. Hin
glæsilega þróun efnaiðnaðarins —
hann hefur aukizt um 126% á síð-
asta áratug, og vex helmingi hraðar
en allur iðnaður Bandaríkjanna •—
liefur lokkað marga nýliða inn á
þetta svið, þar á meðal jafn ólíkleg
fyrirtæki eins og W. R. Grace og