Úrval - 01.04.1965, Síða 30
28
ÚRVAL
myndafilmum hjá honum. Og hann
tók nú að leita að orsökinni. Itann
taldi víst, ;\ð þetta fyrirbæri staf-
aði frá einhverju af hinum ótelj-
andi efnum i ljósmyndatilrauna-
stofu sinni — en hverju? í rauðu
ljósi myrkraklefans haslaði hann
við að reyna litarefni og efnasam-
bönd í hundraðatali. Svo var það
7. des. 1961 að hann teygði sig upp
í eina glashilluna og tók þar sjald-
notaða efnablöndu, sem nefnist
„mercapfan-l-phenyl-5-mercapto-
tetrazole“. Hann smurði blöndunni
á filmuna og framkallaði hana síð-
an, og „það var líkast því að
skreppa út á veðreiðabraut og vinna
tvöfaldan liæsta vinning," sagði
Blake sjálfur frá.
Fimm tilraunamenn gengu nú í
það að reyna og rannsaka 6000
mismunandi tæknilegar aðferðir, og
komust að þeirri niðurstöðu að
þessi „Blakes Effect" (áhrf efna-
blöndunnar á filmuna) táknaði
raunverulega nýja og þýðingamikla
framför: filmu sem tæki „positívar“
myndir beint og á nýjan hátt.
Filman er enn ekki eins sterk
eins og venjuleg filma, og Du Pont
hefur ekki sem stendur í hyggju
að setja hana á markaðinn. En fyrir
tækið telur ekki óhugsandi oð skapa
megi mikinn markað fyrir filmuna
hjá áhugalj ósmynd urum.
Eins og aðrir, sem stunda rann-
sóknir finna efnafræðingar Du
Ponts oft ekki það, sem þeir eru
beinlínis að leita að, en detta hins
vegar ofan á eitthvað allt annað
og miklti merkilegra. Á seinni hluta
5. áratugsins voru Du Pont vísinda-
menn að svipast um eftir dýralyfi,
sem gæti komið að gagni gegn veir-
um í dýrum. Eitt þeirra, sem unnið
var úr efni, sem nefnist „adaman-
tane“, virtist ekki óvænlegt. Árið
1959 breyttu tveir efnafræðingar
hjá Du Pont sameindabyggingu
efnisins adamantane og fengu þá
nýtt efnasamband, EXP-105-1. Er
þeir höfðu gert tilraunir með þetta
efni á músum, gerðu þeir tilraunir
með það á mönnum, sem gáfu sig
fram til þess, og komust að raun
um, að þeir, sem tóku það inn, voru
all miklu ónæmari gegn Asíu-
inflúensu en aðrir. Af þessu drógu
])eir þá ályktun, að lyfið dræpi elcki
veirurnar, heldur liindraði fjölg-
un þeirra með því að koma i veg
fyrir að þær kæmust inn í frumur
líkamans. Þar sem vísindamenn
hafa til skamms tíma talið ólnigs-
andi, að hægt væri að framleiða
mótefni gegn veirum til inntöku,
getur þetta nýja efni valdið hylt-
ingu á því sviði.
Æðsti yfirmaður Du Ponts sem
stendur er 59 ára gamall, hlédræg-
ur og dulur maður, að nafni Lam-
mot Du Pont Copeland. Af stjórn-
endum þeirra hlutafélaga, sem velta
milljörðum dollara, og sem flestir
eru komnir úr millistéttunum, er
liann að heita má sá eini, sem er
fæddur til að erfa mikil auðæfi.
Það var langafi hans, sem stofnaði
fyrirtækið Du Pont, og hóf starfs-
feril sinn með því, að selja hinum
ungu .Bandarikjum sprengiefni, sem
þau þurftu á að halda sér til varn-
ar. Faðir hans var hátt settur í fyr-
irtækinu Du Pont um 40 ára skeið.
Helztu leikfélagar hans voru auð-
ugir frændur hans. Honum var