Úrval - 01.04.1965, Side 48
46
ÚRVAL
field áfram að gera tilraunir með
niðursuðu á risakrabbanum, þann-
ig að kjötið tapaði engu af fersku
bragði sínu við meðferðina. Loks
tók hann upp á því að sjóða kjötið
fyrst og frysta það svo, og þessi
aðferð gaf svo góða raun, að ekki
varð á betra kosið.
í striðslok réðist Wakefield í það
að gera út togara i krabbaveiðar,
ög heppnaðist það fyrirtæki vel,
því að nú var hægt að sækja á
djúpmið og veiöa árið um kring.
Aðrir útgerðarmenn tóku líka að
stunda þessar veiðar, og niðursuðu-
verltsmiðjurnar, sem til þessa
höfðu ekki verið starfræktar á vet-
urna, störfuðu nú allt árið.
Fyrir nokkrum árum bannaði
Alaskastjórn veiðar með botnvörpu
á mörgum veiðisvæðum í því skyni
að vernda fiskistofninn. Nú er
krabbinn veiddur í gildrur á svip-
aðan hátt og humar, og má hver
togari setja út 30 gildrur í einu.
Öllum kvendýrum og þeim karldýr-
um, sein ekki ná sex punda þyngd,
er sleppt til þess að tryggja við-
gang stofnsins.
Þar sem hrygningarstöðvar
krabbans eru utan fiskveiðitak-
markanna, hefur stofninn orðið
fyrir miklum ágangi af veiðiskip-
um Japana og Rússa. Árið 1952
gerðust Japanir aðilar að samningi
Kanada og Randaríkjanna um fisk-
veiðar í Norður-Iíyrrahafi. Samið
var um lax- og lúðuveiðar, en einn-
ig náðist óformlegt samkomulag um
krabbaveiðarnar á þessum slóðum.
Þegar bandarískt veiðiskip fann
góð mið, setti það út radardufl og
tilkynnti japanska fiskiflotanum
um staðinn, og var þá engin hætta
á árekstrum við Japani. Á sama
hátt voru japönsk fiskiskip vernduð
fyrir ágengni bandariskra skipa.
En árið 1959 sendu Rússar flota
til veiða á Beringshafi og varð það
til þess að breyta viðhorfi Japana
til samningsins, því að þeir óttuð-
ust að Rússar myndu eyðileggja
krabbamiðin. Ekki skarst þó í odda
í það sinn, en ekki cr gott að segja
hvað framtíðin ber i skauti sínu,
þvi að Rússar liafa ekki viljað
semja. En bvað sem um jiað er, þá
er jiað staðreynd, að krabbaveið-
arnar hafa haft ómetanlega þýðingu
fyrir efnahagslif Alaska.
Að einu má Þó ganga vísu, hvað barnauppeldi snertir, og það er sú
staðreynd, að hverri uppeldisaðferð sem þú kannt að beita við börn
þín, þá hefur hún að fimm árum liðnum reynzt vera algerlega röng.
Bill Vaughan
Við verðum að meðhöndla hugmyndirnar eins og þær væru fiskaseiði
.... kasta þeim í þúsundatali út í vatnið.... Aðeins örfáar þeirra
munu halda lifi.... en það er líka alveg nóg.
Anne Heywood