Úrval - 01.04.1965, Qupperneq 52
50
ÚRVAL
uppgötvun. Hann tók eftir því, að
í sjúkrahús hans var komiS meS
óvenjulega mörg börn með vagl
(ský) á augum. Þegar hann spurði
mæðurnar í þaula, komst hann að
því, að þær höfðu næstum allar
fengið rauða hunda á fyrstu mán-
uðum meðgöngutímans. Þessi sjúk-
dómur hafði geisað sem farsótt um
Ástralíu einmitt skömmu áður. Sýk-
ingin liafði breiözt út óðfluga með-
al ungra, giftra kvenna, sem safn-
azt höfðu saman í hergagnaverk-
smiðjum og skrifstofum og öðrum
vinnustöðum á stríðsárunum. Marg-
ar þeirra voru þung'aðar. Og frekari
rannsóknir leiddu brátt í ljós, að
„Rauðu hunda börnin“, eins og
þau voru brátt kölluð, voru oft lítil
við fæðingu, þeim fór lítið fram
og mörg þeirra voru haldin heyrn-
arleysi og hjartasjúkdómum og
höfðu þar að auki vagl (slcý) á
augum.
Fréttir um uppgötvun þessa bár-
ust til annarra landa. í Ameríku
komu þrjár ungar mæður læknum
sinum á óvart, þegar þær sögðust
þegar hafa tekið eftir þessu í kunn-
ingjahópi sínum. Englendingur
einn, sem var heyrnarlaus og mál-
laus og fæddur hafði verið árið
1882, skýrði frá því, að móðir lians
hcfði alltaf kennt líkamsgalla hans
þeirri staðreynd, að hún hefði feng-
ið rauðu hundana, meðan hún gckk
með hann. Og í Ástralíu sýndi
rannsókn gamalla skýrslna, að á
eftir faröldrunum árin 1898 og
1924, er rauðu hundarnir höfðu
geisað þar í landi, hafði fjölgað
töluvert fæðingum barna, sem voru
heyrnarlaus og mállaus. Augsýni-
lega var hér um orsakasamhengi
og reglu að ræða, en ekki eitthvað
nýtt, sem ekki hafði gerzt áður.
Orsakasamhengið hafði orðið sér-
staklega augsýnilegt veg'na hins ó-
venjulega mikla fjölda „rauða
hunda barna“, sem fæddust, eftir
að slíkar farsóttir geisuðu um heim
allan í síðari heimsstyrjöidinni.
Fréttir um þessa uppgötvun bár-
ust ekki til Þýzkalands, fyrr en
styrjöldinni var lokið. En samt
höfðu þýzkir læknar verið fyrstir
til þess í samtals tvær aldir að
g'reina á milli þessa sjúkdóms og
annarra þeirra, sem ollu einnig
upphlaupi og rauðum dílum og
flekkjum. Það er þess vegna, sem
sjúkdómur þessi er kallaður „þýzk-
ir mislingar“, þótt hann hafi einn-
ig verið kallaðir „rauðir hundar“,
„rósaupphlaup" eða „vorupphlaup“.
En það var fyrir um öld síðan, að
ungur herskurðlæknir í Indlandi
stakk upp á því, að sjúkdómur
þessi skyldi kallaður „Rubella“.
Notkun þessa nafns jókst smám
saman, og nú er það hið rétta lækn-
isfræðilega heiti sjúlcdóms þessa.
Rubella og „þýzkir mislingar“
(rauðir hundar) eru þvi tvö nöfn
á sama sjúkdómnum. Þess skyldi
minnzt, þvi að smám saman munu
nöfnin „rubellaveira“ og „rubella-
bólusetningarefni“ vérða algengari,
þegar miða tekur í baráttunni gegn
sjúkdómi þessum. „Samband ru-
bellabarna“ var stofnað til hjálpar
börnum sem þjást af tveim eða
fleiri líkamsgöllum, sem rekja má
til þess, að móðirin hefur fengið
rauðu hundana (rubella) á með-
göngutímanum.