Úrval - 01.04.1965, Síða 53
RAUÐIR HUNDAR
Algengasti líkamsgallinn er
heyrnarleysi. Sá næstalgengasti er
meðfæddur hjartasjúkdómur og
sjóngallar. Vögl (ský) og breyting-
ar á nethimnu eru sjaldgæfustu
gallarnir. Það er ekkert samband
milli stigs líkamsgallanna og þess,
hvort um illkynjað sjúkdómstil-
felli hefur verið að ræða hjá móð-
urinni, heldur getur vægt tilfelli
einnig leitt tii slíkra galla. En eðli
líkamsg'alla barnsins er tengt því,
hvenær á meðgöngutímanum móðir-
in hefur sýkzt. Hinum ýmsu líffær-
um er ekki öllum jafnhætt á sama
tíma, en þó er ekki um skörp mörk
að ræða, og því getur sama barnið
lilotið fleiri en einn likamsgalla.
Hversu mikil er hættan fyrir
barnið, þegar móðirin fær rauða
hunda á meðgöngutímanum.?
Ýmsar rannsóknir hafa leitt til
mjög mismunandi niðurstaða, hvað
hættuna snertir. Samkvæmt sum-
um rannsóknum þessum er hún álit-
in mjög mikil, en samkvæmt öðrum
minni. Ekki er mögulegt að meta
áhættuna og flokka á hinum ýmsu
mánuðum meðgöngutímans. Oft
fær móðirin rauða hunda, án þess
að læknir skoði hana á eftir. Oft
er ekki tilkynnt um fósturlát á
fyrstu mánuðum meðgöngutimans,
og oft er tala þeirra galla, sem finn-
ast hjá börnum, komin undir því,
hversu ýtarlegar og langvarandi at-
huganirnar hafa verið. En yfir-
leitt má þó segja, að hættan fyrir
barnið sé mest, þegar móðirin fær
sjúkdóm þennan á fyrsta og öðrum
mánuði meðgöngutimans. Hættan
minnkar á þriðja og fjórða mán-
uðinum, og segja má, að hún sé
51
varla fyrir hendi á síðari mánuð-
um hans.
Til allrar hamingju verða flestar
konur ónæmar gagnvart sjúkdómi
þessum við að hafa fengið hann
áður, annað hvort með öllum ein-
kennum hans eða jafnvel án þess
að einkenni hans hafi komið í ljós.
Auðvitað eru mestar likur á því
að fá rauðu hundana, þegar þeir
geisa sem farsótt. Venjulega vitn-
ast um þá, vegna þess að þá verða
þeir algengir í skólunum í einu
héraði (i Engl.) var t. d. um helm-
ingur nemenda fjarverandi um
tíma árið 1962 vegna rauðu hund-
anna. Því er það skynsamlegt að
stofna ekki til þungunar, fyrr en
farsóttin er liðin hjá. Yfirleitt
stendur farsóttin ekki lengi. Sjúk-
dómur þessi gerir aðallega vart
við sig á vorin og fyrri hluta sum-
ars. Og nokkur ár líða jafnan á
milli slíkra faraldra annars vegar
og hins vegar þess, er breiddist út
árið 1962, og er bilið á milli þeirra
óreglulegt.
ÖRYGGISRÁÐSTAFANIR
En sé kona þegar þunguð eða
áliti, að svo sé, ætti hún að forð-
ast að hafa nokkuð samneyti við
fólk, er sýkzt hefur af sjúkdómi
þessum. Þessi varúðarráðstöfun er
svo mikilvæg, að sum yfirvöld leyfa
þunguðúm kennslukonum að fá
leyfi frá störfum, meðan faraldur
geisar meðal skólabarnanna. Auð-
vitað getur þunguð kona ekki kom-
izt hjá þvi að hafa eitthvert sam-
neyti við sjúka meðliini eigin fjöl-
skyldu. Og sé um slíkt að ræða, ætti