Úrval - 01.04.1965, Page 56
Hvernig má það vera, að þjóðfélög þau, sem búa við sivaxandi velmegun
ár frá ári, ráða alls ekki lengur við
uppvaxandi, striðalda æsku, sem er með fullar hendur fjár?
V andræðaunglingar
um víða veröld
Eftir Geoffrey Lucy.
t desembermánuði árið
1963 nálgaðist hópur
hálfdrukkinna sænskra
unglinga kirkju nokkra
nálægt Stokkhólmi.
Sumir unglinganna voru aðeins 13
ára gamlir. Þetta var klukkan 4
á sjálfa jólanóttina, og skyldi haid-
in þar guðsþjónusta. Þegar þeim
var tilkynnt, að guðsþjónustu þess-
ari hefði verið frestað, tóku ungl-
ingarnir til þess að kasta púður-
kerlingum og Kínverjum, saurga
grafir og brjóta glugga guðshússins.
í Frakklandi drógu fjórar 15 ára
stúlkur um fjóra bréfmiða. Á hverj-
um miða stóð stutt setning: „Ég
frcm sjálfsmorð." Ég stel.“ Ég verð
góð.“ „Ég fæ mér karlmann.“ Og
næsta sunnudag framdi Isabelle
sjálfsmorð, Marie stal jakka, Janine
var góð, en Annie fór út á þjóðveg-
inn, sníkti sér far og hafði mök við
6 karlmenn.
í Rio de Janeiro ók 17 ára gamall
strákur á fullri ferð móti rauðum
umferðarljósum á mestu umferðar-
götum stórborgarínnar „til þess að
sjá, hvernig færi.“ Hann drap sig
á þessu, 15 ára gamla vinkonu sína,
sem var með í förinni, og saklausan
ökumann bifreiðarinnar, sem hann
ók á.
Um viða veröld virðist sívaxandi
fjöldi ungmenna verða gripinn ógn-
vænlegu æði skemmdarfýsnar, á-
byrgðarleysis og siðferðilegrar upp-
lausnar. Þótt yfirgnæfandi meiri-
hluti unglinga sé löghlýðinn og lifi
heiðarlegu, jákvæðu lífi, þá berast
skýrslur frá flestum löndum uin
aukin skemmdarverk, grimmd og
ruddaskap, kynferðilega lausung og
þjófnað á ökutækjum, sem síðan
eru notuð til þess að leika sér á.
Og það er viss minnihluti ung'ling-
anna, sein þessum ósköpum veldur.
Og ein staðreynd er eftirtektarverð-
ust í öllum þessum skýrslum frá
hvaða landi sem er: það er tiltölu-
lega mest um þessa trylltu unglinga
i sjálfum velmegunarlöndunum. Og
margir þessara unglinga koma frá
löghlýðnum miðstéttarfjölskyldum,
54
— Readers Digest —